06.12.1973
Sameinað þing: 31. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1118 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)
41. mál, fjárreiður stjórnmálaflokka
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Sem einn af flm. þessarar þáltill. langar mig að leggja hér nokkur orð í belg. Það er hins vegar leitt, að hv. formaður Sjálfstfl. er ekki staddur á þessum fundi, því að að honum er vikið í grg. sérstaklega og orð hans blandast óneitanlega hér inn í. En vitanlega hefur hann hér frítt lið stuðningsmanna, sem taka auðvitað fúslega hans málstað, og þarf sjálfsagt ekki undan því að kvarta, þótt það hefði verið æskilegra og skemmtilegra, að hann væri viðstaddur.
Þegar ég las Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins 29. sept. s. l. rifjaðist upp fyrir mér löngu liðinn atburður. Ég les sem sagt þetta umrædda bréf til þess að sannfæra mig um, að ég sé á réttri leið í pólitíkinni. Umrætt bréf er mér sannkallaður áttaviti. Snúi nál. þess í norður, er mér óhælt að halda í suður, ég tala nú ekki um vestur og austur. En atburðurinn, sem rifjaðist upp fyrir mér, var málfundur, þar sem ég mætti þeim Heimdellingum í fyrsta sinn. Hann var dýrmæt reynsla, þó að hún reyndi svo sem allhrottalega á hljóðhimnurnar. Ég var þar af veikum mætti að verja það, sem ég hélt og held enn í dag, að sé íslenskur málstaður, gegn öðrum málstað mér að miklu óþekktum þá, vestrænum málstað. Og ég hafði fengið ótvírætt að heyra það, að gagnvart svo göfugum og guðleglegum málstað var minn íslenski hreint píp, en það, sem verra var, minn málstaður var hreinlega ekki til í orðabók andmælenda minna. Málstaðirnir voru sem sé aðeins tveir, sá vestræni og austræni, og þrátt fyrir andheitar ræður þeirra var ég enn að burðast með minn einskis nýta málstað, og þá allt í einu var hrópað úr salnum: „Þú ert launaður af Rússum, Rússaþý, Rússaþý.“ Og fagnaðarópin, sem á eftir fylgdu, voru sannarlega vel lukkuð. Mér varð orðfátt, og fögnuðurinn jókst. Ég, sem hafði slegið félaga minn um lán fyrir kaffi á Skálanum fyrr um daginn, átti sem sé að eiga auð fjár austan frá Rússíá, og mér varð litið til andmælenda minna í nýjustu tískufötunum, strokinna og kembdra pabbadrengjanna úr Verslunarskólanum. Og ég gleymdi í framhaldinu hernum og rúblunum og því öllu saman og fór eitthvað að þruma um misrétti þjóðfélagsins; vald auðsins, þess sama auðs og ber uppi Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins, og öskrin úr salnum héldu mér heitum og vondum. Á endanum var ég víst farinn að tala um dollara og hermang, og þá baulaði hinn vestræni lýður svo, að ræðu minni var sjálflokið.
Þessi upprifjan þykir e. t. v. mörgum út í hött varðandi þá þáltill., er hér liggur fyrir. En þó er hún eðlileg fyrir mig persónulega hvað þetta mál varðar, sem hér er til umr. Ég man reyndar eftir fleiri svipuðum atvikum, sem öll undirstrikuðu það; hve auðugur ég í raun og veru var og sá flokkur, sem ég aðhylltist. Það var nú eitthvað annað en t. d. blessaður Sjálfstfl., sem alltaf átti í basli eða kröggum, og þurfti ekki annað en líta á opinber gjöld máttarstólpanna sumra til að sjá og sannreyna. Og þó kvað þessi fátæki flokkur alltaf vera á niðurleið fjárhagslega. Opinberir kveinstafir sama Reykjavíkurbréfs sannfærðu mig um það, að hér dygði ekki annað en allsherjarsamskot allra brjóstgóðra manna, og ég veit, að húsmæðurnar í Vesturbænum, þessar sem eru alltaf að skrifa hjartnæmar hugleiðingar í Morgunblaðið, hafa tárfellt og beðið guð að hjálpa sér og Morgunblaðinu og fátæka flokknum sínum og um leið sagt svolítið ljótt um forríkt Alþb. með allt Rússagullið, sem hlaut að vera meira en satt, því að það stóð jú og hafði staðið svo í Morgunblaðinu.
