14.12.1972
Sameinað þing: 30. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1206 í B-deild Alþingistíðinda. (896)

1. mál, fjárlög 1973

Fram. 2. minni hl. (Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Ég vil byrja þessa umr. á því að þakka meðnm. mínum og þá sérstaklega formanni fyrir gott samstarf í fjvn. á hinum mörgu fundum, sem n. hefur haldið. Einnig er vert að þakka hagsýslustjóra, sem hefur mætt á fundum n. eins og fyrr og gefið okkur margvíslegar upplýsingar varðandi þær beiðnir, er fyrir liggja og afstöðu þarf að taka til. Á þessum fundum eru erindi rædd og útskýrð, og þar eiga sér ekki stað hörð pólitísk átök, eins og sumir kynnu að halda. Menn skýra sjónarmið sín og málin eru athuguð frá ýmsum hliðum.

Fjvn. kom fyrst saman, eins og drepið hefur verið á áður, upp úr miðjum okt. s.l., og hefur strangt fundahald staðið yfir, sérstaklega í s.l. viku, en þá voru fundir langt fram á kvöld. Undirnefndir hafa einnig starfað innan fjvn. í sambandi við úrvinnslu gagna við úthlutun á fjármagni til skóla, hafna og sjúkrahúsa. Ég átti ekki sæti í þessum undirnefndum. Þessar undirnefndir lögðu fram sundurliðaðar till. um það fjármagn, sem fer til viðkomandi málaflokka, en endanleg afgreiðsla var gerð á sameiginlegum fundi fjvn., þar sem allir sátu.

Eins og drepið hefur verið á hér á undan, þótti fjvn. rétt að tilkynna um tímasetningu varðandi skil erinda og færði þau tímamörk mjög fram miðað við venju undanfarinna ára. Nokkur árangur varð af þessari tilkynningu, og bárust erindi fyrr til rn. en venja hefur verið og fjvn. fékk þan síðan til sín mörg hver í sumar. Þrátt fyrir þetta eru enn erindi að berast, eins og formaður kom inn á og einnig síðasti ræðumaður, og það erindi, sem mörg hver fela í sér beiðnir frá rn. um jafnvel tugi millj. kr., og sjá allir menn, — og er rétt að undirstrika það, sem fram hefur komið hér nú og áður, — að slík vinnubrögð eru varla bjóðandi nokkrum aðilum, ef við eigum að vinna eðlilega að mati á þeim beiðnum, sem lögð eru á borðið hjá okkur.

Svonefnd undirnefnd fjvn., en þar eiga fulltrúar allra flokka sæti, hefur starfað nokkuð í sumar og tekið ýmis mál til meðferðar á fundum sínum. En rétt er að mínu mati að marka nokkuð ákveðið starfssvið fyrir þessa undirnefnd, svo að föst venja skapist um verksvið hennar, því að hún hefur í raun og veru mikilvægu hlutverki að gegna. Í samvinnu við hagsýslustofnunina hefur hún einnig möguleika á því að fjalla sérstaklega og nánar en ella yrði gert um ýmisleg rekstrarvandamál ríkisfyrirtækja, skipan þeirra og fjármagnsþörf. Hæstv. fjmrh. hafði á sínum tíma sem þm. í stjórnarandstöðunni einmitt bent á nauðsyn þess, að þessi mál verði tekin fastari tökum, og ég vænti þess, að hann heyri það og taki eftir því, að ég tel eðlilegt, að starfssvið sé mótað í erindisbréfi og þessi undirnefnd fjvn. fái raunverulega þá stöðu, sem er nauðsynleg eðli málsins samkv. N. hefur farið í nokkrar heimsóknir og séð og talað við starfsfólk um aðstöðu til vinnu í sumum ríkisfyrirtækjum. Þetta tel ég mikilvægt, bæði fyrir nm. og viðkomandi stofnun. Nauðsyn er á að skýra ýmsa hluti fyrir fjvn.-mönnum, og einnig tel ég æskilegt, að fjvn: menn eigi þess kost að ræða nánar við forstjóra fyrir hinum mörgu ríkisstofnunum en heimsóknartími á þingtíma og í vinnutíma n. gefur forstjórum þessara fyrirtækja möguleika á. Undirnefndin fjallaði um nokkra mikilvæga málaflokka í sumar og hefur séð nánari úttekt á þessum flokkum í skýrslu frá hagsýslustofnuninni. Ég vil hér t.d. nefna mötuneytisrekstur ríkisins, sem er að verða mjög viðamikill og mun kosta ríkissjóð marga tugi millj. á komandi árum. Ég tel nauðsynlegt að marka ákveðna stefnu varðandi þessi mötuneytismál, því fyrr því betra. Nú alveg á á næstunni á að taka hið nýja eldhús Landsspítalans í notkun, en heildarverð þess mun vera liðlega 100 millj. kr. með húsbúnaði og áhöldum. Í þessu nýja eldhúsi skapast ákveðnir möguleikar til þess að hafa með hendi matvæladreifingu til ýmissa annarra ríkisstofnana og spara þannig í raun ríkissjóði mikið fé, ef það skipulag yrði tekið upp strax. Fyrir liggur beiðni frá mörgum stofnunum um aðstöðu til að koma upp mötuneytum, og mikið vandamál er að leysa úr því fjárhagslega og þannig einnig að tryggja viðkomandi aðilum þann rétt, er kjarasamningar veita þeim til handa. þetta er raunar mál. sem þolir ekki mikla bíð. Þess vegna ræði ég það nú. Þótt það komi ekki beint inn á fjárveitingu næsta árs, þá er vitað, að ríkissjóður hefur hér vaxandi útgjöld, og nauðsyn er á að vekja athygli á þessu máli við þessar umr. að mínu mati.

