18.12.1972
Efri deild: 28. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1338 í B-deild Alþingistíðinda. (988)
131. mál, vegalög
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég skal ekki gera þetta frv. að umtalsefni í löngu máli, en mér þykir þó rétt að láta nokkur orð fylgja því við 1. umr. málsins. Ég held, að flutningur þessa frv. sé dæmi um þau handabaksvinnubrögð, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur á fjármálum landsins og málefnum ríkissjóðs, vegasjóðs og þeim málum raunar öllum, sem henni er trúað fyrir. Í síðustu viku þings fyrir jólafrí, er þessu frv. útbýtt hér í hv. d., frv., sem gerir ráð fyrir ekki lítilli hækkun á þeim gjöldum, sem þar er fjallað um. Það er fullyrt af hálfu hæstv. ráðh., að það standi í engu sambandi við önnur þau mál, sem hv. Nd. er nú að ræða um, eða fjármál ríkisins almennt. Ég staðhæfi, að þetta sé rangt, a.m.k. er það eina afsökunin, sem hæstv. ráðh. hefur fyrir því að koma með þetta frv. á síðustu stundu í þessari hv. d., að það standi í sambandi við önnur meiri og stærri mál. En tökum hæstv. ráðh. trúanlegan um, að þetta frv. standi ekki í sambandi við önnur fjármál ríkisins. Ef svo er ekki, hver er þá afsökun hæstv. ríkisstj. fyrir að koma fram með hækkun, sem nemur 25% eða meiru, á gjöldum, sem koma niður á öllum landslýð í einu eða öðru formi. Ég tek það fram, að með þessum orðum mínum tek ég ekki afstöðu til efnis frv. Ég tek ekki afstöðu til nauðsynjar þeirrar tekjuöflunar, sem frv. fer fram á, en bendi á óhæf vinnubrögð og þá óvirðingu, sem hv. þd. er sýnd með þessari framkomu.