29.10.1973
Neðri deild: 7. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í B-deild Alþingistíðinda. (141)

15. mál, orkulög

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Þetta frv. kemur væntanlega til þeirrar n., sem ég á sæti í í hv. d., og þess vegna ekki þörf á því fyrir mig að segja mikið um málið við í, umr.

Þegar ég fór að lesa frv. og grg., hnaut ég við það, sem segir í grg.: „Með lögum þessum er eignarrétti einstaklinga sett tiltekin almenn takmörk, án þess að bætur komi fyrir.“ Okkur hefur verið kennt, að eignarrétturinn væri mikils virði hér á Íslandi og stjórnarskráin verndi eignarréttinn. Ég held, að það verði óhjákvæmilegt að athuga þetta mál nánar í n., áður en það gengur fram, og gera sér grein fyrir, hvert hér er verið að fara. Ég segi um leið: Það er nauðsynlegt og sjálfsagt, að jarðhitinn, jafn á háhitasvæðum sem lághitasvæðum, verði notaður til almenningsþarfa, eftir því sem þörf krefur. Ekki má hindra það. Með orkul. frá 1967 var þetta sjónarmið haft í huga, sbr. 14. gr. orkul. Þar er tekið inn almennt heimildarákvæði til að taka eignarnámi jarðhita, eftir því sem þörf gerist. En það var ekki sett í lög, að engar bætur skyldu koma fyrir, heldur skyldi þetta gert samkv. almennum eignarnámsl. Með því að taka þetta í lög 1967, var fyrir það girt, að það yrði hindrað, að jarðhiti eða orka á háhitasvæðum yrði fáanleg til almenningsnota. Það var líka fyrir því séð, að skipuleggja mætti þessi mál og gera áætlanir um þau, eftir því sem skynsamlegt þætti.

Mér finnst sjálfsagt, að þetta mál verði athugað frá grunni, og ég vil ekki vera með í því að setja fótinn fyrir, að það sé hægt að koma málunum fyrir á sem skynsamlegastan og auðveldastan hátt, þannig að þessi verðmæti landsins verði nýtt. En það er ómögulegt annað en hugsa sig um, þegar sett er í frv., að það skuli tekin eign manna með lögum, án þess að bætur komi fyrir. Það er þetta atriði, sem verður að athuga nánar, áður en frá málinu er gengið. Ég hygg, að það megi finna samkomulagsgrundvöll.

Það verður vitanlega alltaf matsatriði, hversu mikils virði sú orka er, sem er ekki nýtanleg af einstaklingi. Hvers virði væri laxinn í ánni fyrir bóndann, ef hann hefði enga möguleika til þess að veiða hann? Laxveiðiréttindin eru mikils virði og verðmæt hlunnindi, vegna þess að bóndinn, landeigandinn, kann aðferð til þess að nýta verðmætin, sem eru í ánni. Ég hygg, að þótt gert væri ráð fyrir því að greiða bætur fyrir jarðhita á háhitasvæði, sem er í einstaklingseign eða sveitarfélagaeign, þá yrði það viðráðanlegt og mætti nýta þessi verðmæti að fullu eins og best má verða til almenningsheilla, án þess að ríkissjóði eða þeim atvinnugreinum, sem verðmætin ætla að nota, yrði íþyngt um of.

Hæstv. ráðh. sagði áðan, að hann hefði komið til móts við sveitarfélögin með því að bæta inn í 2. gr. frv. ákvæði eins og sjá má í seinni mgr. gr., þ. e. að þau sveitarfélög, sem land eiga á háhitasvæðum við gildistöku laga þessara, skuli hafa forgangsrétt til vinnsluleyfis á því landi og vera undanþegin leyfisgjaldi fyrir vinnslu á því landi, enda hafi þau sótt um vinnsluleyfi innan 5 ára frá gildistöku l. En hafi nú sveitarfélögin ekki möguleika til þess að nýta þetta innan 5 ára, þá er það ekki lengur fyrir hendi án sérstakrar greiðslu eða leyfis stjórnvalda, sem þyrfti að borga gjald fyrir. Ég er hræddur um, að það geti verið fleiri sveitarfélög en Hafnarfjörður, sem líta þetta hornauga, enda þótt viðleitni hæstv. ráðh, verði að nokkru metin að vilja mæta sveitarfélögunum næstu 5 árin. Ég tek að því leyti undir það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að þetta ákvæði fullnægir ekki óskum sveitarfélaganna. Og ég held, að það sé alveg nauðsynlegt að senda þetta frv. til umsagnar þeirra sveitarfélaga, sem hér gætu hugsanlegt átt hlut að máli.

Herra forseti. Þar sem ég fæ væntanlega að fjalla um frv. í n., tel ég ekki ástæðu til að segja meira að svo stöddu.