13.12.1973
Neðri deild: 40. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1372 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)

93. mál, sjálfskuldarábyrgð á lánum til kaupa á fiskiskipum

Forseti (Gils Guðmundsson):

Að gefnu tilefni vil ég vekja á því athygli, að í sambandi við dagskrá, sem útbýtt var fyrir fund, höfðu orðið þau mistök, að þar átti fyrsta málið alls ekki að vera, launaskattur, sem hafði verið vísað til n. Þess vegna var útbýtt nýrri dagskrá, þar sem þetta mál, sem nú er til umr., er fyrsta mál, og það er, sú dagskrá, sem gildir. Það eru 12 mál á þeirri dagskrá, sem gildir fyrir þennan fund, og sjálfskuldarábyrgð á lánum er fyrsta mál á dagskránni. Þetta vænti ég, að hv. þdm. athugi.

Að öðru leyti vil ég aðeins segja það, að mér láðist að athuga það, þegar ég tók þetta mál fyrir, að hæstv. fjmrh. var þá tepptur í umr. í Ed., svo að það er mér að kenna, að hann var ekki hér viðstaddur, þegar málið var tekið fyrir.