17.12.1973
Efri deild: 41. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1481 í B-deild Alþingistíðinda. (1336)

167. mál, Norðurlandasamningur um hjúskap, ættleiðingu og lögráð

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þetta frv. er um heimild fyrir ríkisstj. til að láta öðlast gildi samkomulag milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um breyt. á Norðurlandasamningi frá 6. febr. 1931 um alþjóðleg einkamálaréttarákvæði, hjúskap, ættleiðingu og lögráð, en samkomulag þetta var gert í Stokkhólmi 20. nóv. 1973.

Samning Norðurlandanna um það efni, sem hér var rakið, frá 6. febr. 1931 var heimilað að fullgilda, að því er Ísland varðar, með l. nr. 29 8. sept. 1931, en í þessum samningi eru settar reglur um alþjóðleg einkamálaréttarákvæði um hjúskap, ættleiðingu og lögráð, er gilda skulu á milli Norðurlanda. Grundvöllur samningsins er hið nána lagasamræmi á Norðurlöndum á þessu sviði. Samningi þessum hefur verið breytt tvisvar lítillega, á árunum 1954 og 1969.

Á þessu ári hefur orðið allveruleg breyting á sænskum hjúskaparlögum, og taka hin nýju sænsku hjúskaparlög gildi 1. jan. 1974. Segja má, að breyt. þær, sem nú hafa verið lögfestar í Svíþjóð, raski nokkuð hinu nána lagasamræmi Norðurlandanna, að því er hjúskaparlöggjöfina varðar. Þó eru breytingarnar ekki svo umfangsmiklar, að grundvelli þessa Norðurlandasamnings sé raskað, en nauðsynlegt hefur hins vegar verið talið að gera nokkrar breyt. á samningnum vegna þessara nýju sænsku hjúskaparlaga.

Endurskoðun á hjúskaparlögum og jafnframt á lögum um fjármál hjóna fer nú fram á öllum Norðurlöndunum. Er því líklegt, að heildarendurskoðun á samningnum verði nauðsynleg á næstu árum. Hins vegar hefur ekki verið talið fært að draga að fá staðfestar þær breyt. á honum, sem felast í þessu samkomulagi, en samkomulagið er birt sem fylgiskjal með frv.

Um það, í hverju þessar breytingar eru fólgnar, eru skýringar í aths., sem ég sé ekki ástæðu til að rekja. Með þessu samkomulagi er ekki leyst úr öllum vandamálum, sem upp geta komið í sambandi við það misræmi, sem verður á milli lagareglna um skilnað samkv. sænskum l. annars vegar og lagareglna hinna fjögurra ríkja hins vegar, en þó ættu ekki að vera vandkvæði á því að leysa úr þeim vandamálum vegna lagamisræmis í höfuðatriðum.

Herra forseti. Það er æskilegt að gera ráð fyrir því, að þetta samkomulag geti orðið löggilt um áramót, og þess vegna væri ákjósanlegt, að þetta frv. gæti gengið með nokkrum hraða í gegn. Ég vona, að það mæti ekki fyrirstöðu, vegna þess að ég geri ekki ráð fyrir því, að það verði neinn ágreiningur um það. Ég vil leyfa mér að leggja til. að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.