13.12.1972
Neðri deild: 23. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í B-deild Alþingistíðinda. (875)
Umræður utan dagskrár
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Það má segja um það, þegar farið er að ræða um stjórnarsáttmálann, að þau tíðkist nú hin breiðu spjótin, því að mikið af tíma þingsins fyrr og síðar hefur farið í að kýta um þennan ágæta sáttmála. En við skulum láta það liggja á milli hluta. Ég vil aðeins árétta það, að ég var út af fyrir sig ekki að finna að því, að opinberað væri álit valkostanefndarinnar. Ég get verið sammála hæstv. forsrh. um, að það er vel unnið plagg og vel þess virði, að það sé gaumgæft. En það, sem ég er að átelja, er, að ríkisstj. sitji við völd og láti danka dag eftir dag, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð og skapi með þessu ófremdarástand í þjóðfélaginu, sem enginn sér fyrir í dag, hvaða afleiðingar hefur. Veit hæstv. forsrh. nokkuð um það, hvort menn séu farnir að gera ráðstafanir til þess að greiða erlendar skuldir sínar bara vegna þess umtals, sem upp hefur komið undanfarna daga bæði hér í þingi, í blöðum og annars staðar um væntanlega gengisfellingu? Veit hæstv. forsrh. nokkuð um það, hvaða ráðstafanir fólk er farið að gera vegna sífellds tals um hækkun áfengis eða tóbaks eða annarra skatta, sem bæði hann og aðrir ráðh. hafa verið orðaðir við, innflutningsgjald eða vaxandi söluskatt? Gera menn sér ekki grein fyrir því, að hér hvílir sú skylda á ríkisstj. að hafa hraðann á, og það er það, sem ég er að átelja, þetta úrræðaleysi og þessi sífelldi dráttur. Ríkisstj. bað um frest í júlímánuði í sumar. Þjóðina undraði það stórkostlega, að ríkisstj. skyldi ekki vera búin að átta sig á, hvað gera skyldi, áður en Alþýðusambandsþing kom saman. Ég vil taka það fram, að þegar hæstv. ráðh. leiðrétti sem misskilning hjá mér, að ríkisstj. hefði fengið einstaka þætti álitsins, áður en hún fékk álitið í heild, þá má vera, að þetta sé rétt hjá honum. En ég vil þá segja, vegna hvers ég sagði þetta, að mér var kunnugt um, að fulltrúum alþýðusamtakanna voru gerðir kunnugir ýmsir þættir þessa máls af skýrslu, sem ríkisstj. hafði með höndum fyrir mánuðum síðan.
Það er ekki hætta í því fólgin að birta skýrslur eins og nál. valkostanefndarinnar. En það er hættulegt að láta reka á reiðanum. Án þess að ég fari nánar út í það, þá aðvaraði ég ríkisstj. af því tilefni, og ég aðvara hana enn að láta ekki líða daga og vikur án aðgerða með því umtali, sem er í bænum og alls staðar á landinu um hugsanlegar aðgerðir.
Ég skal svo loks minnast á það, sem hæstv. forsrh. vildi leiðrétta úr stjórnarsáttmálanum, að ríkisstj. hefði aðeins sagt, að hún mundi ekki fella gengið gagnvart þeim vanda, sem þá var við að glíma. Ja, það má, eins og ég segi, skýra á ýmsan hátt það, sem í stjórnarsáttmálanum er sagt, en þá hlýtur það að vera, ef ríkisstj. er núna að hugsa um gengisfellingu, að sá vandi sé kominn í hennar stjórnartíð, að hún telji ekki hjá því komizt að fella gengi.
Þá getur hún þakkað sér gengisfellinguna núna, sem hún hefur verið að klína á aðra fram að þessu. Og þó að það hafi verið í tíð fyrrv. ríkisstj., sem gengið var fellt 1960, þá vissu það allir, að þá var ríkisstj. að moka flór fyrrv. ríkisstj. Það var fjölgengi hér í landinu og það úrræðaleysi, athafnaleysi og vandræði, sem alls staðar blöstu við, sem verið var að gera úttekt á. Þannig var uppskriftin á þjóðarbúskapnum þá, en uppskriftin og úttektin á þjóðarbúinu, sem nú hefur verið gerð er öðruvísi. Það er alveg rétt.
Í öðrum löndum hefur það verið svo, að ef kvisazt hefur um hugsanlegar skattalækkanir, ég tala ekki um gengisfellingar og annað slíkt, og einhverjir ráðh. hafa verið taldir bera sök á því, þá hafa þessir ráðh. verið látnir segja af sér. Úrræðaleysið hjá núv. ríkisstj. er einstætt, — að leggja fyrst fram marklaus fjárlög og nú 13. des. eru fjárl. enn marklaus, og okkur er sagt, að við eigum að ræða þau við 2. umr. á morgun. Það vita allir, að það er marklaus umr., þegar enginn veit, hvað ríkisstj. ætlar að gera. Allt þetta úrræðaleysi og fálm vil ég átelja. Það er í raun og veru orðið svo gegndarlaust, að ég býst við, að það sé almannarómur, að ríkisstj. væri sæmst að segja af sér. En látum það liggja á milli hluta. Ég hef komið hér á framfæri aðvörun minni við ríkisstj. um að fljóta ekki sofandi að feigðarósi, og ef hún hefur einhver úrræði í huga, þá á hún að grípa til þeirra, áður en úrræðaleysið, töfin og biðin veldur meiri skaða en orðið er.