15.12.1973
Efri deild: 39. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1476 í B-deild Alþingistíðinda. (1324)
153. mál, launaskattur
Frsm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti, Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á l. nr. 14 15. mars 1965, um launaskatt. Frv. þetta fjallar um álagningu 3½% launaskatts og skiptingu hans milli Byggingarsjóðs ríkisins og ríkisins. Frv. svipaðs efnis hefur verið á ferðinni hér í þinginu fyrir hver jól, enda hafa lög um þetta efni aðeins gilt frá ári til árs, og svo er einnig um það frv., sem hér liggur fyrir.
N. hefur athugað frv. og leggur til, að það verði samþ. óbreytt, — 2 nm., Magnús Jónsson og Geir Hallgrímsson, voru fjarstaddir afgreiðslu málsins.