13.12.1973
Efri deild: 34. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (1165)

159. mál, Seðlabanki Íslands

Frsm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Á þskj. 223 flytur fjh.- og viðskn. frv. til l. um breyt. á Seðlabankalögum þess efnis, að Seðlabankinn geti að fengnu samþykki ríkisstj. ákveðið mörk leyfilegs munar stofngengis annars vegar og kaup- og sölugengis hins vegar.

Tildrög að flutningi þessa frv. eru þau, að fjh.- og viðskn. hafði til athugunar brbl., sem. gefin voru út 14. júní s. l. og lágu fyrir þinginu til staðfestingar, en í þeim var Seðlabankanum veitt heimild, að fengnu samþykki ríkisstj., til þess að afnema um stundarsakir þau efri mörk, sem gilda um daglega gengisskráningu krónunnar, þannig að bankanum var heimilt að ákveða mörkin hærri en tilgreint er í l. nr. 97 frá 1972.

Þegar n. hafði til athugunar, hvort staðfesta skyldi þessi brbl., kom strax í ljós, að ekki væri það eitt nægilegt, ef ekki ættu að verða breytingar á gengi krónunnar, því að að öllu óbreyttu hefði orðið gengislækkun nú um áramótin, sem numið hefði um 8%, þannig að dollar hefði hækkað í verði úr 83,60 í 90,90 kr.

Þetta stafar af því, að brbl., sem sett voru í sumar, höfðu ekki gildi lengur en til ársloka 1973, samkv. 2. gr. þeirra.

N. hafði samráð við bankastjóra Seðlabankans um mál þetta, og í þeim umr. kom fram sú skoðun, að rétt væri að ákveða nýja skipan þessara mála, þannig að ekki væri hér um bráðabirgðaákvæði að ræða, því að búast mætti við því, að svipað ástand kynni að verða í gjaldeyrismálum heimsins á næstu missirum og verið hefur nú um hríð, og því var ákveðið að taka málið í heild til meðferðar og móta nýja stefnu, og það er gert með flutningi þessa frv.

Með l. nr. 20 frá 16. apríl 1962, um breyt. á l. nr. 10 29. mars 1961, um Seðlabanka Íslands, var ákveðið, að frávik um kaup og sölu gengis frá stofngengi mætti vera allt að 1%. Þessu var breytt í fyrra, þegar gengislækkunin var framkvæmd, og frávik var leyft allt að 21/4%, en flestar þjóðir heims höfðu þá tekið upp frávik að þessu marki með leyfi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Með brbl., sem sett voru í sumar, var sem sagt verið að ganga skrefinu lengra, með því að afnema með öllu efri mörkin, og með flutningi og hugsanlegu samþykki þess frv., sem hér liggur fyrir, er þá verið að stíga skrefið fullt út og afnema úr l. þessi mörk, sem verið hafa um daglega gengisskráningu krónunnar.

Eins og fram kemur í grg., hefur n. haft samráð við viðskrh. og bankastjóra Seðlabankans um þessa breytingu. En þar sem stefnubreyting á þessu sviði hlýtur að hafa í för með sér breytingu á Seðlabankalögunum sjálfum, en brbl. snertu þau ekki beint, var talið óhjákvæmilegt að flytja nýtt frv. um þetta efni, og er þá reiknað með, að brbl. sjálf verði eftir í n. og hljóti ekki afgreiðslu, en þessi nýju lög taki gildi 1. janúar 1974.

Með þessa forsögu málsins í huga og þar sem málið er flutt af fjh.- og viðskn., þá er ekki gerð till. um, að málinu sé vísað til n.