15.12.1973
Efri deild: 38. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1467 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)

102. mál, veiðar með botnvörðu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelgi

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er að meginefni til samið af sérstakri n., sem skipuð var til þess að gera endurskoðun á gildandi lagareglum um nýtingu fiskveiðilandhelginnar. Þessi n. kynnti sér málið allrækilega og ferðaðist víða um landið, og ég hygg, að hún hafi leitað til flestra þeirra, sem veruleg afskipti hafa af þessum málum, eftir skoðunum þeirra og áliti og byggði síðan till. sínar á þeim upplýsin um, sem hún hafði fengið almennt um málið. Á síðasta þingi var lagt fyrir Alþ. frv., sem samið var af þessari n., en eins og hv. þm. er kunnugt, vannst ekki tími til að afgreiða málið á síðasta þingi, og því var þá sem sagt frestað.

Nú á þessu þingi hefur frv. verið lagt aftur fram, eins og ég sagði, í meginatriðum í þeim búningi, sem þessi n. setti málið í, þó með nokkrum minni háttar breytingum frá fyrra frv. Þetta frv. eða aðalefni þess hefur því legið alllengi fyrir hv. þm. og ég efast ekki um, að svo til allir þm. hafa kynnt sér efni frv. allrækilega. Ég hygg, að málið hafi bæði verið rætt allmikið í stjórnmálaflokkunum öllum og eins meðal einstakra þingmannahópa fyrir hin einstöku umdæmi landsins. Það er því í rauninni ekki nein þörf á því, að ég hafi langa framsögu fyrir málinu að þessu sinni, enda liggur nú orðið mikið á að fá afgreiðslu málsins tryggða á þessu þingi, því að eins og hv. þm. er kunnugt, falla gildandi lagaákvæði um togveiðiheimildir í fiskveiðilandhelginni úr gildi um næstu áramót, og fyrir þann tíma verða ný lagaákvæði að hafa verið samþ. um þetta efni hér á Alþ.

Meginefni þessa frv. er það, að gert er ráð fyrir talsvert verulega meiri takmörkunum, einkum við togveiðar, í fiskveiðilandhelginni en í gildi hafa verið nú um nokkurt skeið. Er gert ráð fyrir því, að einkum hinir stærri togarar verði að færa sig lengra frá landi með veiðar sinar en áður hefur verið, og ýmsar aðrar nýjar takmarkanir er hér ætlað að setja í lög. Þó er rétt að benda á, að í þeim búningi, sem frv. er nú, þegar það kemur frá Nd., er ekki gengið eins langt í að auka við hömlur á þessu sviði og gert hafði verið ráð fyrir í frv., eins og það var lagt fyrir þingið og eins og fiskveiðilaganefndin hafði hugsað sér. Við nánari athugun á málinu í Nd. þótti rétt að draga nokkuð úr þessum hömlunartill. og heimila áfram nokkru meiri togveiðar í fiskveiðilandhelginni en fiskveiðilaganefndin hafði gert ráð fyrir.

Auk þess er svo að finna í þessu frv. mörg önnur nýmæli varðandi nýtingu fiskveiðilandhelginnar almennt, þ. á m. ýmis þýðingarmikil heimildarákvæði fyrir sjútvrn. til að grípa inn í varðandi fiskveiðarnar, þar sem talin er þörf á, að slíkt sé gert.

Ég tel fyrir mitt leyti, að í öllum aðalatriðum stefni frv. í rétta átt og sé þýðingarmikið spor fram á við fyrir okkur í fiskverndar- og fiskstjórnunarmálum frá því, sem verið hefur. Það stefnir að því að hamla gegn ofveiði, að auka friðun á vissum svæðum og að því m. a., að sjútvrn. í nánu samráði við Hafrannsóknastofnunina geti á auðveldari hátt gripið inn í til að koma í veg fyrir ofveiði en hingað til hefur verið.

