14.12.1973
Neðri deild: 41. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1444 í B-deild Alþingistíðinda. (1252)

Umræður utan dagskrár

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Það, sem nú er um að ræða, er það neyðarástand, sem ríkir á Höfn, og hvað sem allri framtíðarathugun á þessum málum líður, þá er það, sem ríður nú á, að bæta þar úr. Það er búið að útvega vél, en hana þarf að flytja á staðinn, og það, sem nú stendur á, er að koma henni með nægilega skjótum hætti. Það hefði verið sjálfsagt að láta varðskip fara þegar í stað og flytja vélina á milli, og Þór er þarna fyrir austan, en þannig er því miður háttað, að hann hefur ekki tæki, bómu, til að lyfta nema 12 tonnum, en þessi vél er 14 lestir. Ég hef gefið Landhelgisgæslunni fyrirmæli um að gera allt, sem hún getur, til þess að reyna að vera þarna til hjálpar og aðstoðar. Getur komið til greina að senda þarna inn skip, sem ekki eru þó nema lítil, og vera þar og framleiða það litla, sem þau geta, en það er náttúrlega lítið gagn í því. Enn fremur er mér kunnugt um og ég vil segja það, af því að samgrh. er ekki hér við, að hann mun gefa Skipaútgerð ríkisins fyrirmæli um að fara svo fljótt sem unnt er á milli þessara staða og flytja þessa vél. En þannig stendur á, að bæði skip Skipaútgerðarinnar eru í ferð og ekki þarna nálægt. En ég tel alveg sjálfsagt, og mér er kunnugt um, að hann mun haga því þannig, að það skipið, sem nær er, verði látið sleppa öllum viðkomustöðum og fara beinustu leið þarna á milli. Ég mun hins vegar sjá til þess, að skip úr landhelgisgæslunni geti komið við á þeim höfnum, sem þetta skip átti að fara á. Ég vona þess vegna, að það sé verið að gera þarna með skjótum hætti þær ráðstafanir, sem mögulegt er að gera. En það er áreiðanlegt, að eftir þeim upplýsingum, sem borist hafa barna að austan, verður ekki málað of dökkum litum, hvernig ástandið er í raun og veru.