13.12.1973
Neðri deild: 40. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (1199)

102. mál, veiðar með botnvörðu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelgi

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Hv. frsm. sjútvn. gat þess, að frv. hefði verið nokkuð lengi í athugun hjá n. Ég tel það ekkert óeðlilegt, því að það mál, sem hér liggur fyrir, er eitt af stærri og flóknari málum, sem Alþingi hefur haft til meðferðar á undanförnum árum. Ég vil minna á það, að á árunum frá 1959 og þangað til í árslok 1968 gerðu mjög margir þm, tilraun til þess að fá gildandi lögum um bann gegn botnvörpuveiðum í landhelgi breytt á þann veg, að hinum smærri bátum yrði veitt rýmri heimild til botnvörpuveiða en í þeim lögum fólst. Mál höfðu þróast þannig, að bátaflotinn hafði um nokkurt árabil mjög mikið brotið þessi lög og botnvörpuveiðar smærri báta byggðust orðið nær eingöngu á því, að l. væru brotin. Það var ekki talið fært að gera út smærri báta til togveiða nema á það grunnu vatni, að heimild til þeirra veiða var ekki að finna í gildandi lögum. Þannig var komið haustið 1968, að þáv. dómsmrh. tilkynnti hér á Alþingi, að mjög strangt mundi verða tekið á öllum brotum á þessum l., ef ekki næðist samkomulag um að breyta þeim hér á hinu háa Alþingi.

Þetta varð til þess, að 3 þm. fluttu þá rétt fyrir jól einfalda breytingu á l. þannig, að leyfðar voru botnvörpuveiðar að 4 mílum frá grunnlínu fyrir öllu Norðurlandi frá Horni að Rauðunúpum og fyrir Suðurlandi inn að 3 mílum frá Stokksnesi að Reykjanesi öllum bátum upp að 200 tonnum að stærð. Þetta bjargaði þá málunum í bili, og ég vil segja það, að hið undarlega skeði, að þessi breyt. á l. var samþ. mótatkvæðalaust hér á hinu háa Alþingi, og kom mjög á óvart, að nást skyldi samkomulag á þessum grundvelli. En þá hafði verið starfandi n., sem sjútvrh. hafði skipað til að endurskoða l., en hún hafði ekki lokið störfum og sá fram á, að hún mundi ekki geta lokið störfum fyrr en kannske síðar á vetrinum eða áður en þingi yrði slitið vorið 1969. Ég tel, að sú n. hafi unnið mjög mikið og gott starf. Formaður þeirrar n. var hv. 5. þm. Reykn. Jón Árm. Héðinsson, og n. gerði það, sem þá hafði aldrei verið gert áður af neinni þingnefnd, að hún ferðaðist um landið þvert og endilangt, fór í hvert einasta kjördæmi landsins, hélt fundi með sjómönnum og útgerðarmönnum og öðrum, sem töldu sig hafa hagsmuna að gæta í sambandi við fiskveiðar almennt. Það kom þá þegar í ljós, að sjónarmið til þeirra laga, sem gildandi voru um botnvörpuveiðar, voru mjög ólík, ekki einasta í hverjum landsfjórðungi, heldur að segja má í hverju einasta sjávarþorpi á landinu. Innbyrðis í hverju einasta sjávarþorpi virtist vera um mjög ólík og margvísleg sjónarmið að ræða bæði hjá einstökum útgerðarmönnum og einstökum sjómönnum. En eftir mjög ýtarlega athugun tókst n. þó að verða sammála um tilteknar breytingar, og náðu þær fram að ganga hér á Alþingi, áður en þingi var slitið vorið 1969.

