11.12.1973
Sameinað þing: 32. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (1084)
378. mál, sala á tækjum til ölgerðar
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson) :
Herra forseti. Í 7. gr. áfengislaga, nr. 82 1969, segir:
„Bannað er að brugga á Íslandi eða búa til áfenga drykki eða áfengisvökva og gera drykkhæft það áfengi, sem er eða gert hefur verið óhæft til drykkjar.“
Hvað telst áfengi, er skilgreint svo í 2. gr. áfengisl.: „Áfengi telst samkv. l. þessum hver sá vökvi, sem meira er í en 21/4% af vínanda að rúmmáli. Duft, kökur og annað, sem þau efni eru í, sem sundur má leysa í vökva og hafa nefndan áfengisstyrkleika, skal fara með sem áfengan drykk.“
Þá segir í 8. gr. áfengisl.: „Upptæk skal gera og ónýta öll áhöld, sem nota á eða hafa verið notuð við bruggun eða tilbúning áfengra drykkja eða til þess að gera drykkhæft það áfengi, sem ódrykkhæft var. Áfengi það, sem búið hefur verið til eða aftur gert drykkhæft, skal og upptækt ásamt ílátunum.“
Samkv. framansögðu er mönnum heimilt að búa til öl hér á landi, enda fari vínandamagnið ekki upp fyrir 2–4% að rúmmáli. Tilbúningur sterkara öls varðar samkv. 36. gr. áfengisl. sektum, 5–50 þús. kr., og skal sökunautur enn fremur sæta fangelsi, ef áfengið hefur verið ætlað til sölu eða veitinga fyrir borgun og brot er ítrekað eða miklar sakir eru að öðru leyti. Það er tilbúningurinn sem slíkur, sem er refsiverður. Hins vegar víkja lögin ekki að dreifingu leiðbeininga um tilbúning áfengis. Að því er varðar upptöku, beinist hún einnig að tækjum, sem nota á eða hafa verið notuð við tilbúning áfengisins samkv. 8. gr. áfengisl., svo sem áður er greint frá. Þarf því að liggja fyrir, að tækin eigi að nota til að brugga sterkari drykki en leyft er. Ef ekki er ætlun að búa til sterkari drykki en nemur 21/4% vínanda að rúmmáli, varðar það ekki viðurlögum samkv. áfengislögunum.
Á s. l. vori, eða í maí, vakti áfengisvarnaráð athygli dómsmrn. á auglýsingum, sem lægju frammi í ýmsum verslunum, og að með þessum pésum sé stefnt að því að kenna almenningi bruggun áfengra drykkja og stuðla að slíkum verknaði, enda tækin og hráefnið, sem auglýst eru til slíkra hluta, komin erlendis frá. Virtist augljóst, að hér væri stefnt að brotum á 7. gr. áfengisl., og samkv. 8. gr. l. mundi eiga að gera tæki þau, er hér um ræðir, upptæk, eða ónýta þau. Áfengisvarnarráð benti á, að í Noregi væri bruggun í heimahúsum orðin félagslegt vandamál. Áfengisvarnaráð fór þess á leit við rn., að gripið yrði til hæfilegra ráðstafana vegna þessa.
Nokkru áður hafði rn. fengið auglýsingapésa þessa í hendur og sent Saksóknarembættinu til fróðleiks, en eigi var þá talinn grundvöllur til aðgerða vegna þessa.
Svo sem rakið var áður, er einungis tilbúningur áfengis ólöglegur, en sönnun fyrir slíkum ásetningi virtist ekki liggja fyrir. Ljóst mun þó, að með umræddum efnum og tækjum mun mega búa til sterkara öl en heimilt er að búa hérlendis. Með efnum þessum munu samkv. upplýsingum innflytjenda hafa fylgt leiðbeiningar með límmiðum á hverri vörueiningu, þar sem gerð er grein fyrir ákvæðum áfengisl. um þetta efni, og auk þess leiðbeiningar um notkun nákvæmra mælitækja til að fyrirbyggja óafvituð mistök. Ráðuneytið hefur sent Saksóknara upplýsingar um tæki þessi og efni til athugunar, og hefur hann nú sent málið Sakadómaraembættinu til nánari rannsóknar, bæði að því er varðar gerð tækja og efna og með tilliti til þeirra leiðbeininga, sem með þeim fylgja. Ég get gert kunnugt, hvernig bréf saksóknara til sakadómara hljóðar:
„Jafnframt því að senda Sakadómi Reykjavíkur ljósrit af bréfi áfengisvarnaráðs, dags. 17. maí s. l., ásamt fylgiskjölum þess bréfs, sem hingfremur ljósrit af bréfi Hagplasts, dags. 22. nóv. s. l. l., ásamt fylgiskjölum þess bréfs, sem hingað bárust með bréfi dómsmrn., dags. 23. þ. m., allt varðandi áhöld og efni til ölgerðar, sem Hagplast flytur til landsins og auglýsir sem slík, er þess krafist, að mál þetta sæti rannsókn með hliðsjón af ætluðu broti á áfengisl., nr. 82 1969, einkum 7. gr., af hálfu forsvarsmanna Hagplasts. Einkum er þess óskað, að aflað verði álits kunnáttumanna á notagildi þessara tækja til áfengisgerðar, svo og um innihald þeirra efna, sem boðin eru til sölu í þessu sambandi. Að öðru leyti óskast málið rannsakað, svo sem efni standa til og tilefni kunna að gefast undir rannsókn málsins. Málið óskast svo endursent að rannsókn lokinni.“
Ég vona, að þetta gefi upplýsingar um það, hverjar aðgerðir hafa verið gerðar í þessu efni af dómsmálayfirvaldanna hálfu.