13.12.1973
Neðri deild: 40. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1364 í B-deild Alþingistíðinda. (1181)

93. mál, sjálfskuldarábyrgð á lánum til kaupa á fiskiskipum

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Þetta frv., sem liggur hér fyrir um heimild fyrir ríkisstj. að veita sjálfskuldarábyrgð á lánum til kaupa á 10 fiskiskipum yfir 300 lestir, eins og það hélt upprunalega, var lagt fyrir Ed., og mun sá háttur hafa verið hafður á, að frv. hafi verið rætt innan þingflokkanna og samkomulag fengist um afgreiðslu þess máls. Ég ætla því ekki að gera upphaflega frv. að umræðuefni, vegna þess að maður lítur á það sem afgreitt mál með samþykki þingflokkanna, að þetta frv. fari í gegn. Hitt finnst mér skjóta skökku við, þegar það er farið að endurtaka sig hvað eftir annað, að þegar frv. eru komin til n., þá er ríkisstj. eða einstakir ráðh. að gera á þeim stórvægilegar breytingar og læða inn í frv. algerlega óskyldum málum, sem engan veginn eiga þar heima. Það er aðeins eitt, sem er skylt með upprunalega frv, og þeirri till., sem fjh.- og viðskn. Ed. tekur inn, að ríkisábyrgðin er 80%. Annað er ekkert skylt með þessu. Ég hefði talið, að þetta mál hefði átt að flytja í sérstöku, sjálfstæðu frv. um það að heimila ríkisstj. að ábyrgjast 80% af kaupverði ferjuskips til siglinga milli Akraness og Reykjavíkur, en það eigi engan veginn heima sambandi við sjálfskuldarábyrgð á lánum til kaupa á 10 fiskiskipum yfir 300 lestir. Mér finnst það vera regluleg grautargerð í lagasmíð, sem verið er með þessum hætti að taka upp.

Þá vil ég einnig segja, að þegar þetta mál kemur hér fyrir til 1. umr. í hv. þd., þá á málið að fara umræðulaust og algerlega skýringalaust til n., vegna þess að það fylgir því enginn ráðh. úr hlaði. Hvað er það, sem hefur komið fyrir, að ráðh, eða ríkisstj., sem óskar eftir því við fjh.- og viðskn. Ed., að hún geri breytingu á frv., gefi enga skýringu, þegar málið kemur hér fyrir til 1. umr. í hv. þd.? Er þetta svona smávægileg upphæð, sem um er að ræða, að það taki því ekki, að ríkisstj. finnst, að mæla fyrir frv., skýra frá því, hvaða rök liggja á bak við þessa ósk, hvað er hér um að ræða, hvað þetta skip kostar, hvaða rekstraráætlanir liggja fyrir. Það er mjög brýn þörf á því í framhaldi af þessari till. að vita, hvort ríkið ætlar að greiða 75% af stofnkostnaði við þá breytingu, sem verður óhjákvæmilega að gera á afgreiðslu skipsins á báðum stöðum, í Reykjavík og á Akranesi, Reykjavíkurborg ætlar að standa ein undir breytingum og hafnarkostnaði hér í Reykjavík. Liggur þetta fyrir, eða liggur þetta ekki fyrir? Hvað hugsa menn sér í þessu sambandi? Ætlar Akraneskaupstaður að leggja fram alla breytinguna í sambandi við hafnirnar, eða er til þess ætlast, að ríkissjóður greiði 75%.

Þá komum við aftur að því sama, að fjölmargar hafnir á landinu bíða eftir framkvæmdum og verða að bíða nokkur ár eftir nauðsynlegustu framkvæmdum. Er því ástæða til og brýn nauðsyn á því að taka þessa framkvæmd inn, og á að taka hana inn á framkvæmdaáætlunina á næsta ári eða á að taka lán til þeirra framkvæmda á þessu ári eða á skipið ekki að fá, þegar það kemur, aðstöðu til afgreiðslu, þannig að aka megi bílum um borð og í land úr þessari ferju á báðum stöðum.

Ég tel það skyldu þeirra, sem að þessari till. standa, að skýra þetta fyrir hv. þd., um leið og frv. kemur hér til umr. og áður en það fer til n. Ég veit, að n. getur eðlilega spurt um það. En það er vani og góður vani og talin skylda, að flm. fylgi frv. sínum úr hlaði. Flm. geta ekki, ef þeir eru þm., fylgt frv. sínum úr hlaði nema í þeirri d., sem þeir eiga sæti í og flytja frv. í, en ríkisstj. eða ráðh. geta gefið skýringar í báðum d. Og ég spyr: Hvernig stendur á því, að engin skýring er gefin? Hvernig stendur á því, að það er lætt till. inn í frv. um óskylt efni? Svo þegar það kemur hingað til Nd., þá þegir öll ríkisstj. og segir ekki eitt einasta orð. Það er loksins, að einum stjórnarþm. blöskrar þessi vinnubrögð að hann biður um orðið, annars væri frv. komið til n. Ég vil óska þess, að hæstv. forseti kalli á aðstandendur þessarar till. og þeir gefi skýringu, hvernig stendur á henni, og færi fram rök fyrir þessu máli.