Þau lög áttu að renna út, ef ég man rétt, í árslok 1971, og skipaði núv. hæstv. sjútvrh. n. að nýju, sem að miklu leyti var skipuð sömu mönnum og áður höfðu unnið að þessum málum. Hún gerði einnig það, sem áður hafði verið gert, hún ferðaðist um landið og kynnti sér viðhorf aðila og þá sérstaklega hvernig þær breytingar sem gerðar höfðu verið á l., hefðu fallið mönnum í geð. Auðvitað kom það sanna í ljós og áður hafði legið fyrir, að innan hvers sjávarpláss, þar sem fundir voru haldnir, voru sjónarmiðin mjög ólík og margvísleg. Menn deildu sums staðar mjög hart um það, hvað langt ætti að ganga með að leyfa einstökum skipum og einstökum skipastærðum að veiða með botnvörpu nálægt landi. Að þessum ferðalögum loknum náði einnig síðari n. nokkurn veginn samkomulagi í aðalatriðum, og var ekki um mikla breytingu að ræða á sjálfum fiskveiðiheimildunum frá því sem var í gildandi l., því að það kom greinilega fram, að þrátt fyrir hin mjög misjöfnu sjónarmið höfðu bæði sjómenn og útgerðarmenn í stórum dráttum fellt sig við þá breytingu, sem á þessum l. var gerð vorið 1969. Ég hygg, að þetta hafi verið í fyrsta skipti, sem þingnefnd ferðaðist um landið og hafði samband við þá aðila, fyrst og fremst, sem málið snerti beint, því að hér er vissulega um mjög mikið og margþætt hagsmunamál fyrir hinar einstöku greinar sjávarútvegsins að ræða, og þá að sjálfsögðu sjómenn einnig. N. hin síðari, sem skipuð var um haustið 1971, starfaði út frá því sjónarmiði, að Íslendingar mundu eftir til þess að gera stuttan tíma, eða miðað við 1. sept. 1972, þ. e. a. s. íslenskir togarar, einir geta stundað veiðar innan 50 mílna svæðisins, þannig að svæðið frá 12 mílum að 50 mílum mundi bætast við fyrir þá eina til veiða eftirleiðis. Þetta sjónarmið varð til þess, að nokkuð var gengið lengra í því að ýta hinum stærri togskipum lengra frá landi en áður hafði verið gert. N. taldi eðlilegt, að þar sem íslensk togskip fengju nú ein að veiða á þessu svæði, yrði nokkuð þrengt að þeim nær landi og það svæði aftur á móti ætlað hinum smærri togskipum og öðrum smærri bátum, hvort heldur var um togveiðar að ræða eða önnur veiðarfæri, net eða línu. Eftir að það kom í ljós, að svo mundi ekki fara, að Íslendingar hefðu einir veiðiheimildir á svæðinu milli 12 og 50 mílnanna, þá breyttist að sjálfsögðu nokkuð grundvöllurinn undir því samkomulagi og því starfi, sem fiskveiðilaganefndin svokallaða hafði unnið, og till. hennar um breyt. á l. hreinlega byggðust á. Það verður að viðurkenna þetta, því að margir hafa sagt, að mjög hafi verið gengið óeðlilega á rétt hinna stærri togveiðiskipa, en þetta er skýringin á því, að svo var gert.

Sjútvn. hafði það sjónarmið, að úr því sem komið væri, væri þetta e. t. v. of langt gengið, og féllst hún á nokkrar tilslakanir til handa stærri togskipum, að þau fengju veiðiheimildir nær landi en frv. gerði ráð fyrir. Ég skal viðurkenna, að fyrir mitt leyti tel ég, að taka verði tillit til þessarar breyttu aðstöðu frá því sem við höfðum áður gert ráð fyrir, og hef því fallist á nokkrar verulegar tilslakanir frá frv., en ég var einn af þeim aðilum, sem stóðu að því að semja það, því að þegar breytt sjónarmið koma fram verður auðvitað að taka tillit til þess og skoða málið í því ljósi, sem það raunverulega liggur fyrir. Breyt. sjútvn. eru að langmestu leyti í þessu fólgnar, að hinum stærri skipum eru veittar á vissum stöðum við landið og vissum árstímum veiðiheimildir miklu nær landi, en frv. gerir ráð fyrir.

