10.12.1973
Efri deild: 33. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1163 í B-deild Alþingistíðinda. (1056)

139. mál, tollskrá

Flm. (Jón Árnason) :

Herra forseti. Ég hef á þskj. 183 leyft mér að flytja frv. til l. um breyt. á l. nr. 1 11. febr. 1970, um tollskrá o. fl. Frv. það, sem hér um ræðir, felur það í sér að til viðbótar því, sem upp er talið í 85. kafla tollskrárl., tölul. 85 15 33, komi talstöðvar til skipa.

Eins og fram kemur í grg. fyrir frv., er fyrir hendi endurgreiðsluheimild á aðflutningsgjöldum af vélum, vélahlutum o. fl., ef heildarkostnaður þess, sem um er að ræða, nær 100 þús. kr. eða meira. Undir þennan lið falla m. a. talsstöðvar til skipa.

Nú er það svo, eins og einnig kemur fram í grg. fyrir frv., að með aukinni tækni hefur tekist að framleiða talstöðvar fyrir minni báta, sem kosta undir 100 þús. kr. Með hliðsjón af því og einnig með tilliti til þess öryggis, sem í því er fólgið að hafa talstöðvar í öllum fiskibátum, jafnt stórum sem smáum, er hér um mikið nauðsynjamál að ræða.

Það er öllum kunnugt, hve oft hefur tekið langan tíma að finna minni báta, sem saknað hefur verið. Í flestum tilfellum er það vegna þess, að umræddur bátur hefur ekki haft talstöð til þess að tilkynna um staðsetningu sína. Það er því miður svo að talstöðvar vantar í allt of marga smábáta, sem fiskveiðar eru stundaðar á, og það er því brýn nauðsyn, að hið opinbera geri allt, sem í þess valdi stendur, til þess að auðvelda sjómönnum að afla sér þessara þýðingarmiklu öryggistækja.

Ég sé, að hæstv. ríkisstj. Hefur í þessu augnabliki látið leggja á borðin hjá okkur nýtt frv. til l. um tollskrá. Í því frv. er enn sem fyrr gert ráð fyrir því, að aðflutningsgjöld af talstöðvum, öðrum en neyðartalstöðvum, sem notaðar eru í gúmmíbjörgunarbáta, verði í tollflokki með 35%.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til orðlengja frekar um þetta mál. Ég vænti þess, að hv. þm. sé ljóst, að hér er um mikið nauðsynjamál að ræða, og vilji því veita málinu brautargengi.

Ég vil að svo mæltu óska þess, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.