Annað atriði, sem mikilvægt er að fjalla þegar um, er fyrirkomulag á tryggingum ríkiseigna og tryggingum ríkisstarfsmanna. Fyrir liggur nú allítarleg skýrsla um, hvernig þessum málum er háttað á vegum ríkisins, og það verður að segjast, að við fyrstu yfirsýn virðist manni hér ríkja hið mesta handahóf. Þetta er mál, sem þarf að taka fösum tökum sem fyrst og koma þessum rekstrarlið, sem nemur nokkrum tugum millj. fyrir ríkissjóð, í fastar skorður. Það er sem sé nauðsynlegt að móta hér heildarstefnu sem allra fyrst.

Um nokkra mikilvæga flokka í viðbót fjallaði undirnefnd í fjvn. í sumar, svo sem innheimtuþóknun ríkisstarfsmanna, fyrst og fremst sýslumanna og bæjarfógeta og tollstjóra hér í Reykjavík, en einnig um verkstæðismál ríkisins, ferðakostnað ríkisstofnana, skipulags og hagræðingarmál hjá Pósti og síma og húsnæðisþörf vissra þjónustustofnana á vegum ríkisins. Formaður fjvn. gat nokkuð ítarlega um þessa þætti hér áðan, og ég sé ekki ástæðu til að rekja þetta nánar. Ég vil aðeins undirstrika það, sem hann sagði hér, að nauðsyn er, að þessi mál séu tekin föstum tökum sem allra fyrst. Nauðsynlegt er einnig að ákveða skipulega kaup eða byggingu á húsnæði fyrir ríkið eða stofnanir ríkisins á hverju ári, en húsaleiga nemur nú um 30 millj. á ári, þó líklega eitthvað meira, ef miðað er við þær fregnir, sem heyrðust áðan frá síðasta ræðumanni varðandi Framkvæmdastofnunina. En hér í Reykjavík mun ríkið greiða rúmlega 20 millj. kr. á ári fyrir leiguhúsnæði. Það er oft gagnrýnt, að þjónusta ríkisins sé oft of dýr, óhentug og sein í vöfum. En ein forsenda fyrir því, að slík þjónusta geti verið eðlileg, eins ódýr og hægt er, en þó fullnægjandi, er, að starfsemin hafi yfir að ráða eðlilegum húsakosti. Í aths. við fjárlagafrv. á bls. 148 segir:

„Tekjuáætlun fjárlagafrv. er unnin af hag rannsóknadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins. Hún er miðuð við gildandi lög um tekjustofna ríkisins og spár um tekjur, verðmætaráðstöfun og innflutning á árunum 1972 og 1973. Skattvísitölu skal ákveða með fjárlögum. Ef miða hefði átt skattvísitölu við hækkun framfærslukostnaðar á árinu 1972 eina saman, hefði hún átt að hækka um 10 stig. Hins vegar tók ríkisstj. þá ákvörðun við gerð fjárlagafrv., að teknu tilliti til allra aðstæðna, að hækkun skattvísitölunnar að þessu sinni yrði 28 stig.“

