13.12.1973
Efri deild: 35. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (1178)
147. mál, veiting prestakalla
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því frv., sem hér liggur fyrir. Í fyrsta lagi vil ég lýsa því yfir strax, að ég er þessu frv. algerlega andvígur. Það stafar ekki af neinum sérstökum kristilegum áhuga reyndar, en ég veit, að trúmál eru allra mála viðkvæmust engu að síður hjá fólki, og breytingar allar varðandi það, að fólk velji sér sálusorgara, eru áreiðanlega mjög viðkvæmar, og þarf þar að hafa fulla aðgát.
Ég tel, að með þessu frv. sé of mikið vald fært til of fárra manna í hinum einstöku prestaköllum. Ég er alveg sannfærður um, að það er hæpið, að það dragi úr ýmsum slæmum áhrifum, sem sagt er, að prestskosningar hafi. Ég held, að það færi þá bara aðeins meira á bak við tjöldin, og eins og hv. síðasti ræðumaður henti á, það yrði þá bara enn meiri harka í sambandi við það að kjósa í þessi embætti. Þó að ótrúlegt sé, hef ég sjálfur verið sóknarnefndarformaður og meira að segja meðhjálpari, en það segi ég hiklaust, að ekki hefði ég viljað fá það vald, sem þarna er verið að færa inn til þessara trúnaðarmanna í prestaköllunum. Ég hefði alls ekki viljað fá það vald og þurfa þar úr að skera, og ég efast um, að aðrir vilji fá það vald. Því held ég, að frelsi í þessum efnum til þess að velja fyrir fjöldann sé í raun og veru það eina rétta, þrátt fyrir þá ágalla, sem þar eru á.
Enn fráleitara þætti mér, að ekki þyrfti að auglýsa sérstaklega þessi prestaköll. Það væri enn fráleitara að mínu viti að auka vald biskups t. d. frá því, sem nú er. Við vitum t. d., að innan kirkjunnar eru vissulega stríðandi stefnur: annars vegar stefna þeirra, sem eru frjálslyndir í þessum málum, og hins vegar stefna hinna þröngsýnu, og vel gæti svo farið, að ef biskupi, sem fylgdi annarri hvorri þessari stefnu, yrði fengið of mikið vald, þótt kristilegur væri, gæti hann á einhvern hátt misnotað það.
Ég hef orðið var við, að það er nokkuð um það nú í hinum einstöku prestaköllum, að prestar eða guðfræðingar eru settir til að gegna þeim og að nokkrum tíma liðnum fer fram kosning í prestaköllunum. Það er yfirleitt svo, að þá er enginn annar maður í framboði þar. Menn kunna kannske ekki við það í mörgum þessara héraða að bjóða sig fram gegn þeim manni, sem hefur gegnt prestakallinu um tíma. Ekki veit ég, hvað þessu veldur, en ég held, að þarna sé einnig um óæskilega þróun að ræða, og hygg, að þarna sé einhverju um að kenna vilja kirkjuyfirvalda til þess að hafa meiri áhrif á þessi mál en æskilegt er.
Ég vil því hiklaust taka áhættuna af göllum prestskosninganna. Ég veit, að þeir eru ýmsir, eins og reyndar ágallar allra kosninga, og mér finnst ekki sérstök ástæða til þess að vera með neina frekari viðkvæmni gagnvart þeim göllum, sem þar eru, gagnvart prestum, heldur en gagnvart okkur alþm. Ég álít sem sagt, að kostirnir séu fleiri þrátt fyrir allt, og ég mun því mæla hiklaust með óbreyttu fyrirkomulagi.