15.12.1972
Neðri deild: 24. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1291 í B-deild Alþingistíðinda. (927)
111. mál, samningur um aðstoð í skattamálum
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 144 er frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að fullgilda samning fyrir Íslands hönd milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um aðstoð í skattamálum. Norðurlöndin hafa um langt skeið haft með sér samvinnu á mörgum sviðum, og hefur sú samvinna verið mjög vaxandi. Þannig hefur Ísland gert samninga við hvert hinna Norðurlandanna til þess að koma í veg fyrir tvísköttun. Norðurlönd önnur en Ísland hafa sín á milli gert samning um aðstoð í skattamálum. Fyrir nokkrum árum kom fram sú hugmynd, að öll Norðurlöndin gerðu með sér fjölhliða gagnkvæman samning um aðstoð í skattamálum. Hafa sérfræðinganefndir unnið að máli þessu og náðist samkomulag milli þeirra á þessu ári. Samkomulagið var undirritað í Stokkhólmi 9. nóv. 1972, og er þess vænzt, að samningurinn verði fullgiltur af aðildarríkjum á þessu ári, þannig að hann geti tekið gildi um næstu áramót. Aðstoðin, sem gert er ráð fyrir, er aðallega tvenns konar: gagnkvæm aðstoð við rannsókn skattamála og skipti á upplýsingum og aðstoð við innheimtu skatta. Auk þess er gert ráð fyrir, að aðstoðað verði við birtingu ýmissa skjala og skipzt á eyðublöðum í sambandi við skattamál. Samningurinn tekur til tekjuskatts og eignarskatts, bæði til ríkissjóðs og sveitarsjóða, ökutækjaskatta, virðisaukaskatta, söluskatta, almennra tryggingagjalda og annarra opinberra gjalda, sem ákvörðuð eru af skattstjórnarvöldum. Samningur þessi mun auðvelda ýmislegt í framkvæmd í skattamálum og skattaeftirliti.
Með þessu frv. er gert ráð fyrir að fullgilda þennan samning, sem prentaður er með frv., og eins og kemur fram í aths., ber nauðsyn til að gera það fyrir næstu áramót. Ég leyfi mér því að vænta þess, að hv. d. geti afgreitt þetta mál með verulegum hraða, þar sem tími er takmarkaður til málameðferðar hér, enda mun hér vera um að ræða mál, sem almennt mun vera samkomulag um og ekki þurfa sérstakrar athugunar af hálfu hv. Alþ.
Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.