Einnig er minnt á, að áfram séu í endurskoðun lög varðandi tekjuöflun ríkissjóðs og þessari endurskoðun sé haldið áfram, en er þó enn ekki lokið. Ég tók eftir því, að í framsöguræðu formanns var ekkert drepið á það, hvernig þessi mál stæðu, og mér leikur forvitni á að vita það af vörum fjmrh., hvað þessari endurskoðun skattal. líði, því að það er mjög erfitt, eins og ég mun koma að síðar og hefur komið hér fram hjá síðasta ræðumanni, að taka afstöðu til útgjaldaliða, ef við vitum ekkert um grundvallartekjuöflunarþætti ríkissjóðs. Þá segir enn fremur, að ekki sé ljóst, að hve miklu leyti hægt verði að miða tekjur ársins 1973 við þær breytingar, sem kunna að verða gerðar á tekjuöflun ríkissjóðs á þessu þingi. Við verðum því nú við 2. umr. fjárlaga 14. des 1972 að ræða fjárlagagerðina alla við algera óvissu, þrátt fyrir að öllum sé kunnugt og engum betur en hæstv. ríkisstj., að óraunhæft er að ganga út frá því, að þeir tekjustofnar, sem frv. byggir á, geti gefið ríkissjóði nægilegar tekjur til að mæta þeirri hækkun útgjalda, sem fyrirsjáanleg er á árinu 1973. Þá er það undirstrikað í frv., að höfð hafi verið fyllsta aðgæzla í útgjöldum ríkissjóðs og hækkun fjárlagafrv. sé fyrst og fremst vegna ákvarðana í kjarasamningum, í lögum og vegna aukinna verklegra framkvæmda. Þó hefur komið fram í ræðu hæstv. forsrh., að kaup allt hafi verið hóflegt og ástandið sé þannig, að ekki sé að vænta vandræða. Í ræðu hans, á bls. 38 í Alþingistíðindum, sem hann flutti hér sem stefnuræðu ríkisstj., segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Þegar litið er til efnahags þjóðarinnar, atvinnuástandsins, neyslustigsins og lífsafkomu fólksins, er enginn voði á ferð, þó að við yrðum að lækka ofurlítið seglin um stundarsakir.“

Það kom einnig fram í viðtali við hæstv. iðnrh. í útvarpinu, að þá er hann talaði um kaupmáttinn og það er undirstrikað í nál. meiri hl., að kaupmátturinn hefur aldrei verið meiri, og hann var svo mikill að mati iðnrh., að hann talaði um umframkaupmátt almennings og það þyrfti að draga úr þessum umframkaupmætti almenning mjög mikið, til þess að hæstv. ríkisstj. réði við þróun efnahagsmála. Einhvern tíma hefði nú hv. þm. talið það undarleg orð að tala um umframkaupmátt almennings í svo stórum stíl, að það væri eitt höfuðvandamál ríkisstj. Ég man eftir því á sínum tíma, að þáv. forsrh., Bjarni Benediktsson, talaði um, að sígandi lukka væri bezt. Hversu oft var ekki snúið út úr þessum orðum þá af þm., núv. ráðh. Magnúsi Kjartanssyni, í Þjóðviljanum á óbeinan hátt undir dulnefninu Austri? En það sannast nú, að sjálfur ráðh. og ríkisstj. öll mun reyna að hafa það að sannmæli, sem hæstv. forsrh. sagði, að sígandi lukka er farsæl og bezt. Það er sem sagt bezt að fara áfram með jöfnum og skynsamlegum hraða, en ekki að reyna að taka heljarstökk til að sýnast stór og mikill og til að reyna að efna loforð, sem voru gefin í harðri stjórnarandstöðu við þáv. ríkisstj. og þeir hafa engin tök á því að standa við, eins og rakið var hér vel áðan af síðasta ræðumanni, — að standa við margt af því, sem þá var sagt og lagt til að gert yrði.

