13.12.1973
Efri deild: 34. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)
151. mál, skráning og mat fasteigna
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti.
Á þskj. 205 er frv. til l. um skráningu og mat fasteigna. Frv. þetta er unnið nú að síðustu af starfsmönnum í fjmrn., og hefur undirbúningur þess staðið yfir á s. l. vetri. Forsaga þessa máls er þó miklu lengri en þetta, því að fyrir síðustu stjórnarskipti hafði þáv, fjmrh. látið undirbúa frv. að fasteignamatsstofnun, og frv. var að miklu leyti unnið þá af prófessor Ármanni Snævarr, núv. hæstaréttardómara, og mönnum frá Sambandi ísl. sveitarfélaga. Frv., sem lá tilbúið, þegar ég tók við þessu starfi í fjmrn., var að ýmsu leyti, bæði að dómi fyrirrennara míns og mínum, ekki æskilegt til þess að verða að lögum, og var í raun og veru allt of mikið kringum það, til þess að okkur sýndist hvorum um sig, að væri hægt að flytja málið.
Haustið 1971 fékk ég nokkuð af þeim mönnum, sem höfðu upphaflega samið frv., ásamt fleirum, til þess að endurskoða frv.-drögin og reyna að vinna að því, að samið yrði nýtt frv. um fasteignamatsstofnun og skráningu fasteigna. Þeir aðilar, sem þá voru til kvaddir, skiluðu og nál. og frv., en við yfirskoðun þess í rn. var ekki talið æskilegt að leggja það fram þá sem frv. að slíkum l., sem þá væri stefnt að, heldur var þá málið tekið enn á ný til vinnslu í rn., og sá ráðuneytisstjórinn, Jón Sigurðsson, að mestu um þá vinnu. Jafnhliða því, sem hann vann að frv., kvaddi hann til bæði sveitarstjórnarmennina og fasteignamatsnefndina, fyrst og fremst formann hennar, Gauk Jörundsson prófessor, og aðra nm. til þess að fjalla um málið með sér. Eftir þá umferð voru enn á ný gerðar á því verulegar breytingar, og ég held, að segja megi, að frv., eins og það liggur fyrir nú, sé nánast vinnsla úr þeim viðtölum og þeim fundum, sem þessir aðilar héldu um þau, þ. e. ráðuneytisstjórinn ásamt fasteignamatsnefndinni.
Frv. felur í sér nokkuð veigamiklar breytingar frá núgildandi l. um fasteignamat og fasteignaskráningu, en það eru l. nr. 28 1963. Helstu breytingarnar eru þessar:
1. í gildandi l. segir, að allsherjarmat fasteigna skuli fara fram á öllu landinu á 15 ára fresti og millimat þess á milli. Með frv. er hins vegar gert ráð fyrir, að mat nýrra fasteigna, breytingar á mati og kærur til hækkunar eða lækkunar séu sífelld starfsemi, og er þannig stefnt að því meginmarkmiði, að skráning fasteigna og verðmætamat sé á hverjum tíma eins nálægt sanni og kostur er. Hér er sem sagt stefnt að því, eins og segir um þetta, að ná því, að skráning fasteigna og verðmætamat nálgist hvort annað eins og kostur er. Þetta getur þýtt það, að fasteignir geta verið bæði hækkaðar og lækkaðar í mati, eftir því, sem við á.
2. Í gildandi l. er megináhersla lögð á matsþáttinn, þ. e. ákvörðun um verðmæti fasteigna. í frv. er hins vegar haldgóð skráning fasteigna og upplýsingar um þær settar á oddinn, eins og reyndar kemur fram í heiti lagafrv., en mat á verðmæti þeirra kemur í annarri röð. Með þessu er stefnt að því, að til sé á einum stað í landinu skrá yfir fasteignir og upplýsingar um þær, þannig að þeir, sem þurfa á slíkum upplýsingum að halda, geti fengið þær hjá þessari stofnun og þær upplýsingar séu haldgóðar og öruggar.
3. Ítarlegt ákvæði er í 3.–5. gr. frv. um það, hvaða upplýsinga skuli aflað um hverja einstaka fasteign. Fæst þar smám saman mjög verðmæt vitneskja um fasteignir í landinu, margfalt meiri en hingað til hefur verið fáanleg. Þetta undirstrikar það, sem ég sagði áðan um skráningu og upplýsingar um fasteignir.
