13.12.1972
Neðri deild: 23. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (885)

Umræður utan dagskrár

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Mér finnst vera mikið langlundargeð hjá hæstv. forseta að telja, að umr, af þessu tagi, sem hér hafa farið fram í dag, séu innan ramma eðlilegra þingskapa. Ég er ekki þeirrar skoðunar, og ég er ekki hér til þess að láta neina hv. þm, yfirheyra mig .um eitt eða annað. Ég mun gera hér grein fyrir stefnu míns flokks í sambandi við úrræðin, þegar þau liggja fyrir. En ég er ekki hér til þess að svara neinum yfirheyrsluspurningum frá hv. þm. Matthíasi Á. Mathiesen eða öðrum.