14.12.1973
Efri deild: 36. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1435 í B-deild Alþingistíðinda. (1239)
94. mál, lyfjaframleiðsla
Frsm. meiri hl. (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Það er ekki mikil ástæða til þess reyndar að fara að hefja hér neinar allsherjarumr, um þetta mál. Ég vildi aðeins leiðrétta það hjá hv. 6. þm. Reykv., að ég sagði ekki, að það þyrfti að afgreiða frv. fyrir jól, ég sagði aðeins, að ég teldi æskilegt, — það væri mín skoðun, — að það yrði afgreitt fyrir jól, en á mig hefur ekki verið lögð nein pressa þar að lútandi. Ég hefði t. d. sjálfsagt rekið meira en ég hef gert á eftir því, að þetta frv. yrði tekið á dagskrá og að nál. minni hl. lægi fyrr fyrir en það hefur gert, ef ég hefði verið með einhverjar þvinganir yfir höfði mér. Reyndar talaði hv. þm. um fleiri þvinganir í sambandi við þetta mál, m. a. um einhverjar þvinganir gagnvart þeim Pharmaco-mönnum, sem hefðu svipuna yfir höfði sér varðandi þetta mál allt saman. Það kom ekki fram a. m. k. af hálfu þeirra ágætu manna, sem á okkar fund komu, formanns og framkvæmdastjóra fyrirtækisins, að þeir lægju þarna undir neinni þvingun, og ég heyrði þá á margan hátt mæla með þessari skipan mála, þó að þeir væru ósáttir við eitt tiltekið atriði og segðu eðlilega, að þeir hefðu kosið að fá frekari stuðning til að byggja upp sitt fyrirtæki.
Hvernig er þá yfirleitt með þessi góðu einkafyrirtæki okkar? Öll æpa þau á ríkið og lánastofnanir um fjárhagsstuðning og aukna möguleika til þess að koma undir sig fótunum, og til stuðnings þess er alltaf höfðað. Það er þess vegna hlálegt, þegar verið er næstum í sömu andránni af sömu aðilum að tala um ríkið sem einhverja ófreskju, sem hvergi megi nálægt neinum málum koma. Ég hef hingað til haldið, að ríkið værum við, það væri bara fólkið í landinu, sem þar væri á ferðinni, og í málefnum þess yrði að líta á hagsmuni heildarinnar, en ekki endilega að hugsa fyrst og fremst Um að koma fótunum undir ýmsa gróðaspekúlanta. Það hefur ekki verið meining mín, að það væri helsta verkefnið, sem ríkið ætti að hafa.
Ég skal ekki fara nánar út í þessa deilu. Það er rétt, að komi fram, að ég varð ekki var við neina sérstaka andstöðu frá þeim Pharmaco-mönnum. Það var að því látið liggja í sambandi við 3. brtt., að ég hefði á einhvern hátt sagt ranglega frá. Það er alls ekki rétt. Pharmaco-menn komu með brtt. til okkar nm. á fundinn, þeir komu með hana beina leið til okkar á fundinn og lögðu hana fyrir okkur, og það er till. nákvæmlega eins og hún liggur fyrir núna. Þeir minntust ekki á, að þar hefði verið um neina pressu að ræða á nokkurn hátt, enda hygg ég, að þeir hafi sjálfir komið til fundar við Almar Grímsson deildarstjóra að fyrra bragði varðandi þetta frv., þegar þeir vissu, að það var komið til afgreiðslu.
En ég segi það enn og aftur, að ég sé ekki ástæðu til að fara að ræða hér um ríkisafskipti yfirleitt, hvorki af þessum né öðrum málum. Það er miklu meira mál en svo, að það taki því að fara að hefja einhverjar eldhúsdagsumr. uu það hér út af þessu máli.