15.12.1973
Efri deild: 38. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1472 í B-deild Alþingistíðinda. (1317)

102. mál, veiðar með botnvörðu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelgi

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Eins og síðasti hv. ræðumaður sagði, skal ég ekki lengja þessar laugardagsumr., en sem þátttakandi í fiskveiðilaganefnd þykir mér þó rétt að segja örfá orð.

Mér sýnist, að menn verði að gera sér grein fyrir því, að fiskveiðilaganefnd lagði einkum tvö atriði til grundvallar fyrir starfi sinu. Í fyrsta lagi var sú staðreynd, að við höfðum fært fiskveiðilögsöguna út í 50 sjómílur og þannig gert ráðstafanir til að eignast stórum stærra svæði en við höfðum áður til ráðstöfunar, og í öðru lagi var litið á það sem sjálfsagða skyldu að haga veiðum okkar þannig, að sem mest friðun mætti verða fyrir fiskistofnana, sem við byggjum svo mjög á og eru sannarlega í stórri hættu. Fiskveiðilaganefnd taldi því rétt að reyna að raða veiðunum eins og best mætti verða.

Nefndin lagði í upphafi áherslu á að fá till. frá þeim aðilum, sem einna gerst eiga að þekkja friðunarsjónarmið í þessu sambandi, einkum Hafrannsóknastofnuninni, en skoðaði þau síðan í nánu samhengi við byggðasjónarmið um land allt, bæði með fundum og með hliðsjón af umsögnum einstaklinga og samtaka, og reyndist víða nauðsynlegt að breyta út af einhliða friðunarsjónarmiðum. Engu að síður voru þetta ráðandi sjónarmið hjá n., í fyrsta lagi skipuleg nýting þessarar stærri fiskveiðilögsögu og í grundvallaratriðum aukin friðun fyrir okkar fiskistofna.

Í því sambandi þótti eðlilegt að raða okkar stærri skipum utar og þeim minni nær, eins og kemur greinilega fram í frv.

Nú hefur í meðferð Nd. verið gerð allmikil breyting á þessu frv. Að ýmsu leyti þykja mér þær breytingar eðlilegar. Fiskveiðilaganefnd taldi ekki rétt við seinni meðferð n. á málinu að fara að breyta afstöðu sinni með tilliti til samninganna við Breta,en engu að síður er það staðreynd, að þeir samningar hafa sannarlega breytt grundvallaratriðum í þessu máli. Við búum við þá staðreynd, að breskir togarar hafa heimild til veiða við strendur landsins viðast hvar upp að 12 sjómílum, þannig að álagið á þessu ytra belti verður stórum meira en lagt var til grundvallar við meðferð n. á málinu. Mér sýnist því eðlilegt, að Nd. hefur gert þarna á breytingar með tilliti til þessarar staðreyndar og opnað viss svæði innan 12 sjómílna fyrir veiðum íslenskra togara. Þetta er bráðabirgðaástand, sem mér sýnist hins vegar að verði að taka til endurskoðunar, þegar full yfirráð yfir 50 sjómílunum og jafnvel meira hefur fengist.

Hins vegar hefur hv. Nd. einnig gert aðrar breytingar, sem mér sýnist orka tvímælis. Vil ég þá í fyrsta lagi taka undir það, sem komið hefur fram hjá tveimur hv. síðustu ræðumönnum að opna dyrnar fyrir dragnótaveiði á Faxaflóa. Um þetta var allmikið rætt í fiskveiðilaganefnd, og sýndist n. eðlilegt, að það reynslutímabil, sem ákveðið var, þegar það bann var sett, fengi að haldast og engin breyting yrði þar á gerð, fyrr en því væri lokið. Ég tel fyrir mitt leyti, að þarna hafi verið um mistök að ræða, og ég mun standa með þeim, sem vilja lagfæra það í þessari deild.

Annað er það atriði, sem ég tók ekki eftir, að tveir síðustu ræðumenn minntust á, sem mér sýnist orka tvímælis, og það er opnun fyrir botnvörpu allt upp að landsteinum fyrir Krýsuvíkurbjargi. Það er að vísu rétt, að stærð á fiski fer ekki alveg eftir fjarlægð frá landi. Hins vegar þurfum við þar að binda okkur við einhverjar ákveðnar reglur, og mér sýnist, þegar annað betra er ekki til staðar, ekki óeðlilegt að ýta botnvörpunni nokkru utar og a. m. k. ekki að leyfa henni aðgöngu að grunnmiðum þessa lands eða alveg upp að landsteinum. Ég held, að það sé nokkurs virði fyrir okkur Íslendinga að sýna vilja í verki til þess að dreifa okkar veiði yfir þessa fiskveiðilögsögu og það verði best gert á þann máta, sem lagt var til í upphaflega frv, að þessu leyti. Ég fyrir mitt leyti mun því skoða afstöðu mína til þeirrar breytingar, sem þar var á gerð.

Þetta eru þau tvö atriði, sem ég í fljótu bragði tel varhugaverð af þeim breytingum, sem Nd. gerði, og ég taldi rétt að koma á framfæri við 1. umr.