Hæstv. forsrh. hefur sagt, launahækkanir á s.l. ári eða rúmlega það hafi verið hóflegar. Þó er það staðreynd, að varðandi vissa útflutningsframleiðslu hefur vinnutímastyttingin og launahækkunin komið þungt niður og þessar starfsgreinar eiga nú í miklum erfiðleikum og sjá fram á meiri og minni rekstrarvandræði á komandi ári. Einnig er það staðreynd, að marga fjárfestingarsjóði muni vanta stórfé. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því, að það gæti numið allt að 3 milljörðum hjá þessum fjárfestingarsjóðum, eins og síðasti ræðumaður var að drepa á, og skal ég ekki meta þá tölu, en hitt er augljóst, að hér vantar mjög mikið fé, sem sennilega má telja í milljörðum króna. Þá er það ein meginforsenda fyrir gerð þessara fjárl. að ganga út frá því, að kaupgreiðsluvísitalan skuli vera allt árið í 117 stigum, þrátt fyrir það að kjarasamningar geri ráð fyrir 6% kauphækkun 1. marz 1973, og þegar eru falin um 2 vísitölustig, sem þarf að bæta, og einnig þarf að halda áfram niðurgreiðslu á 5–6 stigum, sem gert var með brbl. frá I1. júlí á þessu ári. Ekkert fjármagn, ég segi: ekkert fjármagn er sett til hliðar í þessu skyni. Þetta eru óraunhæf vinnubrögð við ríkjandi aðstæður. Þegar allt dæmið er gert upp, er augljóst, að fjármagnsþörf vegna þessara aðgerða, niðurgreiðslna á vísitölu, þarfa fjárfestingarsjóða og annarra framkvæmda, hlýtur að nálgast 4 milljarða. Rétt áðan barst mér í hendur blað, Nýtt land, þar er þessari sömu skoðun haldið fram varðandi fjármagnsþörfina, og kemur það fram bæði í leiðara blaðsins og á forsíðu, að þó að vandinn sé mikill, þá sé hann að vísu ekki óleysanlegur,en engu að síður þurfi að útvega fjármagn, sem hljóti að nema á milli 3 og 4 milljarða króna. Ég vona því, að ég sé hér ekki að meta fjármagnsþörfina óraunhæft.

Þm. hafa að vísu fengið til sín nú frá svonefndri valkostanefnd skýrslu um horfur og markmið og leiðir í efnahagsmálum. Það er nú opinbert leyndarmál. að innan hæstv. ríkisstj. eru hörð átök einmitt vegna þeirra ábendinga, sem koma fram í þessari skýrslu, um leiðir út úr ógöngunum, og ekki er vitað, hver niðurstaða verður, hvort heldur ríkisstj. nær samstöðu um leiðir eða ósamstaðan leiði til þess, að hæstv. ríkisstj. verði að segja af sér og afgreiðsla fjárlaga lendi að nokkru leyti þess vegna í handaskolum. Þótt það væri freistandi að fara út í umr. um þær leiðir, sem koma fram í þessari skýrslu hjá valkostanefndinni, þá mun síðar gefast tækifæri til þess, og mun ég því ekki á þessu stigi málsins ræða hana miklu meira. Þó er vert að undirstrika það, að augljóst er, að viðskiptahalli , í yfirstandandi ári verður um eða yfir 4 milljarða og jafnvel meiri á næsta ári. Til þess að forða frá öngþveiti og rýrnun á gjaldeyrissjóði landsmanna hafa verið tekin löng erlend lán, sem vega eiga á móti þessum mikla viðskiptahalla, en þetta er nauðsynlegt, svo að ríkissjóður geti fengið miklar tekjur af innflutningi og hinni miklu þörf ríkisins fyrir tollatekjur sé fullnægt.

