16.12.1972
Sameinað þing: 32. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1329 í B-deild Alþingistíðinda. (962)

33. mál, efling Landhelgisgæslunnar

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég skal ekki efna til neinna deilna um þetta mál eða skyld mál. Aðalatriðið, sem fram hefur komið í sambandi við mál, sem snerta Landhelgisgæzluna, á þessu þingi er það, að hæstv. forsrh. sagði réttilega, að hann hefði tekið vel frv. okkar sjálfstæðismanna og gerði ráð fyrir, að það hlyti afgreiðslu á þessu þingi. Þetta þykir mér gott að fá áréttað, og mér þykir einnig vænt um að heyra yfirlýsingu hæstv. fjmrh. um það, að fyrir 3. umr. fjárl. verði tekið til athugunar að setja inn einhverja upphæð í sambandi við þarfir Landhelgissjóðs. Þetta tvennt vil ég leggja megináherzlu á.

Hitt vil ég ekki fallast á, að afgreiðsla allshn. sé með eðlilegum hætti, að öðru leyti en því, að það er rétt hjá hv. þm., formanni allshn., að afgreiðsla hennar er að því leyti með eðlilegum hætti, að þn. hafa lagt það í vana sinn að undanförnu að vera ákaflega seinar að afgreiða mál og alveg sérstaklega á fyrri hluta þingsins. Þetta er ekki sagt sérstaklega allshn. eða formanni allshn. til lasts, heldur á þetta við um allar þn. Ég vil beina því til forseta að hlutast til um það við þn., hverjir svo sem í þeim verða í framtíðinni, að vinnubrögðum verði verulega breytt að þessu leyti. Við höfum hvað eftir annað horfzt í augu við það, að frv. koma fram á fyrsta mánuði þingsins og eru ekki komin úr n. í fyrri d. síðari hluta vetrar og daga svo e.t.v. uppi eða koma í síðari d. á síðasta spretti þinghaldsins. Þetta á ekki svo að vera. Það á enginn einn sök á þessu, hvorki þm. né flokkur. Við eigum allir sök á þessu, en þetta er atriði, sem þarf að leiðr.

Það er ekki deilt um það að fylgja þessari till. um byggingu varðskips frá hæstv. ríkisstj. Það kemur fram hjá þm. Sjálfstfl. í fjvn., að þeir styðja till., svo að það á ekki að vera neitt ágreiningsatriði um afgreiðslu hennar. Forsrh. furðaði sig að vísu svolítið á því, ef hún gengi ekki greiðlega fram, og það er ástæða til þess, ef svo fer. En ég vil minna á, að það var flutt till. á síðasta þingi af mér og hv. 2. þm. Reykv. um byggingu varðskips, og nú segir hæstv. forsrh.: Það er ekki hægt að byrja bygginguna nema fá heimildina. Það var hægt að fá þessa heimild á síðasta þingi. En stjórnarliðið hirti ekki um að fá þessa heimild samkv. þeirri till. Það voru einnig í þeirri till. fyrirmæli frá Alþ. um áætlunargerð um framtíðaruppbyggingu Landhelgisgæzlunnar. Ég gerði fastlega ráð fyrir því, að eins og sakir stæðu, mundi Landhelgisgæzlan og dómsmrn. hafa forgöngu um það. Ég benti á, að til þess að gera áætlanir fram í tímann um uppbyggingu Landhelgisgæzlunnar, þyrfti hún að geta byggt á einhverjum vissum tekjum, því að tekjur Landhelgissjóðs eru ákaflega óvissar. Það kom fram hjá hv. 2. þm. Vestf., að ég held, að 1971 hafi björgunarlaun verið 7 millj. kr. fyrir Landhelgissjóðinn, og ég held, að þetta sé í sambandi við björgun á olíuskipi. Hitt árið, sem hann nefndi, voru björgunarlaunin innan við 2 millj, kr. Þegar farið er yfir þennan lista, sem ég hef ekki núna, en rekur aðeins minni til, sést, að björgunarlaunin voru stundum sama sem engin, nokkur hundruð þús. kr. eða innan við bað sum árin, svo að í þessu er mikil óvissa. Það er ekki hægt að byggja framtíðaráætlanir á slíku. Þess vegna þótti mér vænt um, þegar hæstv. forsrh. tók vel undir það í upphafi þings, að Landhelgissjóðurinn þyrfti einmitt að fá fastar og ákveðnar tekjur, eins og frv. okkar sjálfstæðismanna gerir ráð fyrir.

Það er ekki rétt hjá hv. 4. þm. Norðurl. e., að við gerum ráð fyrir því í okkar frv., að 25 millj. fari í uppbyggingu Landhelgisgæzlunnar í landi og 50 millj. í byggingu skips. Fyrri hlutinn er réttur. Þar er til heimild um að verja, ef þarf, allt að 25 millj. til uppbyggingar í landi, en hitt er til annarrar ráðstöfunar Landhelgissjóðs. Það er fleira en skip, sem á þarf að halda, og eins og öllum hv. þm. er kunnugt, væri mjög æskilegt að geta eflt flugflota Landhelgisgæzlunnar. Aðstaða Landhelgisgæzlunnar til þess að kaupa ný tæki þarf að batna, og sennilega þarf einmitt við gæzlu 50 mílna landhelginnar að hafa tæki staðsett bæði í landi, áður en langt um líður, og í skipunum. En miklu dýrari tæki þarf til staðsetningar skipa svo langt úti á sjó og er allt annars eðlis en þegar verið var að gæta 12 mílna landhelginnar. En heimildin í frv. til að verja fé til uppbyggingar í landi nemur allt að 25 millj., og þá er fyrst og fremst verið að tala um aðalstöðina hér í Reykjavík. En ég hef bent á, að það væri mjög æskilegt og nauðsynlegt, að Landhelgisgæzlan hefði aðstöðu í landi á Austfjörðum og Vestfjörðum, alveg sérstaklega, og þá fyrir flugvélar og þyrilvængju á þessum stöðum. með því móti gæti Landhelgisgæzlan gegnt því tvíþætta hlutverki sínu að gæta betur landhelginnar og veita þjónustu í hinum dreifðu byggðum, en það er eitt af hlutverkum Landhelgisgæzlunnar, því að þá væru flugvéla- og þyrluskýli á þessum stöðum. Þá gætu þyrlurnar haft náin tengsl við skip, sem eru fyrir austan og vestan. Það er oftast svo, að tvö af stóru skipunum eru kannske sitt hvorum megin, fyrir austan og vestan landið, en á öllum þremur stærri skipunum eru þyrluskýli, sem þyrlurnar, sem kæmu úr landi, gætu horfið til, ef veður og aðrar aðstæður eru slíkar.

Ég skal ekki tefja tímann að þessu leyti. Ég styð að sjálfsögðu þessa till. hæstv. ríkisstj., og sjálfstm. í fjvn. hafa einnig lýst sig henni fylgjandi. Ég vil mega treysta því, að frv. okkar sjálfstm. nái fram að ganga með þeim hætti, sem viðunandi er. Loks fagna ég því, að inn í fjárlfrv. verði fyrir 3 umr. bætt því, sem menn telja fært í fjárveitingu til þess að efla landhelgissjóðinn.