14.12.1973
Neðri deild: 41. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1445 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Gils Guðmundsson):

Ég vænti þess, að hv. ræðumenn geti rætt þessi mál innan þess ramma, sem um er að ræða, þegar um fsp. er að ræða, þannig að ég tel ekki möguleika á því að fara hér út í almennar umr. um orkumál, en vænti þess, að fyrst og fremst verði rætt um það mál, sem hér var spurst fyrir um.