Mig rekur minni til þess, að sérstaklega af hálfu framsóknarmanna var mjög ráðizt á þáv. viðskmrh. vegna lántöku og vegna stefnu í viðskiptamálum og hversu glæfralega oft var siglt í því efni. En hæstv. ríkisstj. virðist nú hafa gleymt þeirri gagnrýni eða lagt hana niður í skúffu, því að hér hafa verulega verið auknar lántökur vegna brýnnar nauðsynjar. Þó hefur verzluninni verið gert óhægra um vik að vissu leyti, þannig að stutt vörukaupalán á mjög mörgum nauðsynjum hafa verið afnumin, og mér er kunnugt um það, að mörg kaupfélögin eiga við erfiðleika að etja í rekstri vegna þessa. Þau hafa notið bæði beint og í gegnum Samband ísl. samvinnufélaga góðs lánstrausts erlendis, og ég persónulega sé ekkert að því, — ég hef starfað hjá stóru kaupfélagi og séð um innkaup þar, — ég sé persónulega ekkert að því, að ef traustið er það mikið slíku fyrirtæki, að þau fái að njóta þeirra kjara, sem viðskiptaaðill erlendis vill bjóða þeim, þó að til stutts tíma sé. Hitt er svo eðlilegt, að ríkisstj. taki löng lán í ákveðnu skyni, í fjáröflunarskyni fyrir fjárfestingarsjóði, eins og gert hefur verið á þessu hausti, núna nýlega, vegna skipakaupanna í Japan, en þá voru teknar að láni 10 millj, dollara, um 900 millj. ísl. kr. til þess að það kæmi ekki fram á kaupverði skipanna, ef jenið hækkaði, og hinda skipakaupin í dollurum. Þar sem við fylgjum dollaranum með okkar stofngengi, þá sé ég ekkert athugavert við það, þó að vissu fyrirtæki, sem hefur það lánstraust og hefur það fjármagn til, sem nauðsyn er á, hagnýti sér skynsamleg og góð greiðslukjör erlendis frá.

Í sambandi við tekjuöflun eru einnig hugmyndir um hækkun á vini og tóbaki og jafnvel benzíni og söluskatti. Allt er þetta rætt. En það snjallræði mun hafa komið fram í huga- ráðamanna, að þessar hækkanir verði ekki látnar verka á kaupgjaldsvísitölu og þannig mundi reynast léttara fyrir ríkissjóð að halda henni í 117 stigum, þar sem áhrif verðhækkana frá þessum tekjuöflunarliðum muni þá ekki koma fram. Röksemdin fyrir þessu er sennilega sú, að þær auknu tekjur, sem ríkissjóður muni fá eftir þessum tekjuöflunarleiðum, muni verða settar að meira eða minna leyti í auknar niðurgreiðslur og þess vegna eigi hinn almenni borgari að geta sætt sig við slíkar ráðstafanir. En kaupgjaldinu er haldið í skefjum með þessu móti. Ég vil þó sérstaklega undirstrika það, sem gerðist í nóvember 1970, þegar þáv. ríkisstj. flutti frv. um verðlag og atvinnuöryggi, vegna þess að þá hækkaði hún álagningu á vín og tóbak og frestaði áhrifum tæplega tveggja vísitölustiga um hálft ár. Þá fóru forsvarsmenn launþega hér á Alþingi af stað og höfðu stór orð og harða gagnrýni hér uppi og töluðu um ósvinnu, um árás á frjálsan samningsrétt, og afleiðingin var mikið upphlaup á vinnumarkaðinum og verkföll. En nú á að gera miklu, miklu meira af þessu með stuðningi sömu manna, — eða kemur eitthvað annað fram? Fróðlegt verður að sjá, hvernig viðbrögðin verða nú hjá hinum ýmsu verkalýðsfélögum. Ég heyrði í hádegisútvarpinu, að Dagsbrún, stærsta verkalýðsfélag landsins, sem jafnan hefur verið í forustu um kjör verkalýðsins, muni halda fund í kvöld. Það verða margir, sem bíða spenntir eftir því að heyra þá ályktun, sem þaðan kemur, því að það vita allir, og það veit formaður Dagsbrúnar mætavel, hvað til stendur, og þess vegna er mjög fróðlegt að heyra hverju hann skýrir frá og hvernig viðbrögðin verða, í ljósi þeirra atburða, sem hér hafa gerzt, bæði áður hér á Alþingi í sambandi við svipaðar hugmyndir og nú, þótt í miklu minna mæli hafi verið. Hvort sem núv. hæstv. ríkisstj. velur skattahækkun í gegnum söluskatt, hækkun á vini eða tóbaki eða hækkun á benzíni eða þá hina óvinsælu, — að eigin sögn á sínum tíma, — hina óvinsælu gengisfellingarleið, og ef ég man rétt, þá kom hæstv. forsrh. inn á hana í útvarpí 25. okt. s.l., en tók þó fram, að það væri um persónulega skoðum að ræða, að ríkisstj. mundi ekki fara inn á gengisfellingarleiðina, og kom þetta raunverulega engum á óvart, ef menn muna eftir málefnasamningnum. Hins vegar eru menn með þær fréttir nú í þingsölum, að ákveðinn stjórnmálaflokkur hafi þó borið fram breytt viðhorf í þessu efni, og væri fróðlegt að heyra eitthvað um það, því að það skapar stóraukinn vanda í þjóðfélaginu að vera að tala um gengisfellingu dag eftir dag. E.t.v. er hægt að fá fréttir um gjaldeyriskaup í dag og í gær og fram að helginni og sjá hvað það hafi þýtt, en það er alvarlegt mál að ræða um gengisfellingu dag eftir dag og skapa aukna kaupþenslu.