Að mínum dómi er það eitt veiðisvæði, sem getur valdið mestum ágreiningi um, hvað langt á að ganga til móts við óskir eigenda hinna stærri togskipa, en það er svæðið á milli Geirfuglaskers og að Reykjanesi, þ. e. a. s. Selvogsbankasvæðið. Það liggur alveg ljóst fyrir, að einmitt á þessu svæði hafa bátar að segja má af öllum stærðum, allt frá 30–40 tonna stærð og upp í 500 tonn að stærð, í vaxandi mæli stundað netaveiðar í 2–2½ mánuð á hávetrarvertíð einmitt á þessu svæði.

Ég hef alltaf óttast það mjög, að þegar svo er komið, að slíkur bátafloti, sem ég hygg að nemi á milli 2 og 3 hundruð bátum, stundar veiðar á þessum svæðum, þá geti komið til mjög alvarlegra árekstra og veiðafæratjóns, ef að stærri skip fengju, samtímis og netaveiðar færu þarna fram, heimildir til togveiða einnig.

Eins og frsm. sjútvn. réttilega skýrði frá í ræðu sinni, komu fram mjög ákveðnar óskir frá fulltrúum L. Í. Ú., og voru það sameiginlegar óskir eða sameiginlegt samkomulag, eins og þeir sögðu, bæði bátaeigenda og togaraeigenda. Þetta samkomulag hafði náðst bæði um veiðar á þessu svæði og víðar á þeim grundvelli, að togaraeigendur hefðu gefið eftir á einum stað og bátaeigendur á öðrum, og þannig hefðu þeir getað innan n., sem L. I. Ú. skipaði, náð þessu samkomulagi. Mér var það alveg ljóst, enda kom það á daginn síðar, að þó að það lægi fyrir sjútvn. að þarna væri um sameiginlegt álit n. L. Í. Ú. að ræða, þá var enn heima í héruðum alveg örugglega mjög djúpstæður ágreiningur um mörg þeirra atriða, sem þeir í n. höfðu náð samkomulagi um. Þetta kom í ljós síðar, bæði að því er Breiðafjörðinn varðar og fleiri staði, að þannig var ástandið enn þá heima í héraði, að menn greindi þar mjög á og deildu mjög hart um það, hversu langt ætti að ganga, sérstaklega í sambandi við tilslakanir til hinna stærri skipa. Ég tel þó, að það hafi verið mjög mikilvægt, að ábyrgir fulltrúar L. Í. Ú. skyldu þó ná þessu samkomulagi, sem n. náði og gerði að sínum till. til sjútvn. Nd. Þarna var um fullábyrga fulltrúa frá L. Í. Ú. að ræða, og hlaut því að verða tekið nokkurt tillit til þess, jafnvel þótt við vissum, að á bak við þá væri mikill ágreiningur um ýmis mikilvæg atriði í frv.

Ég þarf ekki miklu að bæta við það, sem kom fram hjá frsm. sjútvn. Hann gerði grein fyrir till. n. í heild, sem við höfum allir skrifað undir, þó með fyrirvara sumir. Við höfum áskilið okkur rétt til þess að flytja eða fylgja brtt. því að eins og ég hef sagt, hluta af þeim breytingum, sem gerðar hafa verið, hefði ég viljað hafa á annan veg. En auðvitað verður að taka tillit til þeirra sjónarmiða sem sett eru fram, ef maður telur, að þau geti átt rétt á sér eða að fyrir þeim séu eðlileg rök. En ef á að leysa málið nú, eins og ég tel að verði að gera, því að Alþingi megi ekki skilja svo við þetta mál nú fyrir áramót, að það verði ekki leyst á einhvern skaplegan hátt, þá auðvitað verða þeir aðilar, sem hafa hug á því, að reyna að samræma sjónarmiðin og koma þannig fyrir, að sem mest samkomulag geti náðst um málið hér á hinu háa Alþingi.

