10.12.1973
Efri deild: 33. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1163 í B-deild Alþingistíðinda. (1058)
146. mál, kaupstaðarréttindi til handa Eskifjarðarhreppi
Flm. (Helgi F. Seljan) :
Herra forseti. Á þskj. 197 höfum við hv. 3. þm. Austurl. leyft okkur að flytja frv. til l. um kaupstaðarréttindi til handa Eskifirði í Suður-Múlasýslu. Að baki standa einnig allir þm. Austurl. í Nd. Frv. þetta er flutt að beiðni hreppsnefndar Eskifjarðarhrepps, sem þegar í fyrra sneri sér til þm. Austurl. og óskaði eftir því, að þeir flyttu frv. þessa efnis. Þm. Austurl. töldu þá rétt að bíða átekta og kanna, hvernig mál stæðu varðandi þá endurskoðun dóms- og héraðaskipunar, sem boðuð hefur verið, svo og endurskoðun núgildandi sveitarstjórnarlaga. Nú hefur það hins vegar gerst, að í Nd. hafa verið flutt þrjú lagafrv. um kaupstaðarréttindi til handa Seltjarnarneshreppi, Dalvíkurhreppi og Bolungarvík, og þótti þm. Austurlands þá einsýnt að koma Eskifirði inn í myndina, þótt undirtektir dómsmrh, í Nd. bentu til þess, að betur þyrfti að málum að huga, áður en farið væri í stofnun nýrra kaupstaða. Á hinn bóginn hefur það svo gerst einnig, að í því fjölmenna hreppsfélagi, Selfossi, höfnuðu íbúarnir því, að aflað væri heimildar til kaupstaðarréttinda fyrir Selfoss. Það mun enda mála sannast, að mjög skiptar skoðanir eru um það í hinum einstöku sveitarfélögum, sem fjölmennust eru, hvort afla skuli kaupstaðarréttinda eða ekki. Fer það mjög eftir því, hvaða kosti og galla menn telja því samfara og þá einkum hvorir muni vega þyngra.
Fyrir ósk Eskfirðinga um kaupstaðarréttindi liggja vissulega sérstakar og um margt réttlætanlegar orsakir. Með auglýsingu konungs 18. ágúst 1786 um afléttingu einokunar og stofnun 6 íslenskra kaupstaða öðlaðist Eskifjörður kaupstaðarréttindi. Á 175 ára afmæli þessa merkisatburðar samþykkti hreppsnefnd Eskifjarðarhrepps að gera tilraun til að endurheimta þessi réttindi. Það er kannske alveg sérstaklega vegna þessarar merkilegu sögu, sem okkur þm. þykir eðlilegt að flytja frv. þetta, þó að kaupstaðarréttindi nú séu í raun um margt allt önnur en þau voru fyrir nær 200 árum. Ef grannt er skoðað, voru þau vitanlega þá margfalt mikilvægari og áhrifameiri en þau eru nú, þó að réttarstaðan sé hins vegar ólík. Það hlýtur því að teljast áhuga- og metnaðarmál Eskfirðinga að öðlast kaupstaðarréttindi með tilliti til þessarar merku sögu, sem staðurinn á.
Eskifjörður er nú mjög vaxandi staður, og á næsta ári mun íbúafjöldi hans fara yfir 1000. Atvinnuþróun er þar hagstæð og uppbygging mjög ör. Í grg. er bent á stöðu sveitarfélagsins gagnvart því opinbera. Staðurinn er um margt þjónustumiðstöð. M. a. er aðalútibú Landsbankans á Austurlandi þar, og fleira mætti telja. Alveg sérstaklega er rétt að staldra við þá staðreynd, að sýslumaður Suður-Múlasýslu situr á Eskifirði, og í frv. er gert ráð fyrir, að hann verði einnig bæjarfógeti á Eskifirði. Kostnaðarauki af þessum ástæðum, sem oft er nefndur sem hindrun fyrir kaupstaðarstofnun, er því hverfandi og því engin mótmæli til staðar af þessari ástæðu.
Við flm. þessa frv. höfum ýmis frekari rök fyrir flutningi þess, en hér skal látið staðar numið.
Verði farið að veita nýjum sveitarfélögum kaupstaðarréttindi, hlýtur Eskifjörður að koma framarlega í þeim hóp, og skal minnt á þá fornu sögu, sem til grundvallar liggur áhuga og óskum þeirra Eskfirðinga. Hins vegar kann svo að fara, að hér á verði engin breyting gerð að svo stöddu vegna þeirrar heildarathugunar á stjórnkerfi sýslu- og sveitarfélaga, sem á var minnst, og hljótum við flm. þá að una því gagnvart Eskifirði, eins og aðrir verða að gera gagnvart sínum sveitarfélögum. Hitt legg ég áherslu á sem óhæfu, ef hreyfing verður á að ráði um fjölgun kaupstaða, ef Eskifjörður, einn hinna 6 fornu kaupstaða, yrði ekki þar með. Því er frv. þetta flutt.
Ég vil svo, herra forseti, leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. félmn.