13.12.1973
Neðri deild: 40. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1372 í B-deild Alþingistíðinda. (1188)
93. mál, sjálfskuldarábyrgð á lánum til kaupa á fiskiskipum
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Þegar frv. þetta kom til umr, hér í hv. d. áðan, leit út fyrir, að það væri mjög umkomulaust, þar sem enginn var viðstaddur til að mæla fyrir því. Nú hefur mjög úr þessu ræst, þar sem tekið hafa til máls eigi færri en þrír hv. alþm. og einn hæstv. ráðh. Ég þarf því ekki að fara um það mörgum orðum.
Frv. þetta er í raun og veru í tvennu lagi. Það varðar tug fiskiskipa og eitt ferjuskip. Að vísu benti hv. 2. þm. Vestf. á, að óeðlilegt væri að hafa þessar umsóknir báðar í einu og sama frv., og kann að vera nokkuð til í því, einkum þegar viðbót er skotið inn í frv., sem komin er til n. Þá vill það oft vera heldur villugjarnara fyrir menn, sem ætla að fylgjast með málum, að átta sig á þeim til fulls og fylgjast með þeim
Að því er fiskiskipin varðar, er mér kunnugt um, að þar eiga hlut að máli nokkrir af allra bestu aflamönnum landsins, — menn, sem í raun og veru eiga að geta skipt um skip eða fengið nýtt skip, þegar þeim hentar, þar sem á hinn bóginn er vafasamt, að hver og einn geti komist yfir skip, hvernig sem á stendur.
Að því er ferjuskipið varðar milli Akraness og Reykjavíkur, þá hafa sem kunnugt er lengi verið skipaferðir og fólksflutningar á þessari leið, og verður því ekki breytt né heldur því, að á þessari leið verða að sjálfsögðu fólksflutningar og almennir flutningar í framtíðinni. Það er svo, að Akraborgin, sem haldið hefur uppi þessum ferðum undanfarin ár, er orðin mjög óhentug og úr sér gengin, þannig að fullkomin ástæða er til þess að endurnýja farkost á þessari leið. Um það þarf ekki að deila. Um hitt atriðið, hvort hér sé um hentugt skip að ræða, skal ég ekki fyllilega dæma. Þetta er myndarlegt skip, sem Skagamenn hafa fest auga á, og vonandi mun það reynast hið besta. Ég treysti mér ekki til að dæma um, hvort það er að öllu leyti hagkvæmt. Úr því verður reynslan að skera og reynslan ein. Ég sé því ekki annað en að full ástæða sé til þess að styðja þetta frv., að því er báða þessa þætti varðar. Hins vegar skil ég mætavel áhyggjur hv. 3. þm. Norðurl. v. Við erum um þessar mundir að starfi í samvinnunefnd samgöngumála, þar sem hann er formaður og hefur verið formaður mörg undanfarin ár. Og eins og allir góðir formenn verður hann að sjálfsögðu að sjá báti sínum borgið. Það eru allar tölur á uppleið, svo að ekki er nein ástæða til að ætla annað en að styrkir til flóabáta og annarra slíkra ferða hækki eins og allt annað í þeim fjárl., sem nú er verið að afgreiða. En á hitt vil ég benda, að þó að stundum hafi verið deilt allhressilega í samvinnunefnd samgöngumála, þá hafa lokin alltaf orðið þau, að allt hefur endað í besta bróðerni, og það er ekki síst fyrir tilstuðlan okkar ágæta formanns.