13.12.1972
Efri deild: 23. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í B-deild Alþingistíðinda. (845)
113. mál, fjölbrautaskóli
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Mál það, sem hér er lagt fyrir Alþingi, kom einnig fyrir síðasta þing á síðustu þingdögum og varð eigi útrætt. Nú er það lagt fyrir að nýju með einni breytingu. Eins og frv. var lagt fyrir síðasta þing, gerði það aðeins ráð fyrir heimild til stofnunar skóla af nýrri gerð í Reykjavík, en nú hefur verið horfið að því ráði að heimila slíka skólastofnun víðar um land, eftir því sem rétt þykir og að ráði verður hjá bæjar- eða sveitarstjórnum og ríki.
Sú stofnun, sem nefnd er fjölbrautarskóli í þessu frv. og var nefnd sameinaður framhaldsskóli í fyrra frv., hefur verið nokkuð til umræðu síðustu ár, og fjallað er um slíka gerð skóla í skýrslu, sem n. skipuð á vegum Reykjavíkurborgar samdi, og mér þykir rétt að lýsa eðli skólans eins og þar er gert í mjög samandregnu máli, með leyfi hæstv. forseta. Í skýrslu n. segir:
„Með hliðsjón af jafnt væntanlegri sem æskilegri þróun í málefnum framhaldsskóla beinist tilraunir skólans“, þ.e.a.s. fjölbrautarskólans, „í upphafi einkum: að sameiningu alls almenns framhaldsnáms í einni kennslustofnun, að fjölgun námsbrauta á framhaldsskólastigi, hvort heldur til undirbúnings undir nám í sérskólum og æðri skólum eða til undirbúnings undir störf í hinum ýmsu atvinnugreinum, að sveigjanlegu kennsluskipulagi og frjálslegum námsháttum, er gefi nemendum í senn meira frelsi í vali námsefnis og meiri ábyrgð á eigin menntun, að aukinni samvinnu við foreldra nemenda og íbúa skólahverfísins annars vegar og hins vegar vinnuveitendur og samtök atvinnustétta með það fyrir augum að kanna þarfir nemenda og kynna þau tækifæri, er bíða þeirra að námi loknu, að hugsanlegri styttingu námstíma til undirbúnings æðra námi, sem fæli í sér lækkun stúdentsaldurs.
Skipulag skólans verður í höfuðdráttum sem hér segir:
Skólanum verði skipt í deildir eftir námsgreinum, þannig að hver deild annist kennslu í tiltekinni grein eða greinaflokki, og sé yfir hverja deild settur deildarstjóri, er sé námsstjóri skólans í greinum deildarinnar. Námsefni í hverri grein verður skipt í einingar, þannig að hver eining sé annars vegar sjálfstæð heild með tilteknum námslokum og hins vegar undirbúningur undir framhaldseiningar í sömu grein. Einingar á sama stigi verði ólíkar að efni og að þyngd, svo að sem flestum standi til boða námsefni í samræmi við þarfir þeirra og getu. Námsbrautir verði skipulagðar á grundvelli deildaskiptinga og námseininga, þannig að í stað þeirra fyrir fram tilteknu námsheilda, sem tíðkazt hafa, þ.e. núverandi deilda í framhaldsskólum, komi fjölbreytt samval eininga innan hinna ýmsu deilda, allt eftir þörfum, áhuga og getu hvers einstaks nemanda. Jafnframt verði gert ráð fyrir sameiginlegum lágmarkskjarna allra námsbrauta. Frá upphafi verði gert ráð fyrir eftirtöldum námsbrautum: háskólabraut, tæknibraut, viðskiptabraut, félagsfræðabraut, heimilisfræðabraut, myndlista- og handiðabraut og iðnaðarog iðjubraut, með greiningu innan hverrar brautar, eftir því sem þörf krefur og ástæður leyfa.
Námsárinu verði skipt í annir og námsupphaf og námslok bundin við annarinnar, en ekki við skólaárið þannig að nemendur geti, ef á þarf að halda, fellt starfsreynslu eða þjálfun á vinnustað inn í nám sitt og einnig skipt um námsbraut með sem minnstri tímatöf. Gert verði ráð fyrir mislöngum námsferlum innan hverrar námsbrautar, þannig að nemendur eigi þess kost á hverju námsári að ljúka skilgreindu námi, er veiti þeim tiltekin réttindi með tiltekna starfshæfni og enginn þurfi að hverfa frá hálfloknu námi.“
Hér er sem sé um það að ræða, að leitast við að móta skólastofnun, sem er þjálli gagnvart nemendum og fjölhæfari gagnvart þörfum þeirra, en þær, sem við höfum áður þekkt. Í þessu frv. er fjallað sérstaklega um skiptingu kostnaðar af fjölbrautaskóla milli ríkis og bæjar- eða sveitarfélaga. Það er gert ráð fyrir, að ríkissjóður greiði 60% af stofnkostnaði skólans, en sveitarfélög, sem að slíkum skóla standa, 40%. Þetta hefur reynzt eðlileg skipting, miðað við, hvernig þau skólastig, sem fjölbrautaskóli mundi leysa af hólmi, skiptast nú að kostnaði til á ríki og sveitarfélög.
Ég vil svo leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. menntmn.