10.12.1973
Neðri deild: 38. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1168 í B-deild Alþingistíðinda. (1064)
135. mál, umboðsmaður Alþingis
Forsrh. (Ólafar Jóhannesson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir um umboðsmann Alþingis á þskj. 173, er samið samkv. fyrirmælum Alþingis. Hinn 16. maí 1972 samþ. Alþingi svo hljóðandi þál. um undirbúning löggjafar um embætti umboðsmanns Alþingis:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta undirbúa löggjöf um stofnun embættis umboðsmanns Alþingis. Skal hliðsjón höfð af sambærilegri löggjöf annarra þjóðþinga á Norðurlöndum. Frv. þessa efnis skal lagt fyrir næsta reglulegt Alþingi“.
Sigurði Gizurarsyni hrl. var falið að semja það frv., er þál. fjallaði um. Er þetta frv. hans verk, nema hvað fáeinar breytingar voru gerðar á því í samráði við rn. Hin ýtarlega grg., sem frv. fylgir, er samin af Sigurði Gizurarsyni, og má segja, að henni til viðbótar sé ekki þörf á ýtarlegri frumsögu. Mun ég því ekki að svo stöddu hafa um frv. mörg orð. En það ber sannarlega ekki að skilja svo, að ég telji ekki um merkilegt mál að ræða.
Það má segja, að uppruni embættis umboðsmanns sé á Norðurlöndum. Það er að vísu langelst í Svíþjóð, en þar var hliðstætt embætti, sem heitir að vísu öðru nafni, sett á fót þegar árið 1809, og það var gert samkv. 96. gr. sænsku stjórnarskrárinnar á þeim tíma, og síðan hefur þessi umboðsmaður í Svíþjóð, eða justitieombudsmann, eins og hann heitir á sænsku máli, starfað þar, einn eða fleiri, og hafa getið sér þar gott orð. Þessi embætti hafa þar yfirleitt verið skipuð merkum lögfræðingum, og er talið, að þetta embætti og starf hafi verið í góðu áliti þar og gert gagn, en án þess þó, að þessi starfsemi vekti um langa hríð sérstaka athygli utan Svíþjóðar, enda er stjórnarkerfið þar nokkuð á annan veg upp byggt en t. d. í Danmörku og Noregi.
Þegar Finnar stofnuðu lýðveldi og settu sér stjórnarskrá, tóku þeir sænska stjórnarhætti til fyrirmyndar, og þess vegna tóku þeir upp í sína stjórnarskrá ákvæði um umboðsmann ríkisþingsins 1919, eða rúmri einni öld síðar en embætti umboðsmanns var sett á fót í Svíþjóð.
Það voru svo Danir, sem næst settu á fót embætti umboðsmanns þjóðþingsins, en eftir að styrjöldinni lauk var stjórnarskrá Danmerkur tekin til endurskoðunar og sett niður mikil nefnd sérfræðinga og annarra til að endurskoða stjórnarskránna, og sú n. endurskoðaði jafnframt ýmislegt í danskri stjórnsýslu og skilaði mjög ýtarlegum ályktunum um þetta efni. Í sambandi við stjórnarskrárendurskoðunina var horfið að því ráði að baka upp í hina nýju stjórnarskrá, sem öðlaðist gildi 1953, sérstakt ákvæði um umboðsmann þjóðþingsins. Það ákvæði og sú löggjöf, sem sett var samkv. stjórnarskrárákvæðinu í Danmörku, er að vísu nokkuð á annan veg en þær reglur, sem gilda um þetta embætti í Svíþjóð, enda eru stjórnarhættirnir og stjórnkerfið talsvert annað í Danmörku en í Svíþjóð. Umboðsmaður þjóðþingsins í Danmörku tók svo til starfa 1954, og í það valdist merkur og þekktur lögfræðingur, m. a. okkur Íslendingum að góðu kunnur, Stephan Hurwitz, prófessor, og má segja, að hann hafi átt sinn mikla þátt í því að hefja þetta starf til þess vegs, sem það hefur hlotið. En einmitt til Danmerkur hafa ýmis ríki, sem síðar hafa horfið að því ráði að setja á stofn hliðstætt embætti, sótt fyrirmynd, svo sem nánar er rakið í athugasemdum með þessu frv.
M. a. voru það Norðmenn, sem fetuðu í fótspor Dana og lögfestu umboðsmannstilhögun hjá sér, og tók norski umboðsmaðurinn til starfa árið 1963. Hlutverk hans er í aðalatriðum svipað og hins danska. Það mun síst of mælt, að starfsemi þessi hafi gefið sérlega góða raun í Danmörku og Noregi.
