18.12.1973
Sameinað þing: 38. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1550 í B-deild Alþingistíðinda. (1418)

394. mál, innflutningur á olíu og olíuverð

Fyrirspyrjandi (Láras Jónason) :

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 177 fsp. í 2 liðum til hæstv. viðskrh. um innflutning á olíu og olíuverð.

Það hefur komið fram í fréttum, að samningar, sem gerðir hafa verið milli landa um olíusölu, hafi ekki staðist að því er varðar magnákvæði við þær breyttu aðstæður, sem nú ríkja í olíumálum heimsins. Að minni hyggju ber brýna nauðsyn til að kanna af okkar hálfu við þá aðila, sem gerðir hafa verið olíukaupasamningar við, að slíkt geti ekki átt sér stað, að því er okkur varðar, þ. e. a. s. að við fáum minna magn af olíu en um hefur verið samið. Það liggur í augum uppi, að bregðist slíkir samningar, þarf þegar í stað að gera viðhlítandi ráðstafanir, t. d. að því er varðar sölu á eldsneyti til erlendra skipa og flugvéla. Af þessum ástæðum er fyrri liður fsp. minnar til hæstv. viðskrh. fram borinn.

Síðari hluti fsp. fjallar um það, hvort ríkisstj. stefni að því að létta þær byrðar, sem nú þyngjast um allan helming á þeim heimilum, sem þurfa að nota olíu til upphitunar. Hér er um stórkostlegt réttlætismál að ræða, því að upphitun með raforku er nú þegar miklu ódýrari en með olíu, og bilið mun aukast um allan helming á næstunni, að því er séð verður. Sem dæmi um þetta hefur verið áætlað, að hitakostnaður í Rvík yrði nálægt 585 millj. kr. árið 1974, og er þá gert ráð fyrir 30% hækkun á gjaldskrá hitaveitunnar. Olíukostnaður yrði til sömu upphitunar á hinn bóginn 2150 millj. kr., ef olía hækkar um 90%, svo sem talið er raunhæft að gera ráð fyrir. Sparnaður Reykvíkinga er því áætlaður 1565 millj. kr. á næsta ári vegna hitaveitunnar, þótt gjaldskrá hennar hækki um 30% Ef á hinn bóginn ekkert er gert af hálfu ríkisvaldsins, leggst olíuskatturinn með fullum þunga á íbúa þeirra byggðarlaga, sem ekki geta komið við upphitun með jarðvarma eða rafmagni.

Sérstaka athygli ber að vekja á því, að þessi gífurlega hækkun á rekstrarkostnaði þeirra heimila hækkar ekki vísitölu og kaup, vegna þess að vísitölufjölskyldan býr á hitaveitusvæði Reykjavíkur. Þessi heimili fá því olíuskattinn ekki bættan, nema til komi sérstakur atbein ríkisvaldsins.

Það er mál út af fyrir sig, að mestu þéttbýlissvæði landsins, sem eru vonlítil um hitaveitu, eins og Akureyri, búa við svo mikinn raforkuskort, að gert er ráð fyrir, að ný hús þar geti ekki fengið raforku til húshitunar næstu árin, þar sem stefnt er að því, að öll viðbótarraforka verði þar framleidd með díselafli a. m. k. næstu ár, en það kostar á núverandi verði í olíukaupum 2 kr. á kwst. að framleiða þá orku, sem seld er nú á eina kr. Hér er um alveg sérstakt mál að ræða, sem ríkisvaldið ætti að láta til sín taka.

En hitt er að þessu sinni meginefni fsp. minnar, hvort ríkisvaldið hyggist beita sér fyrir því mikla réttlætismáli, að það leggist ekki á hluta þjóðarinnar, þá sem síst skyldi, að búa við þau ókjör, að heimilisrekstur þeirra þyngist um allan helming vegna ástands olíumála í heiminum.