13.12.1972
Efri deild: 23. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1125 í B-deild Alþingistíðinda. (849)
2. mál, Fósturskóli Íslands
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Ég er 1. flm. brtt. á þskj. 137 um það, að nafni skólans verði breytt þannig að í stað orðsins fósturskóli komi fóstrunarskóli. Við 2. umr. málsins var þess getið, að menntmn. mundi hafa frv, til athuganir milli 2. og 3. umr. Ég man ekki, hvort það var þá beinlínis tekið fram, en tilefni þess, að n. vildi hafa frekari athugun frv. með höndum, var það, að menn voru ekki ánægðir með nafnið á skólanum.
Það deilir enginn um það, hve ágætt nafnorðið fóstur er í þeirri merkingu að annast og ala upp barn eða börn, og það eru auðvitað ótal tilvitnanir í íslenzkt mál, ritmál að fornu og nýju, sem renna stoðum undir þá merkingu og notkun orðsins, og vissulega er það fallegt orð líka og tamt í munni. En það, sem hæstv. ráðh. vék síðast að í ræðu sinni og olli því, að nm. í menntmn. voru ekki ánægðir með þessa nafngift, var hin tvíþætta merking orðsins fóstur. Það voru ekki allir á einu máli um, hvað hugsanlegt væri að gera til þess að bæta þarna úr, og ég held ég hafi séð það rétt, — ég hef að vísu ekki verið hér á þingfundum síðustu daga vegna veikinda, — að það munu allir nm. í menntmn. hafa flutt brtt. við nafn skólans, við fjórmenningar á þskj. 137 og hinir 3 nm., ætla ég að rétt sé, að flytji brtt. á öðru þskj.
Það er alveg rétt, sem hæstv. ráðh. tók fram, að orðið fóstrun finnum við ekki í orðabókum, hvorki í fornu máli íslenzku né nýrra íslenzku ritmáli. Ég skal ekki fyrir það sverja, hvort ég hafi einhvern tíma heyrt þetta orð nefnt í töluðu máli og þori ekkert um það að fullyrða. Og mér dettur ekki í hug, að orðið fóstrun standist samanburð við hið forna, góða orð fóstur. Það er ekki það, sem um er að ræða, heldur að þegar svo var komið að skólanum var ætlað að hafa sem nemendur bæði karlar og konur, þá var auðvitað fóstruskólanafnið orðið útilokað, og fóstrunarskóli var það nafn, sem nefndin, sem undirbjó þetta frumvarp, hafði valið skólanum. Við 4, sem stöndum að brtt. á þskj. 137, hölluðumst þá helzt að því að gera till. okkar, að það yrði haldið fast við það nafn. Hæstv. ráðh. fannst það væri, — ég veit eiginlega ekki, hvað ég á að kalla það, — orðhengilsháttur kannske eða eitthvað í þá áttina að vera að setja fyrir sig, að það væri hægt að leggja þá merkingu í orðið fósturskóli og þá til þess að hafa að gamni, að það sé skóli fyrir ófullburða börn, óborin börn. En allavega sú tvíþætta merking orðsins, sem gerir það að verkum, að öllum menntmn.-mönnum hefur þótt þetta nafn óviðkunnanlegt. Ég geri ekki ráð fyrir, að neinn vilji halda því fram, frekar en við, sem stöndum að þessari brtt., að orðið fóstrun taki orðinu fóstur fram, heldur er eingöngu verið þarna að reyna að komast fram hjá vissum vanda í nafngiftinni. Ég minnist þess, að ég sá, að orðið fóstrun kemur fyrir í einu frv., sem nú liggur fyrir þinginu, frv. um hlutdeild ríkisins í kostnaði við dagvistunarstofnanir. Mig minnir, að það sé í 17. gr. þess frv., þar er talað um fóstrunarstörf og fóstrunarmenntun, þannig að þetta nýyrði virðist hafa fundið hljómgrunn hjá einhverjum.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa öllu fleiri orð um þetta mál. Mér er ekki unt að sjá, að þetta geti orðið hitamál á nokkurn hátt, þaðan af síður pólitískt mál. það finnst mér gersamlega útilokað. En ég vildi láta þessi sjónarmið koma fram og undirstrika það, að það er varla tilviljun, að nafnið fósturskóli skuli falla í heldur slæman jarðveg hjá öllum nm. í menntmn.