Í aths. við fjárlfrv. á bls. 147 er tekið fram, að kappkostað sé að nýta fjármagnið sem bezt og hraða framkvæmdum verka, þannig að fjármagnið mundi nýtast sem bezt. Einnig segir, að í kjölfari fjárlagafrv. muni verða lögð fram till. um framkvæmdaáætlun fyrir árið 1973, og gert sé ráð fyrir, að afgreiðsla fjárlagafrv. og framkvæmdaáætlunarinnar fari saman á Alþingi, þar sem reynslan hefur sýnt, að nauðsyn beri til, að svo sé. Loksins í gær var hluti af þessari framkvæmdaáætlun lagður fram, þ.e. lántökuheimildir, og er ekki hægt að ræða það á þessu stigi, þar sem við höfum rétt séð það nú, en umr. verða auðvitað um þetta á eðlilegum tíma. En hvernig hefur þetta verið undirbúið? Það var lagt við 1. umr. fjárl., að fjárl. væru eins konar rammi, rammi án myndar. Því miður hafa aðeins verið dregnir vissir drættir innan í þennan ramma enn þá, en um heildarmynd er ekki að ræða og ekki er vitað, hvenær þjóðin fær að sjá slíka heildarmynd. Mér virðist næsta vonlítið, að unnt verði að leggja fram og ræða framkvæmdaáætlunina endanlega fyrir jól, þegar þetta er allt tekið saman sem ein heild. Hins vegar, ef pressa á umr. um framkvæmdaáætlunina í gegn á svo stuttum tíma, þá er hætt við, að við fáum ekki að vita, — nema hæstv. fjmrh. upplýsi það núna á eftir, — hvað líði endurskoðun skattalaga og hvað þau fela í skauti sínu. Annars fáum við ekki tækifæri til að gera okkur grein fyrir því, hvernig hæstv. ríkisstj. stillir upp heildartekjuöflun fyrir árið 1973. Það er því óraunhæft að vera með brtt. á þessu stigi a.m.k. við fjárlfrv., og við í Alþfl. eða ég sem fulltrúi hans í fjvn. ber ekki fram till. til útgjaldaaukningar vegna þessa ástands. Hins vegar geymi ég mér allan rétt í því sambandi, ef það kemur í ljós síðar, að hæstv. ríkisstj. hafi mótað þær leiðir, sem við getum séð, að tryggi eðlilegar tekjur fyrir árið 1973 án þess að íþyngja þjóðinni um of.

Það kemur einnig fram í aths. við fjárlfrv., að reiknað er með, að í byggingu hvers barna- og gagnfræðaskóla fari 4 ár eða meira. Það hefur komið fram á fundum fjvn., — og það var drepið á það í ræðu hér á undan, að væntanlegt er frv., sem breytir þessum tíma í 4 ár. Það hefur reynzt erfitt að framfylgja lögum um 3 ára byggingartímabil, þó að menn geti sennilega verið sammála um það, að æskilegt væri að hafa færri skóla undir, en hafa byggingartímabil hvers skóla styttra. Það er nú einu sinni svo, að í þm. er togað úr öllum áttum, bæði um fjárframlög til skólabygginga, í vegi, í hafnir, í sjúkrahús, og hver vill ekki reyna að verða við þeirri beiðni að reyna að hafa áhrif á innstreymi fjármagns í sitt kjördæmi, þótt það kostaði það, að byggingartími vegna minna fjárframlags verði einu eða tveimur árum lengri? Hæstv. ríkisstj. sér sig til neydda að fara út á þessa braut, þrátt fyrir að það sé lögð áherzla á hina miklu skipulagshyggju og framkvæmdaáætlun og nýting fjármagns eigi að vera sem mest og sem hagkvæmust. Til þess að tryggja, að ekki verði nú ríkjandi handahóf í fjármálum ríkisins, eins og verið hafði s.l. áratug, sbr. þeirra umsagnir þá, var sett á stofn Framkvæmdastofnun ríkisins, sem hefur haft með margvíslegar fjárlagaáætlanir og framkvæmdaáætlanir að gera, en því miður virðist eftirtekjan þrátt fyrir mikinn kostnað ekki vera sjáanleg enn svo að nokkru nemi. Þetta kann þó að standa til bóta.

