13.12.1972
Neðri deild: 23. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (881)
Umræður utan dagskrár
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Ég skal reyna að verða við tilmælum hæstv. forseta um að lengja ekki þessar umr. úr hófi fram, en ástæðan til þess, að ég vildi taka hér til máls nú, var einfaldlega sú, að hæstv. forsrh. ræddi hér, að mér fannst, mjög einkennilega um gengisfellingarhugtak málefnasamnings hæstv, ríkisstj.
Það mun hafa verið í okt. eða nóv. á s.l. ári, sem ég spurði hér hæstv. ráðh. um það, hvort ríkisstj. hefði gert málefnasamninginn að yfirlögðu ráði, hvort hún hefði kannað gögn um ástand og horfur í þjóðarbúskapnum og sérstaklega, hvort ákveði samningsins um loforð til launþega um 20% rauntekjuhækkun á tveim árum, lengingu orlofs og styttingu vinnutíma væru byggð á bessum gögnum. Og hæstv. ráðh. kom hér í ræðustól og staðfesti, að þessi samningur hefði verið gerður, — eins og mig minnir, að hann orðaði það, — að vel yfirlögðu ráði og þá í samræmi við þá úttekt á þjóðarbúskapnum, sem þá var gerð. Það liggur í augum uppi, að það væri eins og hver annar barnaskapur að tala um það, þegar ástand þjóðarbúskapsins er þannig, að ekki eigi að leysa „vanda“, sem þá steðjar að, með gengisfellingu. Það er svo mikill barnaskapur, að ég vil ekki ætla hæstv. ríkisstj. einu sinni, að hún hugsi þannig, og þaðan af síður, að hún setji slíkt á pappír, þannig að mér kom mjög á óvart þessi túlkun hæstv. ráðh. á gengisfellingarhugtakinu í málefnasamningnum, og ég vildi gjarnan, að hann skýrði þetta örlítið nánar, ef tími ynnist til nú við þessar umr., þótt utan dagskrár séu.
Nú blasir hins vegar við sá vandi, eftir því sem er álit sérfræðinga ríkisstj. og kemur fram í nál. valkostanefndarinnar og er þegar búið að dreifa til fjölmiðla, — þannig að það má telja, að um það megi ræða hér á hv. Alþ., — að það vantar um 5000 millj. kr. til þess að ná endum saman í fjáröflun ríkisins, og þá eru með talin upphafleg áform í samhandi við framkvæmdaáætlun og eitthvað á milli 1 og 2 þús. millj. kr., til þess að atvinnuvegirnir nái saman endum á næsta ári, og það, sem alvarlegast er, það hefði stefnt að óbreyttu, segja sérfræðingarnir, í 6 000 millj. kr. viðskiptahalla á næsta ári. Við slíkar aðstæður er augljóst, að gengi krónunnar er fallið. Það vita það allir, hvernig sem á því verður gripið, hvort það verður viðurkennt í reynd með nýrri gengisskráningu eða hvort um verður að ræða einhverjar aðrar ráðstafanir, að auðvitað er gengið fallið við slíkar aðstæður. En ég vil endurtaka það hér í sambandi við þetta: Hvern skilning leggur hæstv. ráðh. í málefnasamninginn? Er það virkilega svo, að hann telji, að á þeim tíma, sem málefnasamningurinn var gerður, hafi þurft að segja, að það ætti ekki að beita gengisfellingu, og nú, þegar svo sé ástatt, að þess sé þörf, þá sé verið að ræða um það að fara aðrar leiðir í því að leysa efnahagsvandann.
Ég vil svo að lokum ítreka það, að sá augljósi ágreiningur, sem er innan ríkisstj, um lausn á efnahagsvandanum, hefur valdið og mun sjáanlega valda frekari drætti á því, að ráðstafanir verði gerðar til þess að leysa þann hrikalega vanda, sem nú blasir við. Og mér er sagt, — ég veit ekki sönnur á því, — að stjórnarflokkarnir sitji nú á fundum og geri eina og aðra samþykkt í sambandi við þennan vanda, en hafi ekki samráð sín á milli um þetta og t.d. að einn stjórnarflokkurinn hafi í gær hafnað gengislækkunarleið. Ég vil í því sambandi ítreka þá spurningu, sem hér kom fram frá hv. þm. Matthíasi Á. Mathiesen: Er það rétt, að Alþb. hafi á fundi í gær hafnað þessari leið? Við sjáum, að við slík vinnubrögð, þegar flokkarnir sitja hver í sínu horni og eru að fjalla um þennan vanda, þá hlýtur að verða óhæfilegur dráttur á ráðstöfunum, og því vil ég mjög taka undir aðvörun bæði hv. 1. þm. Reykv. og hv. 7. þm. Reykv. í þessu máli.