14.12.1973
Efri deild: 36. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1440 í B-deild Alþingistíðinda. (1243)
94. mál, lyfjaframleiðsla
Frsm. meiri hl. (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Ég segi það alveg eins og er, að meiri hl. af þeim fsp., sem hér voru bornar fram, eða flestar þeirra voru hreinlega á því stigi, að það er ráðh., sem þar yrði úr að skera, varðandi t. d. fjárhagshlið þessa máls og annað því um líkt, það var spurt allnáið um það. Hins vegar er ég ekki alveg með á því, hvað næstsíðasta ræðumanni gekk illa að skilja þetta frv. og tilgang þess. Ég held, að hann liggi nokkuð ljóst fyrir. En eftir þessar ræður hv. sjálfstæðismanna hér — (MJ: Hver er tilgangur frv.?) — þá er ég steinhættur að skilja í því, hvaða stefnu flokkurinn sem heild hefur í þessu máli. Þar stangast hvað á við annað. Tilgangur frv., eins og honum er lýst þarna, er sá möguleiki að koma þessu fyrirtæki á fót, og ég gat ekki heyrt betur á þeim fulltrúum, sem komu frá þessu fyrirtæki, Pharmoco, en þeir hefðu á því fullan hug að samningar um þetta tækjust. Ég lýsti því áðan í framsögu, að þeir hefðu talið á því ýmsa kosti, teldu það jákvætt á margan hátt og tilgangur frv. væri fyrst og fremst sá að greiða fyrir því, að þetta gæti tekist.