10.12.1973
Efri deild: 33. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1161 í B-deild Alþingistíðinda. (1050)

125. mál, læknalög

Frsm. (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á læknalögum nr. 80 frá 23. júní 1969. í aths. með frv. kemur fram, að Læknafélag Íslands óskaði breytinga í þá veru, sem frv. gerir ráð fyrir. Einnig kom fram jákvæð afstaða landlæknis til meginbreytingarinnar, en hana er að finna í 2. gr. frv., þar sem gert er ráð fyrir, að íslenskt ríkisfang sé ekki lengur skilyrði fyrir veitingu lækningaleyfis, en áður var þar aðeins um tímabundið lækningaleyfi að ræða. N. þykir þessi breyting sjálfsögð, ekki síst með tilliti til ástandsins í læknamálum okkar í heild.

Aðrar breytingar eru orðalagsbreytingar utan það, að niður er felld ein gr. núgildandi l., sem var úrelt orðin. N. mælir sem sagt einróma með samþykkt frv., en fjarverandi afgreiðslu málsins var hv. þm. Geir Gunnarsson.