17.12.1973
Efri deild: 42. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1482 í B-deild Alþingistíðinda. (1341)

94. mál, lyfjaframleiðsla

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Í öllum þessum óskaparönnum, verð ég að biðja afsökunar á því, að maður tekur ekki eftir sem skyldi, en hér var komið að máli, sem ég leyfði mér að gera nokkuð að umtalsefni við 2. umr. þess. Hæstv. heilbrrh. var þá ekki viðstaddur, og vil ég því gjarnan leyfa mér að endurtaka nokkur atriði, sem ég spurðist fyrir um við þá umr., en það var nánast til þess að fá úr því skorið, hvort ég skildi frv. rétt eða einstök atriði þess.

Það er í fyrsta lagi, hvort það er ekki rétt skilið, að það sé ekki hugmyndin með þessu frv. að breyta þeim reglum, sem nú gilda varðandi heimildir til lyfjaframleiðslu, ef viðkomandi uppfyllir þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. gr. frv., enda þótt ekki verði af stofnun þess félags, sem er gert ráð fyrir í II. kafla. Í 1. málsgr. 1. gr. er talað um, sem raunar allir vita, að enginn aðili megi framleiða lyf nema að fengnu leyfi ráðh. Þetta er mín fyrsta fsp. Ég skil það að vísu svo, að ekki sé ætlunin að breyta þessu, vegna þess að í öðrum greinum er gert ráð fyrir, að ýmsir aðilar framleiði áfram lyf, og meira að segja í brtt., sem fluttar eru af n., er gert ráð fyrir að gera það ótvírætt, að jafnvel fleiri aðilar megi framleiða lyf, sem þar greinir. En þetta tel ég ákaflega veigamikið til þess að gera sér grein fyrir, hvaða þýðingu eða áhrif þetta frv. kann að hafa.

Í öðru lagi, sem er raunar meginefni aths. minna við frv., er það, hvort í frv. felist í rauninni nokkuð nema það eitt að fá heimild til að steypa saman Lyfjaverslun ríkisins og samtökum lyfsala, ef samkomulag næðist um það, í eitt hlutafélag, sem ríkið á að eiga, að mér skilst, a. m. k. 50% í. Það er mál út af fyrir sig. Er þetta ekki í rauninni eina efni frv? Verðlagning lyfjaframleiðslu er engin nýjung að því leyti til, að þar er þegar verðlagseftirlit og hefur alltaf verið. Lyfjaverðlagsnefnd hefur gert ráð fyrir ákveðnu verði lyfja, þannig að þar er ekki um neina nýjung að ræða.

Mér sýnist við athugun á frv., að eina efnisatriði frv. — og ég bið ráðh. að leiðrétta, ef það er ekki rétt, — sé sú hugleiðing nánast, sem er gert ráð fyrir í II kafla, að myndaður verði þessi félagsskapur. Þá kom það upp í huga minn, hvort þetta frv. væri ekki að ýmsu leyti óeðlilegt, ef þetta er rétt skilið, eins og ég hef skilið það, að þarna væri í rauninni aðeins það eitt nýtt, að það væri verið að leita heimildar til að hefja viðræður við — ja, það er nefndur tiltekinn aðili þarna, hvort þar kunna að vera fleiri aðilar, veit ég ekki, það skiptir ekki meginmáli, að hefja viðræður við aðra lyfjaframleiðsluaðila í landinu um það, að með frjálsum hætti, ég endurtek: frjálsum hætti, verði stofnað til félagsskapar. Ef þetta er rétt skilið hjá mér, hefði mér fundist, að þetta frv. ætti ekki að vera með þessum hætti, heldur ætti það að vera svipað og hefur verið gert í fleiri tilfellum, að veita ríkinu heimild til að stofna einhvers konar undirbúningsfélag, sem ynni að tilteknu verkefni, og síðan yrði leitað staðfestingar Alþ. á því samkomulagi, sem yrði milli þessara aðila, þegar búið væri að ganga frá þeim samningum.

Nú veit ég ekki, hvort þetta samkomulag er það langt komið, að það megi líta svo á, að orðnir séu samningar, þannig að hér sé raunverulega verið að staðfesta þegar gerðan hlut, og þá má út af fyrir sig segja, að væri ekkert við það að athuga að hafa þetta í þessu formi. En mér sýnist þetta bera dálítinn keim af því, að hér sé verið að leggja fram frv. til þess eins að þjóna ákveðinni setningu í tilteknum sáttmála, sem við vitum báðir, hæstv. ráðh. og ég, hvað við er átt með, að hægt sé að fullnægja því, sem er ákaflega merkilegt hugtak, svokallaðri félagslegri stjórn og félagslegum umbótum.