Frsm. n. kom inn á eitt atriði, sem auðvitað er mjög hægt að deila um, en það voru sektarákvæðin, og taldi hann allt því til foráttu; að rætt væri um allt að tveggja ára fangelsisvist, ef um ítrekuð brot er að ræða. Ég skal viðurkenna, að þetta er mjög viðkvæmt mál. Hins vegar liggur ljóst fyrir, að það getur verið um það veigamikil brot að ræða, ef einstakir skipstjórar gera sér leik að því að misnota lögin, brjóta þau og kannske sleppa með það árum saman, að þá verður að taka að mínum dómi nokkuð hart á því og koma í veg fyrir slíkt. Ég tel, að þær breyt., sem gerðar voru bæði 1968 og aftur vorið 1969, hafi verið það miklar tilslakanir frá áður gildandi l. og það miklar veiðiheimildir, bæði til smærri og stærri skipa, að menn eigi að geta unað við að fiska í samræmi við þau, án þess að gera tilraun til að brjóta þau niður með síendurteknum brotum. Ef ég man rétt, er það svo í gildandi l., að fyrir ítrekuð brot sé hægt að dæma menn í minnst 2 mánaða fangelsi. En í frv, er gert ráð fyrir allt að 2 ára fangelsi. Ég satt að segja er ekki viss um, hvor viðurlögin eru strangari, því að auðvitað er það, sem talað er um, að dæma skuli minnst í 2 mánaða fangelsi, á valdi dómarans í hverju tilfelli. Þá er það auðvitað á valdi dómara, að mér skilst, hvað hart hann fer í sakirnar, hvað langa fangelsisvist hann dæmir menn í, og ef ég man rétt, hefur verið kveðinn upp dómur yfir erlendum aðila, að ég hygg allt að eitt ár. Mér er því alls ekki ljóst, hvort þessir 6 mánuðir, sem nú eru í till. sjútvn., eru ekki enn strangari viðurlög en nú eru í gildi eða geti orðið strangari viðurlög. Þetta er auðvitað allt matsatriði og mest á valdi þeirra, sem með dómsmál fara hverju sinni, hvað stranglega þeir vilja beita þeim viðurlögum, sem í gildi eru.

Það hefur komið fram, sem ég sagði hér áðan, að þrátt fyrir það að n. innan L. Í. Ú. næði tilteknu samkomulagi, þar sem menn hefðu slakað hver fyrir öðrum, þá virðist svo, að heima í hinum einstöku héruðum og einstöku sjávarplássum séu enn þá til þess að gera skiptar skoðanir um hin ýmsu atriði, sem n. L. Í. Ú. hafði þó náð samkomulagi um. Til þess bendir till., sem hér liggur fyrir á þskj. 236, ótvírætt.

Ég hef, frá því ég fór fyrst að gera tilraunir til að fá lögum um botnvörpuveiðar breytt, alltaf haft það grundvallarsjónarmið, að Alþingi Íslendinga yrði að líta á tvennt í því sambandi. Það er annars vegar hagnýting veiðisvæðanna, fiskimiðanna, og hins vegar friðun einstakra svæða, þannig að ekki væri um ofveiði að ræða, hvorki á hrygningarstöðum né á uppeldisstöðvum ungfisks. Einnig um þetta atriði hafa verið mjög skiptar skoðanir, bæði hér á hinu háa Alþingi og eins á meðal fiskifræðinga. Álit sjómanna hefur um nokkuð langa hríð verið það, t. d. í sambandi við hrygningarsvæðin hér fyrir Suðurlandi, að það bæri að gera tilraun til að friða tiltekið og ákveðið svæði og sjá, hvaða árangur yrði af því. Ég flutti till. á sínum tíma í Sþ. um, að þáv. ríkisstj. yrði falið að gefa út reglugerð um tilraunir, sem gengju í þessa átt. En hún náði þá ekki fram að ganga, einvörðungu vegna þess, að sérfræðingar Fiskifélags Íslands, sem þá höfðu með þetta mál að gera, — það var áður en til Hafrannsóknastofnunarinnar var stofnað, töldu, að ekki væri hægt með netaveiðum t. d. á Selvogsbankasvæðinu að drepa nema tiltölulega mátulega mikið, eins og þeir sögðu, vissan hluta af hrygningarstofnunum, en ekki meira, það væri aðeins eitt, sem þar réði, og það væri, hvernig hrygningin kæmi út hverju sinni. Þetta sjónarmið fiskifræðinganna á þeim tíma varð þess valdandi, að Alþingi afgreiddi ekki tillöguna þó að ég sé sannfærður um að það var vilji margra alþm., að þessi tilraun yrði gerð. En eftir að þetta álit fiskifræðinganna lá fyrir náðist ekki málið út úr sjvútn.

