13.12.1972
Neðri deild: 23. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (882)

Umræður utan dagskrár

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég skal vissulega verða við tilmælum hæstv. forseta um að tefja ekki umr. neitt úr hófi fram. Ég vildi aðeins leyfa mér að beina til hæstv. forsrh. tveimur fsp., sem ég tel eðlilegt og nauðsynlegt, að bæði þm. og þjóðin öll fái svar við. En það er í fyrsta lagi, hvort fyrirhugaðar efnahagsaðgerðir verði lagðar fram og afgreiddar hér, áður en þm. fara í jólaleyfi, og í sambandi við það, hvort 3. umr. um fjárl. sé þegar ákveðin nú fyrir jól, áður en þm. fara heim?

Ég spyr um aðgerðir í sambandi við efnahagsmálin vegna þess, að á fundi Landssambands ísl. útvegsmanna í nóv. s.l. gaf hæstv. sjútvrh. mjög sterk fyrirheit um það, að hann mundi hafa samráð við forráðamenn sjávarútvegsins og stefna að því, að rekstrargrundvöllur atvinnuveganna yrði ákveðinn fyrir áramót. Nú eru aðeins eftir nokkrir dagar, aðeins ein vika til að afgreiða fjárl., og ef á að afgreiða efnahagsmálin einnig, þá fara nokkrir dagar til þess. Ég tel því alveg nauðsynlegt, að fram komi nú við þessar umr. yfirlýsing frá hæstv. forsrh. um það, hvort þessi mál verða raunverulega afgreidd fyrir jól eða hvort atvinnuvegirnir eiga að bíða fram yfir áramót með að fá ákveðinn sinn rekstrargrundvöll. Það er mjög mikilvægt atriði fyrir þjóðarheildina, að rekstrargrundvöllur sjávarútvegsins og atvinnuveganna verði ákveðinn það tímanlega, að ekki komi til stöðvunar um n.k. áramót.