Með brbl. um tímabundnar efnahagsráðstafanir, sem gefin voru út 11. júlí í ár, var auknum útgjöldum vegna þessara ráðstafana mætt með niðurskurði á fjárveitingum, og eins og segir í frv., að áætlaðri upphæð 400 millj. kr. Því miður hefur ekki endanleg sundurliðun komið fram um þessar 400 millj, eða hvort kostnaðurinn væri miklum mun minni eða eitthvað meiri. Ég hef áður beðið hæstv. fjmrh. að gera grein fyrir því, hvað þetta kostar, og í nál. mínu dreg ég fram ýmsa liði, sem voru teknir af framkvæmdafé í þessu skyni. En við fengum bréf frá rn. um sundurliðun þessara mála. Áður höfðum við setið á undirbúningsfundi varðandi skiptingu þessa fjármagns. Hins vegar ber ég ekki ábyrgð fyrir hönd Alþfl. á þessum niðurskurði, enda raunverulega ekki ætlazt til þess af hæstv. fjmrh., þó að hann kallaði okkur fulltrúa stjórnarandstöðunnar á fund, er hann gerði grein fyrir málinu, og er það mjög virðingarvert út af fyrir sig. Þá vil ég forvitnast enn einu sinni um það, hvað þessi brbl. kostuðu ríkissjóð raunverulega og hvort ekki þarf að taka fé annars staðar en þarna kemur fram.

Síðasti ræðumaður, 2. þm. Vestf., rakti nokkuð skiptingu þessa fjármagns, og það kemur fram í mínu nál., og þarf ég ekki að lesa það nánar upp, en stærstu liðirnir eru teknir úr framkvæmdum við hafnir, um 28 millj., frá skólunum 75 millj. og heilbrigðisþjónustu 71 millj., sem sagt um 174 millj. kr. Ég vil einnig vekja athygli á því, að við héldum fund í fjhn. Ed. í gær um þessi brbl., og þau hafa enn ekki verið afgreidd úr Ed. Þá gat formaður n. ekki upplýst um þennan kostnað. Ég vona, að ég sé ekki einn um það að hafa áhuga á að vita, hvað þetta kostaði ríkissjóð, því að við getum þá nokkuð spáð í það, hvað það muni kosta að halda áfram á sömu braut næsta ár. Auk þess að þurfa að greiða niður neyzluvörur hér innanlands til þess að halda vísitölunni í 117 stigum, má gera ráð fyrir, að ríkisstj. verði neydd til þess að greiða eitthvað aukalega niður vegna verðhækkana erlendis frá, sem alltaf eiga sér stað í meira og minna mæli, þannig að vænta má, að þessi upphæð nemi allmiklu fjármagni á komandi ári. Ég vil fá það fram, hvað hún hefur áætlað, að mikið fé fari í að halda vísitölunni óbreyttri, hvað mikið fjármagn þarf í fjárfestingarsjóðina, hvað mikið fjármagn þarf til þess að hjálpa útflutningsgreinum sjávarútvegsins og jafnvel hluta af landbúnaðinum einnig, og auðvitað má ekki gleyma iðnaðinum. Þetta er kjarni málsins við mótun áætlunar um tekjuöflun, lántöku og framkvæmdaáætlun fyrir næsta ár. Ég trúi varla öðru en að það liggi fyrir í a.m.k. grófum dráttum, hvað hver þessara þátta kostar, þ.e. að halda vísitölunni óbreyttri, hvað mikið fjármagn þarf í fjárfestingasjóðina, hvað útflutningsgreinar sjávarútvegsins eða raunverulega sjávarútvegurinn þarf og landbúnaðurinn og iðnaðurinn, ef á að muna eftir honum núna og tryggja eðlilega starfsemi hans. Hverjum stæði það raunverulega nær, miðað við fyrri rök og fyrri afstöðu til samvinnuhreyfingarinnar, en hæstv. fjmrh., forsvarsmanni Framsfl. hér í fjármálum, að muna nú eftir því, að langstærsti einstaki aðilinn í iðnaði á Íslandi er Samband ísl. samvinnufélaga með svo mikla starfsemi, t.d. í höfuðstað Norðurlands, að óhugsandi er að íþyngja þeim atvinnurekstri, gersamlega óhugsandi.

