17.12.1973
Efri deild: 42. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1489 í B-deild Alþingistíðinda. (1344)
94. mál, lyfjaframleiðsla
Frsm. minni hl. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Það voru aðeins nokkur orð í tilefni af ræðu hæstv. heilbrrh. áðan.
Ég skal byrja á því, sem nál. okkar minni hl. heilbrrh.- og trn. reyndar lýkur með, þar sem vitnað er til málefnasamningsins. Hæstv. ráðh. taldi sjálfsagt, að þegar talað væri um að tengja lyfjaverslunina heilbrigðisþjónustunni og setja hana undir félagslega stjórn, þá ætti það einnig við framleiðsluna. Ég fæ ekki séð, hvers vegna svo þurfi að vera. Ég vil t. d. minna á það, að í Svíþjóð var lyfjaverslunin, smásöluverslunin, að verulegu leyti tekin í hendur ríkisins, án þess að hafa mikil afskipti, a. m. k. enn þá, af sjálfri lyfjaframleiðslunni, svo að ég tel, að þessi fullyrðing í nál. okkar fái staðist.
Það kom fram hjá hæstv. ráðh., að það er ekki búið að ná neinu fullnaðarsamkomulagi við það fyrirtæki, sem aðallega hefur verið rætt hér um, þ. e. a. s. við Pharmaco, um stofnun sameiginlegs fyrirtækis. Þess vegna stendur enn það, sem ég sagði í framsöguræðu og stendur í nál., að frv., á þessu stigi alla vega, eins og það liggur fyrir, er í algerlega óeðlilegri mynd. Það er fyrirfram verið að setja upp í veigamestu atriðum lög fyrir hugsanlegt félag, sem ekki er búið að ná samkomulagi um, að stofnað verði. Þó að aðilar, sem þetta mál snertir, hafi talið sig hlynnta hugmyndinni um samstarf ríkis og einkaaðila um lyfjaframleiðslu, er sá áhugi vissulega bundinn — ákveðnum skilyrðum og þá fyrst og fremst skilyrði um eignarhluta, sem í frv., eins og það liggur nú fyrir t. d., eru alls ekki í samræmi við þær hugmyndir, sem þessir aðilar hafa áður kynnt og vísað hefur verið til.
Ég vil endurtaka það, sem ég sagði hér við 2. umr. og er tilvitnun úr grg. með frv. um lyfjaframleiðslu, sem lá fyrir í fyrra, og nú er vísað til þeirrar grg., að þar segir í ýmsum athugasemdum, að Pharmaco h/f hafi vísað m. a. til bráðabirgða grg. undirbúningsnefndar, Apótekarafélags Íslands frá 1967, þar sem gert er ráð fyrir, að ríkið ætti 20% hlutafjár. Og í svarbréfi Apótekarafélags Íslands, segir þarna í grg., að það hafi falist jákvæðar undirtektir, en tekið fram orðrétt, „að algert skilyrði slíkrar félagsstofnunar yrði að vera, að enginn einstakur aðili eignist meiri hluta í félaginu, þannig að tryggð sé á hverjum tíma lýðræðisleg stjórn félagsins.“ Þetta atriði t. d. er þess eðlis, að það hlýtur að skipta meginmáli fyrir einkaaðilana, ef ganga á til samstarfs við ríkið.
Ég vil líka endurtaka það, sem ég sagði í umr. um daginn við 2. umr., að með því að setja félaginu fyrir fram lög á þennan hátt í verulegum atriðum, þá sýnist mér, að það sé verið að sýna þessum viðsemjendum ríkisins, einkaaðilunum, fram á það, að það þýði ekkert fyrir þá að vera að gera sér neinar hugmyndir um annað fyrirkomulag á félaginu, ef á að binda það fyrir fram með lögum. Og ég benti þá líka á ákvæði, sem er, ef ég man rétt, í 15. gr. frv., að ef samningar takist ekki, þá skuli ríkinu skylt að annast þessa lyfjaframleiðslu. Ég verð að segja það aftur, að mér finnst það bera verulegan keim af því, að þarna sé verið að sýna einkaaðilunum fram á það, að ef þeir verði ekki til viðtals og vilji ekki ganga til samkomulags á þeim grundvelli, sem þegar er búið að ákveða með l., þá muni verða tekin upp við þá hörð samkeppni, sem e.t.v. mundi þá drepa niður þessa mjög lofsverðu og eftir atvikum myndarlegu viðleitni einkaframtaksins.