En þótt líta megi á skrif sem þessi með gleraugum nokkurrar gamansemi í bland, er hér á ferð alvarlegri hlutur en svo, að gamanmál ein hæfi. Því var það, að ég gladdist stórlega, þegar ég heyrði formann Sjálfstfl. fá spurningu um nákvæmlega þetta atriði í beinni línu nokkru seinna. Ég efaðist ekki eitt augnablik um það, að hinn prúði og að ég hef haldið hjartahreini formaður mundi nú taka af skarið, lýsa Morgunblaðstalið fleipur eitt, enda nýbúinn af ofurskiljanlegum ástæðum að firra flokkinn allri ábyrgð á því andlega fóðri Morgunblaðsins, sem sjálfstæðismönnum verður bumbult af. En nei og aftur nei. Hinn prúði maður tók undir hvert orð Morgunblaðsins í raun og veru og féll jafnvel í þá gryfju til viðbótar að útskýra þetta nánar og var svo dæmalaust seinheppinn að nefna fasteignir í því sambandi. Grunsamlegar fasteignir, sagði hv. formaður Sjálfstfl. Já, það var og. Mér þótti út af fyrir sig vænt um, að formanni Sjálfstfl. skyldi þykja fasteignir grunsamlegar. Mér hefur nefnilega svo sannarlega þótt ýmsar, já, margar fasteignir hér í borg býsna grunsamlegar, ekki af því að ég héldi, að þeim lægju að baki rúblur eða dollarar eða sterlingspund, heldur af því að ég vissi ekki annað en eigendur flestra þeirra háreistu og stærstu væru bláfátækir menn, menn, sem litu öfundaraugum til jafnvel hafnarverkamannanna, sem velta sér í allsnægtum yfirvinnunnar. Og ég gladdist í augnablikinu. En sú gleði varð skammvinn, því að á næsta augnabliki varð mér ljóst, að fasteignir skiptust í tvo flokka, góðar og vondar, grunsamlegar og ógrunsamlegar. Og það voru aðeins þær fasteignir, sem á einhvern hátt mátti tengja Alþb, og Alþb.-mönnum, sem voru grunsamlegar vegna annarlegs fjárstreymis. Hvers vegna ekki allar hinar? Hvers vegna ekki allar hallir hinna staurblönku heildsala, sem risið hafa á undanförnum áratugum? Fjármögnun þeirra er sem sé eðlileg, þótt hún verði ekki útskýrð með þessa heims sönnunum. Kannske við þurfum að leita til Akureyrar til að fá þær.
En hér hæfir ekki háð né gaman eitt, því að þótt enginn geti né eigi að taka mark á Morgunblaðinu, allra síst pólitískum skrifum þess, þá verður að taka mark á formanni stærsta stjórnmálaflokks á Íslandi, einkanlega þegar hann talar um fasteignir, því að allir vita, að þar talar sá, sem þekkinguna hefur. Hér hlutu því viðbrögð okkar Alþb.- manna að verða á einn veg: þann að flytja um það till., að hér verði svo sem unnt er sannað eða afsannað, hver fer með rétt mál, hver hefur yfir digrum sjóðum að ráða, hver hefur yfir stærstri flokksvél að ráða, mestum mannafla í sinni þjónustu. Allt er þetta mjög forvitnilegt og sjálfsagt, að allir viti. Og svo er það, sem mestu skiptir, hvort hér eru á ferð einhver grunsamleg peningaráð, einhverjar greiðslur til flokka, sem skylt eiga við mútur erlendra stórvelda, í raun hrein landráðastarfsemi samkv. því.
Það hefur verið á það bent, að í fyrirmyndarríki formannsins hefur nú um sinn ríkt nokkur ókyrrð vegna ýmissa vafasamra viðskipta þeirra lýðræðisvarða, sem þar tróna hæst. Þarlent fjármálavald hefur löngum verið æðsta vald í öllum málum, smáum sem stórum. Það verður að vona, að ekkert slíkt sé til hér á landi, því að ekkert veit ég ógeðugra en það, að auður, oft illa fenginn, ráði öllu í þjóðlífinu, og þar vona ég, að hv. formaður Sjálfstfl. sé mér hjartanlega sammála.
Þessi till. hlýtur einnig að koma inn á allar slíkar óeðlilegar greiðslur, þar sem vissir aðilar eða hagsmunahópar kynnu að vilja ráða framvindu og úrslitum mála, t. d. á Alþ. Rannsókn sú og eftirlit, sem hér er fram á farið, er reyndar sjálfsagt, og þyrfti e. t. v. víðar að taka til hendinni. Við Alþb.-menn höfum engu að leyna og ekkert að fela, og vonandi er svo um aðra einnig, þótt viðbrögð Morgunblaðsins bendi til nokkurs óróa út af tillöguflutningnum. En kannske sjá þeir eftir öllu saman, og væri það sannarlega mikils virði einnig, ef þeir góðu menn færu nú að taka upp á því að skammast sín. Þessi till. væri þá ekki til einskis, ef þeir Morgunblaðsmenn öðluðust þá dýrmætu lífsreynslu. En aðalatriðið er, að sem best megi koma í ljós, hvernig fjárhag og fjáröflun flokkanna er háttað, og það komi í ljós, hver þar er auðugur og hver fátækur. Margendurteknum áburði sjálfstæðismanna verður ekki betur svarað en með þessum hætti, haldleysi hans verður þá lýðum ljóst, og það er vel.