En þetta er nú sá höfuðverkur, sem stjórnarherrarnir verða að kljást við og virðist hafa ruglað þá allmjög í ríminu, ef dæma má eftir þeim fregnum, sem eru í blöðum og manna á meðal hér í þingsölunum. Ég vil engu spá um, hver verður niðurstaðan af þessum vangaveltum. Hitt er augljóst, að allar þær umr., sem hafa orðið um hugsanlegar efnahagsráðstafanir, eins og það er kallað, hafa skapað vissa spennu hjá almenningi, eins konar kaupæði, sem hefur sett margt úr jafnvægi núna síðustu daga og þannig aukið á vandann. Ráðleysið, hikið, ósamlyndið er þess vegna beinn hvati á þann vanda, sem fyrir er, og gerir illt verra. Þessir ágætu stjórnarherrar hafa þó á undanförnum árum, að eigin sögn, átt ráð við flestum eða öllum vanda, en nú, þegar þeir mæta eigin vanda, sem er að verulegu leyti heimatilbúinn, þá virðist þá skorta hvort tveggja í senn: hugkvæmni og áræði. Ég vil undirstrika það, að verðlag á öllum eða svo til öllum sjávarafurðum er mjög hagstætt og þess vegna hefðu ekki umtalsverðar ráðstafanir þurft að koma til, einkum ef þær hefðu verið gerðar strax í haust. Hins vegar hefur afli minnkað nokkuð, sumir segja frá 8–15% eftir skiptingu á tegundum bolfisks, en afurðaverð á öðrum tegundum sjávarafurða hefur hækkað mjög og magn aukizt verulega á loðnu. Þessi aflaminnkun út af fyrir sig er ekki svo stór, að hún setji allt þjóðarbúið á annan endann. Annað eins hefur skeð áður í aflaminnkun frá ári til árs. Hins vegar skapar þetta auðvitað nokkurn vanda. Ekki er hægt að draga fjöður yfir það, að slík aflaminnkun kemur misjafnlega niður, en til þess er nú líklega efnahagsstofnunin og öll skipulagshyggjan að ráða bót á því á ákveðnum svæðum og endurskipuleggja það atvinnulíf, sem á þar í erfiðleikum eða vandræðum. Engu að síður er heildarvandinn, sem við blasir, langtum, langtum meiri en þessi aflaminnkun gefur tilefni til. Nei, auðvitað er orsökin, þegar betur er að gáð, ósamlyndið, stjórnleysið, eins og ég drap á áðan.

Það væri ástæða til að rekja hér marga þætti varðandi lánheiðnir ýmissa stofnana, sem hafa lagt fram gögn til fjvn., en ég sé, að það er orðið framorðið og ég er aðeins þriðji ræðumaður í röðinni, svo að ég held, að ég sleppi því í þetta sinn og stytti því mál mitt, því að það munu áreiðanlega margir vilja komast að. Ég vil undirstrika það, sem kom fram í orðum núv. hæstv. fjmrh. við 2. umr. 1970, að nauðsynlegt er að marka ákveðna stefnu í sparsemi og skipulagi hjá ríkissjóði, — stefnu, sem er ekki þess valdandi að hvetja til verðbólgu. En því miður verður ekki annað sagt en að hæstv. ríkisstj. hafi sjálf með stefnu sinni verið hvati til verðbólgu, hreinlega sagt. Fari svo, að enn þurfi að hækka fjárl. um stórar upphæðir, sem allar líkur eru til, þá mun það verða staðreynd, áður en þessum umr. lýkur, þ.e.a.s. við 3. umr., að hæstv. ríkisstj. hefur á einu og hálfu valdaári sínu og með tveímur fjárlagafrv, tvöfaldað upphæð fjárl. Það hefði einhvern tíma verið talið afrek út af fyrir sig, en ég vona, að slík afrek eigi ekki eftir að endurtaka sig hér á landi.