Ég gerði tilraun til að fá málið inn í þingið aftur, en n. varð ekki sammála um það að ganga á móti áliti fiskifræðinganna og leggja til, að þessi tilraun yrði gerð. Ég hef alltaf harmað, að þetta skyldi ekki takast, og er sannfærður um, að þetta hefur valdið okkur mun meira tjóni en við kannske í dag getum gert okkur grein fyrir, því að þróunin hefur orðið sú, hverjum sem það er um að kenna, að fiskigegnd hefur minnkað mjög mikið, og ég segi alveg óhikað óhugnanlega mikið, á einmitt þessu svæði, Selvogsbankanum, og þá fyrst og fremst á hrygningarsvæðunum þar. Sjómenn halda því mjög ákveðið fram og hafa gert það um langan tíma, að það sé ekki einasta það, að svo og svo stór hluti af fiskigöngum, sem inn á þetta svæði koma til hrygningar sé drepinn, heldur sé árangur með netaveiðarfærin ofan í hrygningarstöðvarnar það mikill að hann hreinlega flæmi fiskinn af hrygningarsvæðunum. Það sé kannske frekar ástæðan fyrir hinni minnkandi fiskigegnd á því svæði heldur en það, hve stór hluti af stofninum hafi verið drepinn. En þetta er auðvitað atriði, sem er útilokað að nokkur niðurstaða fáist um, nema gerðar séu um það beinar tilraunir.

Nú hefur, sem betur fer verið sett í reglugerð ákvæði um, að tiltekið svæði og það allstórt svæði á Selvogsbankahrauni verði alfriðað. Það var um það nokkur ágreiningur í fyrra, hvort þau tímamörk, sem í þeirri reglugerð eru, væru rétt eða ekki. Það hefur komið í ljós, að margir fiskifræðingar, sem gerðu athuganir í þessu sambandi á s. l. vertíð, töldu að tímamörkin hefðu ekki verið nægjanlega löng. Nú hefur reglugerðinni verið breytt í þá átt, eins og fiskifræðingar nú telja að þau þurfi að vera, og ber vissulega að mínum dómi að fagna því, að ef ekki næst neinn árangur af þeirri friðun, sem þar er gert ráð fyrir, þá er ég ákaflega hræddur um, að við séum komin í mikinn vanda í sambandi við fiskveiðarnar á vetrarvertíð hérna fyrir Suður- og Suðvesturlandi. En árangur kemur auðvitað ekki í ljós fyrr en eftir 1–3 ár, og geta fiskifræðingar á þessu tímabili fylgst með því, hvað þarna er að gerast. En auðvitað er það algert frumskilyrði, að þetta svæði verði varið alveg undantekningarlaust fyrir öllum veiðum. Okkur var tjáð, að á þessu hefði orðið allverulegur misbrestur á s. l. vetri, og vil ég mjög harma það. Ég ætlast til þess, að þau rn., sem þetta mál heyrir undir, hafi á því vakandi auga, að ekkert slíkt endurtaki sig í vetur eða á komandi vetrarvertíð, því að ef það á að gerast, rennur þetta allt saman út í sandinn. Við fáum aldrei neinar öruggar niðurstöður um það, hvort það verndar fiskistofnana á hrygningarsvæðunum að gefa fiskinum tiltekið friðland, meðan hrygning fer fram, eða ekki. Það fæst aldrei úr þessum málum skorið, nema það liggi ljóst fyrir, að svæðið hafi verið alveg varið og þar hafi engar veiðar átt sér stað þennan tiltekna tíma. Væri það vissulega illa farið, ef ekki tækist að koma á ströngum reglum um það og framfylgja þeim, að þarna geti ekki verið um nein brat að ræða, sem máli skipti.

