14.12.1972
Sameinað þing: 30. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1172 í B-deild Alþingistíðinda. (892)

Umræður utan dagskrár

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Við 2. umr. fjárlagafrv. á s.l. ári, sem bar upp á sama dag desembermánaðar og nú, gerði ég aths. við meðferð málsins þá við 2. umr. vegna ýmiss konar óvissu um tekjur og gjöld, sem þá var fyrir hendi, og skal ég ekki rekja þá sögu nú. En hafi verið óvissa um einstaka liði á s.l. ári, þá er fjárlagafrv., sem við nú eigum að fá til 2. umr., hulið fullkominni óvissu. Ég vil leyfa mér að minna á, að þegar hæstv. forsrh. hélt stefnuræðu sína í upphafi þings, tók hann alveg sérstaklega fram, að hann véki ekkert að ríkisfjármálunum. Það var út af fyrir sig mjög athyglisverð yfirlýsing. En þegar svo hæstv. fjmrh. kom og gerði grein fyrir fjárlagafrv. við 1. umr., afsakaði hann sig með því, að í frjárlagafrv. væru mikil óvissuatriði, vegna þess að hann gæti ekkert sagt um efnahagsmálin, þar sem engin afstaða væri enn tekin innan ríkisstj., til hverra ráða skyldi grípa í þeim efnum. Nú segir hæstv. forsrh. okkur í gær, að enn sé allt á huldu innan ríkisstj. um það, til hvaða úrræða ríkisstj. muni grípa í efnahagsmálunum.

Þegar 1. umr. fór fram hér um fjárlagafrv.. var hún miklu víðtækari og meiri þátttaka í henni af hálfu hv. þm. en lengi hefur tíðkazt af ástæðum, sem hv. þm, eru kunnar. En það var eitt, sem einkenndi þessa 1. umr. fjárl. öðru fremur, og það var, að ekki sízt var rætt um það, sem ekki var í fjárlagafrv., og það var mjög eðlilegt, eins og á stóð. Og nú, þegar við eigum að hefja 2. umr., þá er það eftirtektar verðast enn við fjárlagafrv., hvað ekki er í því. Ég tel, að undir slíkum kringumstæðum sé bæði óráðlegt, óhyggilegt og í raun og veru ekki þinglegt, að 2. umr. fari fram um fjárlagafrv., meðan engin vitneskja liggur fyrir um fyrirætlanir hæstv. ríkisstj. í efnahagsmálum.

Ég vil því leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að 2. umr. um fjárlagafrv. verði af þeim sökum, sem ég nú hef vitnað til. frestað og málið tekið út af dagskrá.