12.12.1972
Sameinað þing: 28. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1104 í B-deild Alþingistíðinda. (819)

287. mál, kennsla í sjúkraþjálfun

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):

Herra forseti. Svar við fsp. hv. 3. þm. Reykn. er þetta: Svo sem kunnugt er, hefur til þessa ekki verið kostur á skipulegu námi í sjúkraþjálfun hér á landi, heldur hafa þeir, sem leggja vildu stund á þessa starfsgrein, orðið að leita sér menntunar erlendis, aðallega á Norðurlöndum. Í félagi ísl. sjúkraþjálfara eru nú 36 félagsmenn. Af þeim starfar einn erlendis, en 3 eru ekki í starfi. Allmargir félagsmanna gegna hluta úr starfi.

Þörfin fyrir aukið starfslið á þessu sviði hefur farið vaxandi og orðið mönnum æ ljósara á síðustu árum. Árið 1970 sendi Haukur Þórðarson, núv. yfirlæknir við vinnuheimilið að Reykjalundi, rektor Háskóla Íslands erindi, þar sem hann gerði grein fyrir vaxandi þörf á menntunaraðstöðu sjúkra- og iðjuþjálfa hérlendis. Í grg. Hauks var áætlað, að þörf væri þá fyrir 50–60 starfandi sjúkraþjálfa hérlendis og um 40 iðjuþjálfa. Beindi hann þeim tilmælum til rektors og háskólaráðs, að kannaðar yrðu leiðir til að koma á fót stofnun við Háskóla Íslands eða sérstakrí deild innan hans til að mennta sjúkraþjálfa og iðjuþjálfa. Læknadeild háskólans hóf athugun málsins, en síðan sneri þáv. forseti læknadeildar og formaður Félags ísl. sjúkraþjálfara sér til menntmrn. og lögðu til. að rn. skipaði n. til þess að fjalla um þetta menntunarmál. Rn. hefur gert ráðstafanir til að koma á fót slíkri n., þar sem sæti eigi, auk fulltrúa rn., fulltrúar frá heilbr: og trmrn., Háskóla Íslands, Félagi ísl. sjúkraþjálfara og Læknafélagi Íslands.

Menntmrn. er vel ljós vaxandi þörf á fólki með menntun á sviði sjúkra- og iðjuþjálfa og vill fyrir sitt leyti stuðla að því, að aðstaða til slíks náms komist á hérlendis, svo fljótt sem kostur er. Meðan ekki er lokið þeirri athugun málsins, sem nú hefur verið stofnað til samkv. því, sem sagt var hér að framan, er þó ekki unnt að svara með vissu fsp., hvar náminu verði fyrir komið né hvort það muni geta hafizt þegar á næsta hausti, þótt vissulega væri það æskilegast.