18.12.1973
Sameinað þing: 38. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1535 í B-deild Alþingistíðinda. (1396)
388. mál, störf stjórnarskrárnefndar
Fyrirspyrjandi (Matthías Bjarnason) :
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. svör hans. Það er rétt, að í þáltill. er n. ekki settur neinn tími til þess að ljúka störfum, en mér finnst hægt af stað farið. Þál. er samþ. 18. maí 1972, 12. sept. er boðað til fyrsta fundar í n. Síðan líður næstum því ár eða til 15. ágúst 1973, að n. er kölluð saman, og heldur hún tvo fundi eftir það, og nú er þegar komið nokkurt hlé. Þó að þessari n. og öðrum séu ekki settar ákveðnar tímatakmarkanir til að skila af sér störfum, hlýtur að hvíla sú skylda á þessari n. eins og öllum öðrum að hraða störfum eftir föngum. Fundarhöld n. bera ekki vott um, að n. hafi þetta ofarlega í huga.