Ég tel, að það séu engin vandkvæði á að ver,ja þetta svæði. Ég byggi það á reynslu, sem Vestmanneyingar fengu á sínum tíma, þegar samkomulag náðist við breska togaraeigendur fyrir milligöngu umboðsmanna þeirra í Eyjum. Þá náðist samkomulag um það, að hinir bresku tograrar færu ekki nema inn að tilteknum mörkum á Vestmannaeyjabankasvæðinu. Þetta var gert einfaldlega á þann hátt, að svæðið var girt af með ljósbaujum og sett við það varðskip. Þetta bar þann árangur, að ég held, að það hafi verið hrein undantekning og hreint óviljaverk, ef breskur togari braut þetta samkomulag. Og ég hygg, að ef þetta væri gert á friðunarsvæðinu á Selvogsbanka, og hægt væri að gera það enn betur með endurskinsmerkjum, sem koma fram á radartækjum, þá sé hægt að verja svæðið fyrir öllum veiðum. Og ég tel, að það þurfi hreinlega að setja varðskip inn á svæðið, eitt eða fleiri, þessa 40 daga, sem reglugerðin gerir ráð fyrir, að svæðið sé alfriðað, því að ég tel mjög mikilvægt, að úr því fáist skorið, hvort slík friðun ber árangur eða ekki. Ég tel þetta, eins og ég hef sagt áður, mikilvægt, vegna þess að ef slíkar friðunarráðstafanir bera ekki árangur, þurfi vissulega að endurskoða ýmis ákvæði í sambandi við fiskveiðar hér við Suðvesturland.

Ég skal ekki fara að ræða friðunaraðgerðir í sambandi við uppeldisstöðvar ungfisks. Þar greinir menn einnig á, ég vil segja bæði fiskimenn og aðra, hvernig að þeim eigi að standa. Ég hef aldrei haft trú á því, að það þýddi nokkuð að vera að friða tilteknar uppeldisstöðvar ungfisks 2 eða 3 mán. á ári, heldur yrði að afmarka svæðið og friða það í 1–2 eða fleiri ár, til þess að fiskifræðingar gætu sagt með einhverjum rökum, hvort friðun hefði borið árangur eða ekki. Ef svæði, þar sem uppeldisstöðvar eru, er aðeins friðað í 2 mánuði á ári og síðan veitt á því í 10 mánuði, þá segir það sig sjálft, beri friðunin árangur, að þá sækja togskipin í enn frekari mæli inn á svæðið þá 10 mánuði, sem það er opið. En þarna stangast sjónarmiðin á. Fiskifræðingar segja og eflaust með nokkrum rökum, að ungfiskurinn færi sig til á hinum ýmsu svæðum á ýmsum tímum, og má það vel vera. Ekki skal ég deila um það. En ég hef alltaf talið, að ef fiskurinn fengi frið á tilteknum svæðum um lengri tíma, hvort sem það er í sambandi við hrygnun eða uppeldisstöðvar, þá mundi hann hreinlega sækja inn á þau svæði og kannske vaxa þar upp og síður leita út fyrir þau, ef hann yrði ekki fyrir ónæði á svæðunum. En þetta er aðeins einn þátturinn, sem þó hlýtur að mínum dómi að vera mjög mikilvægur, í sambandi við skipulagningu fiskveiðanna hér við strendur landsins. Þegar Íslendingar eru búnir að ná fram marki sínu um að friða allt landgrunnið, sem allir vona að verði innan ekki langs tíma, þá tel ég, að enn á ný þurfi að endurskoða allar reglur um veiðar, bæði botnvörpuveiðar og annað, og friðun, bæði hrygningarsvæða og uppeldisstöðva ungfisks, og kannske gera allverulegar breytingar á því frv., sem nú er verið að lögfesta.