Nú veit ég að vísu ekki, hvað þetta merkir, því að verði ekkert úr þessu samkomulagi, hef ég skilið þetta mál þannig, að Lyfjaverslun ríkisins, sem er þegar til, geti framleitt öll þau lyf, sem hún vill. Það eru engar hömlur á því. Það eru fullgild lög fyrir því. Hún mun þá halda áfram sínu starfi, og lyfjaframleiðendur, ef þeir vilja ekki fallast á það, sem segir í þessu frv., munu líka halda áfram sínu starfi og hafa rétt til þess að starfa áfram, ef þeir fullnægja þeim skilyrðum, sem eru í 1. gr. frv. Flestir þeir aðilar hafa þegar leyfi, og varla er verið að bíða eftir þeim. En sé þetta hins vegar svo, að málið sé komið á það úrslitastig, að hér þurfi ekki lengur að leita neinna bráðabirgðaheimilda, þá hefði í rauninni verið eðlilegra að hafa það í því formi og gera þá ráð fyrir því, að Lyfjaverslun ríkisins yrði lögð niður. Það eru að vísu mjög óljós ákvæði til um Lyfjaverslun ríkisins, en það er ekki gert ráð fyrir í þessu frv., að hún verði lögð niður. Og varla er ætlunin, að Lyfjaverslun ríkisins starfi áfram sem lyfjaframleiðandi, ef þetta nýja fyrirtæki verður sett á laggirnar.

Ég vil taka það skýrt fram, að ég hef ekkert á móti þeirri hugmynd, að slíkt sameignarfyrirtæki ríkis og einstaklinga verði myndað, eins og ég upplýsti við 1. umr., og ég vil aðeins endurtaka, af því að hæstv. ráðh. er hér staddur, það, sem honum raunar vafalaust er kunnugt um, að þegar lyfsölustjóri féll frá fyrir nokkrum árum, þá fór fram athugun á því og nokkrar viðræður milli lyfsala og heilbrrn. og fjmrn. um, hvort ekki væri rétt að kanna möguleika á því að efna til sameiginlegrar lyfjaframleiðslu, þannig að Lyfjaverslun ríkisins yrði hlutdeildaraðili í slíku sameiginlegu lyfjaframleiðslufyrirtæki einkaaðila og ríkisins. Úr því varð ekki þá, og getur verið, að það hafi ekki verið nægilega vel að því unnið, ég skal ekki segja um það, menn voru þá ekki reiðubúnir til þess. Í rauninni taldi Lyfjaverslun ríkisins líka á því ýmsa annmarka og var þess ekki sérstaklega hvetjandi eða forráðamenn bennar. Alla vega varð ekki úr því. En ef þetta er nú komið það langt, eins og má ætla, úr því að yfirleitt er verið að sýna þetta frv. hér, að gert sé ráð fyrir því, að þetta verði að raunveruleika, þá finnst mér, eins og ég áðan sagði, að það hefði verið eðlilegt að gera þá ráð fyrir, að samtímis gengi Lyfjaverslun ríkisins inn í þetta fyrirtæki og yrði lögð niður.

En það er annað atriði í því sambandi, sem ég einnig gerði fsp. um og ég finn ekki hér nein ákvæði um, og það er, að ef stofnað verður hlutafélag, þá þarf að hafa eitthvert fjármagn, og hvað er ætlunin, að fjármagn þessa hlutafélags sé mikið, og hvað leggur ríkið þar fram. Ég hygg, að það sé fram undan þörf á að byggja yfir Lyfjaverslun ríkisins, þó að hún haldi áfram í óbreyttu formi. Ég spyr að þessu, til þess að hv. þm. geti gert sér grein fyrir því, hvernig ætlunin er að byggja þetta fyrirtæki upp, því að það getur auðvitað haft veigamikla þýðingu, bæði varðandi framgang þess, hvernig því vegnar, að það sé vel upp byggt, en að hinu leytinu haft þá þýðingu, að ef ríkið sem hinn sterki aðili gerir of miklar fjárkröfur, þá verður ómögulegt fyrir einkaaðila að gerast þarna aðilar að. Nú er ég ekki að segja, að það eigi að vera svo, en mér finnst eðlilegt, að þær upplýsingar liggi fyrir, hvernig ætlunin er að byggja fyrirtækið fjárhagslega upp, þ. e. a. s. hvert verði hlutafé þess.

Ég held, herra forseti, að þetta hafi aðallega verið það, sem ég ræddi um í ræðu minni við 2. umr. þessa máls og ég hefði gjarnan viljað fá ljósari skýringar á, vegna þess að sannast sagna er mér ekki alveg ljóst, eins og þetta mál liggur fyrir, til hvers það er flutt, nema eins og ég segi, að það sé komið það langt á leið, þessar hugleiðingar, að það sé ætlunin og þegar ráðið, að segja má, að leggja niður Lyfjaverslun ríkisins og stofna hlutafélag með þátttöku ríkisins og einkaaðila í staðinn.