13.12.1972
Neðri deild: 23. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (880)

Umræður utan dagskrár

Forseti (GilsG):

Ég hafði vænzt þess, að þessar umr. utan dagskrár snerust fyrst og fremst um formsatriði, ef svo má segja, en þær snerust ekki upp í almennar umr. um efnahagsmál, því að miklu eðlilegra er, að þær fari fram undir öðrum dagskrárlið heldur en utan dagskrár. Tveir hv. þm. hafa þegar kvatt sér hljóðs, og ég vænti þess, að þeir sjái sér fært að lengja þessar umr. ekki úr hófi fram, svo að hægt verði að ganga til dagskrár, áður en langt um líður.