11.12.1973
Sameinað þing: 32. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1209 í B-deild Alþingistíðinda. (1113)

128. mál, bygging leiguíbúða á vegum sveitarfélaga

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. ráðh. fyrir góð og greið svör og vil ekki hafa um þetta fleiri orð annað en það, að það er mikil þörf á þessum stuðningi og mikill áhugi. Ég vil aðeins undirstrika, að það er mjög eðlilegt, að jafnvel hin smærri eða smæstu sveitarfélög, þó að ekki séu þéttbýlisstaðir, geti átt kost á þessu, því að með því mundi byggðin færast og dreifast á eðlilegri hátt um landið. Þá vil ég vænta þess, að auglýstar verði vel og rækilega þær reglur, sem eftir verður farið við úthlutun þessara íbúða, því að það er hreint ekki víst, að öli sveitarfélög hafi gert sér grein fyrir þeim möguleikum, sem þarna eru fyrir hendi.