18.12.1972
Efri deild: 28. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1342 í B-deild Alþingistíðinda. (995)
131. mál, vegalög
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Ég hef upplýst það, að hver einasti eyrir, sem leiðir af tekjuhækkun þeirri, sem þetta frv. fjallar um, fer í vegasjóð og er þannig óviðkomandi allri fjáröflun til annarra hluta. Þetta vildi ég undirstrika. Að sjálfsögðu hef ég ekki útreikninga á því, hvað lítrinn af benzíninu kosti, ef gengisbreyting sú, sem nú er verið að ræða í Nd., verður samþykkt. Ég hef enga aðstöðu til þess að svara þeirri spurningu og bið velvirðingar á því, að ég hef ekki svör við henni á reiðum höndum. En hækkunin á benzínlítranum, sem leiðir af þessu frv., er 2 kr. á lítrann, það liggur klárt fyrir, og aðrar breytingar get ég ekki reiknað út á þessari stundu eða gefið svör við. Það fer um það eins og önnur verðáhrif þeirrar lagasetningar, þegar hún hefur tekið gildi, á almennt verðlag í landinu. Ég held, að það sé ekki hægt að blanda því inn í afgreiðslu þessa máls, ég get a.m.k. ekki á þessu stigi gefið svör við því. Málið fer nú til athugunar í n. og það er að sjálfsögðu auðvelt fyrir n. að leita þar allra upplýsinga, bæði um þetta atriði og önnur, sem hún telur hlýða að fá upplýsingar um, eins og t.d. verð á benzíni í nágrannalöndunum. Það hef ég fyrir satt, að verðlagið á benzíni í nágrannalöndunum sé enn nokkru hærra en hér á landi.