Ég vil leggja á það sérstaka áherslu, að ég vænti þess, að það megi takast hér í hv. d. samkomulag um að afgreiða málið í öllum meginatriðum á þeim grundvelli, sem Nd. hefur nú fallist á. Það er þýðingarmikið í máli eins og þessu, að allviðtæk samstaða geti skapast um afgreiðslu málsins. Við vitum, að það eru uppi mörg sjónarmið og mjög mismunandi um það, hvaða reglur skuli gilda varðandi þessi efni á hverjum tíma og er því varla hægt að koma saman löggjöf um þessi efni, án þess að hinir ýmsu aðilar slái nokkuð af sínum aðalsjónarmiðum, fallist á nokkur atriði til samkomulags, ef þeir telja, að meginstefnan sé rétt.

Mér er kunnugt um, að það er eitt atriði sérstaklega í þessu frv., sem nokkur ágreiningur er um og virðist vera allviðkvæmt mál. Í upphaflega frv., 10. gr., þeirri heimild, sem sjútvrn. er veitt með þeirri gr. varðandi skipan dragnótaveiða, var gert ráð fyrir því að undanskilja Faxaflóasvæðið þessari almennu heimild sjútvrn., en um það hefur verið gerð alveg sérstök samþykkt hér á Alþ. að bauna dragnótaveiði og botnvörpuveiði í sjálfum Faxaflóa. En það varð niðurstaðan í sjútvn. Nd. og í Nd. Alþ. að hafa ekki þetta sérákvæði bundið í lagagr., heldur skyldi um Faxaflóann fjallað á sama hátt og ýmis önnur veiðisvæði við landið. Ég vil taka það fram í sambandi við þetta, að ég veit, að hér er um viðkvæmt mál og ágreiningsmál að ræða. Ég tel hins vegar fyrir mitt leyti, að það sé í rauninni fráleitt að miða við það, hvernig þessi mál liggja fyrir. Þar sem vitað er um mikinn ágreining um, hvort slíkar veiðar skuli heimila í Faxaflóa eða ekki, hef ég ekki trú á því, að neinn maður í embætti sjútvrh. fari að veita leyfi af þessu tagi, á meðan slíkur ágreiningur er fyrir hendi um þetta hér við flóann. Það er líka skoðun mín, að ekki verði hægt fyrir ráðh. að veita almennt dragnótaveiðiheimildir á hinum ýmsu stöðum við landið, þar sem vitað er um mikinn ágreining um hin einstöku svæði, en stundum er hægt að koma því þannig fyrir, að heimilaðar séu dragnótaveiðar, ef svæðunum er skipt þannig niður, að bæði sjónarmiðin geti átt nokkurn rétt á sér. En í þessum efnum er Faxaflói nokkuð mikil heild. Frá mínu sjónarmiði skiptir því ekki miklu máli, hvort 10. gr. er varðandi þetta efni í því formi, sem hún var upphaflega frá fiskveiðilaganefndinni, eða hvort hún er í því formi, sem hún kemur frá Nd. Ég tel því fyrir mitt leyti ekki þörf á að gera hér breytingu á, og hefði vænst þess, að hér hefði getað orðið samkomulag um afgreiðslu málsins, helst án þess að þyrfti að senda það aftur til Nd., að ég tala nú ekki um að reyna að koma í veg fyrir, að ágreiningur kunni að skapast á milli þd. um málið og þar með væri málinu jafnvel stefnt í hættu.

Herra forseti. Af því að ég veit, að sjútvn. þessarar hv. d. hefur fylgst allrækilega með undirbúningi og afgreiðslu málsins til þessa og hún fær nú málið enn til athugunar, sé ég ekki þörf á því að lengja mál mitt hér við 1. umr. málsins og vil leyfa mér að leggja til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. sjútvn. til fyrirgreiðslu, og vil vænta þess, að hún bregðist vel við og afgreiði málið frá sér eins fljótt og tök eru á.