24.10.1972
Sameinað þing: 6. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í B-deild Alþingistíðinda. (95)
13. mál, bændaskóli í Odda
Fyrirspyrjandi (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. á þskj. 13 til hæstv. landbrh. um bændaskóla í Odda. Hér á landi eru starfandi tveir bændaskólar, á Hólum og Hvanneyri auk garðyrkjuskólans í Hveragerði. Með l. nr. 55 1963 um bændaskóla er ákveðið, að hér á landi skuli vera þrír bændaskólar og einn þeirra skuli vera á Suðurlandi. Nú er svo komið, að bændaskólarnir á Hólum og á Hvanneyri eru fullsetnir, og hefur komið fyrir, að bændaefnum hefur orðið að neita um skólavist, þótt augljóst sé, að nútímabúrekstur krefjist staðgóðrar þekkingar í Íandbúnaði. Aðsókn að búnaðarskólunum hefur aukizt mjög síðari árin. Það er ekki langt síðan Hólaskóli var mörg árin aðeins rúmlega hálfsetinn. Á Hvanneyri var alltaf fullsetinn skóli með 60 nemendum, en á síðari árum hefur skólahúsnæði verið aukið þar, og eru nemendur um 90.
Þegar staðreyndin um aðsókn að skólunum lá fyrir, ákvað landbrn. í ársbyrjun 1971 að hefjast handa um stofnun bændaskóla á Suðurlandi, þar sem bezt hentar um staðarval með tilliti til samgangna, kostnað við byggingu skólahúss, rekstrar og fyrirkomulag skóla og hús. Jafnframt þessu skipaði rn. 5 manna n. til þess að gera till. til rn. um staðsetningu bændaskóla þessa í samræmi við téð sjónarmið. Í n. voru ráðuneytisstjórinn í landbrn. Gunnlaugur Briem, og var hann jafnframt formaður n., en auk hans voru í n. dr. Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri, Hermann Sigurjónsson bóndi, Raftholti, Magnús Jónsson ráðunautur, Selfossi, sem nú er skólastjóri á Hvanneyri, og Hjalti Gestsson ráðunautur á Selfossi. N. hraðaði störfum og skilaði áliti vorið 1971. Benti n. auk tveggja annarra staða á Odda á Rangárvöllum sem skólasetur. Rn. taldi bændaskóla á Suðurlandi bezt valinn staður í Odda og ákvað, að hann skyldi reistur þar. Dóms- og kirkjumrn. og biskup Íslands hafa samþykkt, að skólinn verði reistur í Odda og þar látinn í té nauðsynleg jarðarafnot til búskapar. Rn. skipaði n. til undirbúnings bændaskólans, m.a. til þess að gera kostnaðaráætlun um byggingar, vegaframkvæmdir, aukningu á húsum og annað í því sambandi, allt í samráði við rn. Formaður þessarar n. er húsameistari ríkisins, Hörður Bjarnason, og með honum eiga sæti í n. Magnús Jónsson núv. skólastjóri á Hvanneyri, Agnar Guðnason ráðunautur, Hermann Sigurjónsson, Raftholti. Á fjárl. yfirstandandi árs eru veittar 700 þús. kr. til undirbúnings bændaskóla í Odda. Í frv. til fjárl. 1973, sem liggur fyrir Alþ., er einnig gert ráð fyrir 700 þús. kr. fjárveitingu í þessu skyni.
Ekki er vitað, að n. hafi unnið mikið á þessu ári að undirbúningi skólans. Þarf það út af fyrir sig ekki að tefja framkvæmd málsins, ef nú þegar væri hafizt handa. Vitað er, að hér er um mikið undirbúningsstarf að ræða, sem talið er upp í erindisbréfi n. Gert hefur verið ráð fyrir, að skólabygging hæfist í Odda á árinu 1974. Þykir það verðugt að minnast á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar fyrsta skólans á Íslandi, sem var í Odda.
Það er nú langt komið að byggja upp Bændaskólann á Hvanneyri. Sömuleiðis er langt komið byggingu nýs skólahúss Garðyrkjuskólans á Reykjum og mikil uppbygging hefur átt sér stað á Hólum, þótt enn sé þar talsvert óbyggt. En með hliðsjón af því, að bændaskólunum, sem fyrir eru í landinu og byggingum Garðyrkjuskólans er senn lokið, virðist standa vel á, að hefja framkvæmdir á skólabyggingu í Odda á árinu 1974 með fjárveitingu eftir því, sem unnt reynist. Ég vænti þess, að hæstv. landbrh. geti gefið upplýsingar, á hvaða vegi undirbúningsstarfið er og vænti þess, að hann ljái málinu lið með því að hvetja n. til þess að hraða störfum.