4. Gert er ráð fyrir, að komið verði á fót nýrri ríkisstofnun, Fasteignaskrá. Að vísu er það svo, að Fasteignamatið starfar enn sem veraleg stofnun. Hér er meira um formsatriði að ræða, heldur en að raunverulega sé verið að setja upp nýja stofnun, nema það, að lagafyrirmæli um fasteignamatið, sem starfar nú, eru afar óljós og raunar bundin við fasteignamat á hverjum tími, þegar heildarmat fer fram.
Fasteignaskrá skal nú yfirtaka verkefni, sem Fasteignamat ríkisins hefur nú með höndum, og auk þess hefur hún víðara starfssvið, einkum að því er varðar skráningu og margs konar upplýsingaöflun um fasteignir. Stofnunin starfar á ábyrgð fjmrn. og undir umsjón þess.
5. Sérstakt ákvæði er um, að Fasteignaskrá skuli starfa sem ráðgefandi n. þeirra aðila, sem nýta eða nýtt geta skráningarverkefnin. Er þannig stuðlað að því, að sjónarmið þessara aðila fái jafnan komist að varðandi viðfangsefni Fasteignaskrár og stefnumótun.
6. Komið verði á fót sérstöku kerfi matsmanna, sem hafi aðsetur í öllum landshlutum og starfi undir stjórn sérstaks matsstjóra. Matsmenn heyri undir Fasteignaskrá, en skuli þó njóta víðtæks sjálfstæðis um matsstörfin, svo sem nánar er kveðið á um í frv. Byggingarfulltrúum er hins vegar ætlað að hafa með höndum söfnun upplýsinga til Fasteignaskrár vegna skrásetningar fasteigna. Þótti rétt að styrkja frekar kerfið, sem fyrir er, þ. e. byggingafulltrúakerfið, til að annast þetta verkefni, heldur en að koma á fót nýju við hlið þess. Hér er horfið að því ráði að hagnýta sér störf byggingafulltrúanna, sem eru í öllum þorpum og kauptúnum og eru meira og minna að færast einnig út um sveitirnar, og verður að telja, að sú þróun muni halda áfram að aukast, og ber því nauðsyn til þess að fela þeim þessi störf, heldur en að fara að breyta þar um og skipa sérstaka nýja fulltrúa:
7. Samkv. gildandi l. skal ráðh. tilnefna menn til setu í fasteignamatsnefnd. Samkvæmt frv. er skipan n. að því leyti frábrugðin fyrirkomulagi gildandi l., að henni má að nokkru leyti jafna til dómkvaðningar, þar sem ráðherra skal skipa hana úr hópi manna, sem Hæstiréttur tilnefnir.
Nokkur fleiri nýmæli er að finna í frv., en þessi eru hin mikilvægustu. Er þess vænst, að frv. leysi til nokkurrar frambúðar úr þeim hnút, sem málefni fasteignamats hafa verið í um nokkurt skeið. Skráning upplýsinga og mat á fasteignum hefur haft sívaxandi þýðingu fyrir fleiri og fleiri aðila í nútíma þjóðfélagi, ekki einungis í sambandi við skattheimtu og fjármál, heldur einnig í vaxandi mæli í tengslum við önnur atriði, sbr. stjórn málefna opinherra aðila, áætlunargerð, skipulagningu, skipti við einkaaðila o. fl.
Það er því orðið ljóst fyrir allnokkru, að ekki verður til frambúðar byggt á þeim grundvelli, sem núgildandi lög frá 1963 gera ráð fyrir, og ný lagasetning um þetta er orðin aðkallandi. Frv. þetta er að vísu nýsmíði á kerfi, sem hefur ekki verið reynt, en það verður að reyna á það síðar, hvort einhverjar breytingar verða nauðsynlegar, til þess að kerfið skili þeim árangri, sem stefnt er að með því.
Ég hef nú í stuttu máli gert grein fyrir þessu frv., sem er þó þýðingarmikið. Ég tel, að þróunin muni verða sú, að ef tekst að koma þessari stofnun á, svo sem frv gerir ráð fyrir, þá muni það síðar meir þróast í það, að samstarf verði milli hinna opinberu fjárfestingarlánasjóða og skráningarstofnunarinnar um þau atriði, er snúa að lánastarfsemi sjóðanna. Ég tel, að það sé æskilegt, að þróunin verði á þann veg og matsþátturinn verði í samstarfi við slíka aðila, og á þann hátt mætti einnig draga úr kostnaði.
Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2, umr.