Við samningu þess frv., sem hér liggur fyrir til umr., hefur einkum verið stuðst við hinar dönsku og norsku reglur. Samkv. frv. á umboðsmaður Alþingis að vera trúnaðarmaður Alþingis, og er honum ætlað það hlutverk að hafa eftirlit með stjórnsýslunni og veita stjórnvöldum aðhald og vera borgurunum til halds og trausts, ef þeir telja rétti sínum hallað af embættis- og sýslunarmönnum, eða eins og það er orðað í 4. gr. frv.:
„Hlutverk umboðsmanns Alþingis er að kappkosta að tryggja góða opinbera stjórnsýslu og að stjóravöld heiti ekki nokkurn mann rangindum.“
Einstök ákvæði frv. eru svo samin með hliðsjón af þessu hlutverki og markmiðinu, sem stefnt er að. Í samræmi við það er að sjálfsögðu eðlilegt, að Alþingi sjálft kjósi umboðsmanninn og að kjör hans gildi um tiltekinn tíma. Er um það ákvæði í 1. gr. frv. Þar er einnig að finna ákvæði um starfsgengisskilyrði hans. Eru þau hin sömu og gilda um hæstaréttardómara, enda skal hann hafa sömu launakjör og þeir, sbr. 2. gr. Í 2. gr. er einnig ákvæði um sérstaka þingkjörna n., sem á að fylgjast með starfsemi umboðsmannsins og fjalla um málefni hans.
Í 6. gr. er svo fyrir mælt, að umboðsmaður skuli bæði fjalla um opinbera sýslu ríkis og sveitarfélaga með þeim takmörkunum, sem þar segir og ég fer ekki nánar út í hér, en það er sérstök ástæða til þess að undirstrika það, að vald umboðsmannsins nær einnig til sýslusveitarfélaga.
Í 7. gr. eru fyrirmæli um það, með hverjum hætti mál geta komið til kasta umboðsmannsins. Það getur verið bæði samkv. kæru og eins getur hann látið mál til sín taka að eigin frumkvæði. Megineinkennið á þessu er, að það er ekki sérstaklega formbundið.
8. gr. fjallar um skyldu til að láta umboðsmanni í té upplýsingar og um rétt hans til þess að afla upplýsinga. Enn fremur er í 9. gr. mælt fyrir um rétt hans til aðgangs að skrifstofum og vinnustofum o. s. frv. í 11. gr. er kveðið á um þagnarskyldu hans. Í 12. gr. er svo fjallað um það, hver málslok geti orðið hjá umboðsmanni Alþ., og fer ég ekki að telja það upp, en þau geta sem sagt orðið með ýmsum hætti, eins og þar er gerð grein fyrir . Í 14. gr. eru ákvæði um skýrslu umboðsmanns til Alþ.
Um einstakar gr. frv. skal ég ekki fara fleiri orðum, en leyfi mér að vísa til aths. við þær. Um það almennt, hvaða hlutverk umboðsmanni Alþ. er ætlað, vil ég sérstaklega vísa til aths. á bls. 5–6 og bls. 9–11 í aths., og er ekki ástæða til að endursegja hér það efni, sem þar er að finna.
Vissulega eru aðstæður hér hjá okkur að ýmsu leyti aðrar en hjá fjölmennari þjóðum og jafnvel hjá okkar nágrannaþjóðum. En ég er ekki í vafa um, að stofnun umboðsmannsembættis mundi á ýmsan hátt leiða til bættrar stjórnsýslu og horfa til réttaröryggis fyrir þegnana. Fyrir slíkt er mikið gefandi. Hinu er ekki að leyna, sem Alþ. verður auðvitað einnig að hafa í huga og meta, að hér er um stofnun nýs embættis að ræða, sem hafa mun í för með sér verulegan kostnað. Ég tel því mjög eðlilegt, að Alþ. gefi sér góðan tíma til að athuga þetta mál. Ég persónulega álít eðlilegt, að þn. sú, sem fær þetta mál til meðferðar, leiti umsagnar ýmissa aðila, bæði stjórnarvalda og fyrirsvarsmanna almannasamtaka, og ég tel ekkert óeðlilegt, þó að um jafnmikilvægt nýmæli í lögum og hér er um að ræða sé fjallað á tveim þingum, en það verður auðvitað Alþingis að ákveða, hversu skjótt það vill afgreiða þetta mál.
Ég verð svo að benda á í sambandi við 15. gr., að þar hafa mistök átt sér stað að því leyti, að þar, sem á að kveða á um gildistökudaginn, er spurningarmerki. Það var ætlunin, að þar stæði 1. janúar 1975. Ég verð að láta starfsmönnum Alþ., eftir að ákveða, hvort þeir telja nauðsyn á að endurprenta frv. þess vegna eða hvort þeir telja, að þetta sé hægt að leiðrétta í þingtíðindum án þess, eða hvort þetta megi svo standa og n. ákveði gildistökudag, eftir því sem henni sýnist við eiga.
Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að leggja til, að frv. sé vísað til 2. umr. og hv. allshn.