17.12.1973
Neðri deild: 43. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1503 í B-deild Alþingistíðinda. (1369)
159. mál, Seðlabanki Íslands
Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson) :
Herra forseti. 14. júní í sumar voru sett brbl. um heimild til að afnema um stundarsakir þau efri mörk, sem gilda um daglega gengisskráningu krónunnar. Þessi brbl. voru lögð fyrir þingið til staðfestingar snemma á þinginu, og frv. var lagt fram í Ed. Það fór til fjh.- og viskn. þeirrar hv. d., en í n. varð það ofan á, í stað þess að staðfesta ákvæði brbl., að flytja nýtt frv. og segir svo m. a. í grg. með því:
„Í stað þess að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði, um leið og brbl. eru staðfest á Alþ., þykir fjh.- og viðskn. eðlilegra, að höfðu samráði við viðskrh. og bankastjórn Seðlabankans, að leggja fram nýtt frv. um hreyt. á l. nr. 20 16. apríl 1962 um breyt. á l. nr. 10 29. mars 1961, um Seðlabanka Íslands, og afnema úr lögum bæði þau efri og neðri mörk, sem gilda um daglega gengisskráningu krónunnar, og fela þá ákvörðun á vald ríkisstj. og Seðlabanka Íslands, miðað við þær aðstæður, sem ríkjandi eru í gjaldeyrismálum og útlit er fyrir, að haldast muni nú um skeið:
Frv. n. var síðan samþ. óbreytt í Ed.
Fjh.- og viðskn. þessarar hv. d. hefur haft þetta frv. til athugunar, og leggur n. einnig til, að það verði samþ., en 2 nm., Matthías Bjarnason og Þórarinn Þórarinsson, rita undir nál. með fyrirvara.