13.12.1972
Efri deild: 23. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í B-deild Alþingistíðinda. (850)
2. mál, Fósturskóli Íslands
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Fyrsti flm. brtt. á þskj. 139 virðist ekki staddur hér í d., og sýnist mér þá, að ég sem annar flm. þessarar brtt. verði að segja örfá orð henni til stuðnings.
Ég vil láta mér nægja að vísa í það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði um álit okkar í menntmn. á þeirri nafngift, sem er á frv.: Fósturskóli Íslands. Okkur þótti sem sú tvíþætta merking, sem í orðið mætti leggja, væri þannig, að orðið væri ekki viðunandi. Hafa því allir meðlimir menntmn. lagt fram brtt.
Ég get raunar látið nægja að leiðrétta hæstv. ráðh. smávegis. Við leggjum til að nota orðið fóstraskóli m.a. með tilliti til þess, að það er ekki aðeins eignarfall fleirtölu af kvenkynsorðinu, heldur einnig af karlkynsorðinu. Og sýndist okkur, að þar með væri fullnægt öllum aðilum hvorum megin sem þeir standa — rauðsokkum einnig, og því hin ágætasta málamiðlum og orð, sem óumdeilanlega fellur vel inn í íslenzka tungu.