Varðandi það atriði í okkar nál., sem snertir öryggissjónarmið, bendum við á það, sem fram kemur m. a. í skýrslu dr. Kjartans Jóhannssonar, sem hann samdi fyrir ráðh., þar sem er viss fyrirvari um það, hve æskilegt sé, að alger miðskipan lyfjaframleiðslunnar eigi sér stað.
Hæstv. ráðh. sagði enn fremur áðan varðandi lyfjaverð, að ef lyfjaverðið ætlaði að fara fram úr hófi bjá slíku sameiginlegu fyrirtæki, væri einkaaðilum frjálst að keppa við það og lækka lyfjaverð. En ég held, að það séu allir sammála um, að ef stór og öflug fyrirtæki eru fyrir hendi, þá dregst auðvitað framleiðslan í smærri stíl saman og verður ekki samkeppnisfær af mörgum ástæðum.
Varðandi gæðakröfur og eftirlit er ugglaust þörf á því að efla eftirlit ríkisins með lyfjaframleiðslunni. Um Pharmaco er það að segja, að það félag hefur komið sér upp, eins og kunnugt er, mjög myndarlegri rannsóknarstofu til að fylgjast með framleiðslunni á öllum stigum, og ættu, hvað framleiðslu þess fyrirtækis snertir, alla vega ekki að vera miklir erfiðleikar á að meta og fylgjast með gæðum þess, sem þar er framleitt. En maður hlýtur nú að spyrja, hvort það sé ekki fullt eins eðlilegt og að steypa saman væntanlega í framtíðinni allri lyfjaframleiðslu í landinu í eitt fyrirtæki, að Lyfjaverslun ríkisins héldi áfram sinni framleiðslu og einkaaðilar hins vegar að sínu leyti með sitt fyrirtæki. Það er áreiðanlega hægt að gera samninga um nokkuð greinilega verkaskiptingu þarna á milli, og ætti að vera hægt að ná sama tilgangi þannig.
Hæstv. ráðh. minntist á það, að lyfsalar hafi átt fyrst hugmyndina um samvinnu ríkis og einkaaðila um lyfjaframleiðslu. Það mun hafa verið um það leyti, sem fyrri lyfsölustjóri féll frá, en síðan eru liðin 6 ár og síðan hefur orðið geysileg breyting í þessu fyrirtæki, sem rætt hefur verið hér um, Pharmaco, þó að því hafi hins vegar ekki tekist að auka svo starfsemi sína eða byggja sitt fyrirtæki eins vel upp og þeir höfðu hug á, vegna þess að þeir hafa átt í erfiðleikum með lánsfé, eins og reyndar fleiri fyrirtæki í þessu þjóðfélagi. Maður hlýtur því að spyrja, hvort sú leið væri ekki alveg eins heppileg, að ríkið gerði eitthvað til að greiða fyrir einkaaðilunum, þannig að þeim mætti auðnast að byggja upp sitt fyrirtæki með meiri hraða og hagkvæmni en orðið hefur.
Í nál. kemur fram, að við, sem að því stöndum, sjáum ekki, að það sé nein þörf á að samþykkja þetta frv., eins og nú er. Það er látið bæði að því liggja í nál. okkar og eins hefur það komið fram í ræðum manna, að það geti síðar meir orðið tímabært að lögfesta samkomulag, ef það næst við einkaaðilana, og fyrr ætti ekki að vera þörf á því. Því höfum við lagt til, að frv. verði vísað frá með rökstuddri dagskrá.