14.12.1973
Neðri deild: 42. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1461 í B-deild Alþingistíðinda. (1295)

101. mál, þörungavinnsla við Breiðafjörð

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Bjartansson) :

Herra forseti. Hér er að minni hyggju um mjög veigamikið mál að ræða, en samt mun ég ekki halda neina meiri háttar ræðu af þessu tilefni. Ég gerði mjög ítarlega grein fyrir þessu máli, þegar það var lagt fram í Ed. í fyrri hluta nóv., og sú grg., sem ég flutti þar, er birt í Alþingistíðindum, 6. hefti þessa þings, þannig að þeir, sem kynnu að hafa áhuga á að kynna sér hana, hafa það tiltækt hjá sér. Um þær mundir var einnig dreift hér til allra þm. skýrslu frá undirbúningsfélagi um þörungavinnslu, sem við settum á laggirnar með löggjöf á síðasta ári og hefur unnið þetta frv.

Ég hygg því, að ég þurfi ekki að rekja efni þessa frv. hér fyrir hv. þd., og þeim mun síður sem ég bygg, að það sé ekki ágreiningur um þetta mál. Ed. afgreiddi það samhljóða frá sér, gerði á því nokkrar breyt. og þá veigamesta, að þar er lögð meiri áhersla en áður á vistfræðilegar rannsóknir ag könnun á þeim þáttum. Ég tel, að þær breyt. séu mjög til bóta.

En ég hef ákaflega mikinn hug á því, að unnt verði að samþykkja þetta frv. og gera það að lögum fyrir áramót. Ástæðan fyrir því er sú, að forsendur stofnunar þessarar verksmiðju eru samningur við skoskt fyrirtæki, sem þarf á þessu háefni að halda árið 1975, og til þess að við getum nýtt þennan möguleika á viðskiptum, þurfum við að hafa mjög hraðan á við allan undirbúning að þessu máli. Þarna er um að ræða ýmis atriði, sem verður að hefjast handa um þegar að loknum áramótum, og þess vegna fer ég þess á leit við hv. þm., að þeir aðstoði við það að tryggja þessu máli það skjóta afgreiðslu, að unnt verði að afgreiða það sem lög frá Alþingi fyrir áramótin.

Ég læt svo þessi orð nægja, en legg til, herra forseti, að málinu verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. iðnn.