13.12.1973
Efri deild: 34. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1342 í B-deild Alþingistíðinda. (1152)
152. mál, tollskrá o.fl.
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. um þetta frv. til l. um tollskrá við 1. umr. málsins, en tel rétt að segja samt nokkur orð.
Ég hygg, að eðlilegt og sjálfsagt sé að taka tollskrána til athugunar og endurskoðunar, enda skylt samkv. samningum okkar við EFTA og Efnahagsbandalag Evrópu. Hins vegar fer ekki hjá því, að harma ber, hve seint þetta frv. er á ferðinni, því að það er mjög viðamikið og það fjallar um annað og meira en samningsbundnar lækkanir á tollum, sem fara í kjölfar aðildar Íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu og Efnahagsbandalagi Evrópu. Í þeim efnum er rétt að taka fram, að um 2/3 hlutar tollalækkananna, ef miðað er við tekjumissi ríkissjóðs, eiga rætur sínar að rekja til lækkana gagnvart öðrum löndum á ytri tollum. Síðast þegar tollskráin var endurskoðuð, eftir aðild Íslands að Fríverslunarsamtökunum í ársbyrjun 1970, var á ferðinni hér mjög mikill bálkur brtt., sem ýmist einstakir þm. fluttu eða n. þingsins í báðum d. Og ljóst er, að ef ætlast er til, að þetta frv. nái fram að ganga fyrir áramót, þá eru ekki skilyrði fyrir því að kanna þetta frv. eins og vera ber. Ég vildi láta þetta koma fram þegar við 1. umr. málsins, um leið og mér finnst eðlilegt, að það sé leitast við að greiða götu þessa frv. eins og unnt er miðað við aðstæður, skilyrði og efni málsins og ekki síst með tilvísun til þeirra hagsmuna, sem iðnaðurinn sem atvinnuvegur hefur af framgangi málsins, af því að hann mun eiga í erfiðari samkeppnisaðstöðu, ef þetta frv. nær ekki fram að ganga og þar með ýmsar tollalækkanir á hráefnum og vélum, sem það inniheldur ná ekki fram að ganga. En ef svo skyldi fara, þá er engu um að kenna öðru en því, hve seint þetta frv. er á ferðinni.
Þá hlýt ég einnig að gera aths. við það, sem fram kom í ræðu hæstv. fjmrh. og sagt er í aths. við frv. þetta, en þar segir, með leyfi forseta:
„Þessum tekjumissi verður að sjálfsögðu að mæta með annarri skattlagningu með hliðsjón af, hvernig sama vanda var mætt við aðild Íslands að EFTA árið 1970. Þykir eðlilegt að mæta tekjumissinum með söluskattshækkun. Því verður að líta á samþykkt þessa frv. sem skuldbindingu um hækkun söluskatts, sem nemur a. m. k. einu söluskattsstigi.“
Ég vil taka það fram í tilefni þessara orða í aths. og samhljóða málflutnings hæstv. fjmrh., að ég lít á þetta, sem tvö aðskilin mál, sem skoða ber sitt í hvoru lagi. Við höfum enn ekki séð tekjuáætlun fjárlagafrv., þótt eigi sé nema vika eða styttri tími, þar til gengið skal til atkv. um það við 3. umr. Og því er allsendis ekki tilefni til þess að taka afstöðu til hækkunar söluskatts, þegar af þeirri ástæðu, og ekki í tengslum við þetta frv. um tollskrá.
Ég vil taka það fram, að þótt fyrrv. ríkisstj. hafi farið þessa leið, að mæta tekjumissi vegna setningar nýrrar tollskrár í ársbyrjun 1970 með hækkun söluskatts, og tilkynnt það fyrir fram, þá var það hennar ákvörðun, en skuldbatt ekki einstaka þm. að því er varðaði fylgi við slíka söluskattshækkun, ef þeir hefðu áhuga á því, að endurskoðun tollskrárinnar næði fram að ganga. Ég tel sem sagt, að að þessu leyti sé um algerlega óeðlileg vinnubrögð að ræða, en ítreka, að að svo miklu leyti sem unnt er og aðstæður leyfa tel ég sjálfsagt að greiða fyrir eins hraðri afgreiðslu þessa frv. til l. um tollskrá og mögulegt er.