10.12.1973
Efri deild: 33. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1162 í B-deild Alþingistíðinda. (1052)
45. mál, sameining Flugfélags Íslands og Loftleiða
Frsm. (Páll Þorsteinsson) :
Herra forseti. Á s. l. sumri var gerður samningur milli Flugfélags Íslands h/f og Loftleiða h/f um að sameina félögin undir eina yfirstjórn. Að þessu samkomulagi var nokkuð langur aðdragandi. Um alllangt skeið, áður en samkomulagið var gert, stóðu yfir viðræður milli fulltrúa Flugfélags Íslands og Loftleiða undir forustu trúnaðarmanna ríkisstj. um það að sameina flugfélögin. Þetta samkomulag var gert með það fyrir augum, að það mundi verða til þess að styrkja rekstrargrundvöll flugstarfseminnar í heild, en reynslan á undanförnum árum hafði sýnt, að hörð samkeppni félaganna á einstökum flugleiðum var þeim háðum óhagkvæm. Að vel athuguðu máli þótti nauðsynlegt í þessu sambandi að víkja frá almennum ákvæðum hlutafélagalaga og skattalaga um fá tiltekin atriði og láta um þau atriði gilda sérákvæði. Þess vegna voru gefin út brbl. um þetta efni 11. júlí 1973. Og á grundvelli þeirra hefur tekið til starfa yfirstjórn yfir bæði félögin, og hefur sú starfsemi verið í höndum þeirrar stjórnar frá og með 1. ágúst s. l. Með frv. þessu er leitað staðfestingar Alþ. á þessum brbl.
Í skýringum, sem fylgja brbl., er þetta tekið fram m. a.: „Stjórnir beggja félaganna og hluthafafundir hafa fallist á samkomulagsgrundvöll trúnaðarmanna ríkisstj., og sameinuð yfirstjórn beggja fél. tekur við starfseminni 1. ágúst n. k.,“ segir, þegar brbl. voru gefin út. „Hins vegar sé talið nauðsynlegt að veita nýju sameiginlegu félagi lagalegan starfsgrundvöll, þar sem félagsform það, sem æskilegast sé, vegna aðstöðu á alþjóðamarkaði, rúmist eigi að öllu leyti innan ramma gildandi hlutafélagalöggjafar. Einnig sé nauðsynlegt að veita félögunum tryggingu gegn margsköttun, sem af félagsforminu gæti leitt, og koma í veg fyrir þyngingu á skattabyrði hluthafa af eignarskatti, sem sameiningin gæti valdið, er arður af hlutafé fer niður út tilteknu lágmarki.“
Enn fremur segir, að „ríkisstj. telji, að hér sé um mikilvægt mál að ræða, sem stuðlað geti að því að tryggja flugsamgöngur íslendinga í framtíðinni, og sé það forsenda af hálfu flugfélaganna, að sameiginlegu félagi verði tryggður lögformlegur starfsgrundvöllur, áður en til stofnunar slíks félags komi: Þess vegna beri brýna nauðsyn til að leysa málið með setningu brbl.
Í 1.–3. gr. frv. felast sérákvæði, þar sem vikið er frá almennum ákvæðum hlutafélagalaga, en í 4–6 gr. frv. felast sérákvæði í sambandi við skattframtöl og um úthlutun jöfnunarhlutabréfa.
Eins og mál þetta liggur fyrir, er ljóst, að nauðsynlegt var að dómi ríkisstj. og þeirra manna, er á hennar vegum höfðu forustu um, að samkomulag milli flugfélaganna var gert, að veita flugfélögunum þá tryggingu, er í ákvæðum þessa frv. felst. Einnig er ljóst, að ákvæði frv. eru flest þegar komin til framkvæmda. Samgn. d. leggur því einróma til, að frv. þetta verði samþykkt óbreytt.