18.12.1973
Sameinað þing: 38. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1552 í B-deild Alþingistíðinda. (1420)

394. mál, innflutningur á olíu og olíuverð

Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson) :

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh, svörin. Það kom fram í svari við fyrra liðnum, að starfsmenn rn. hans gera ekki ráð fyrir, að það verði um minnkað magn að ræða, sem við getum fengið eftir þeim samningum, sem við höfum gert um kaup á olíu. Það út af fyrir sig er fagnaðarefni, ef það mat er byggt á einhverjum raunhæfum grundvelli, sem kom ekki fram í svari hæstv. ráðh. En vonandi er það svo, og þá er kannske ekki ástæða fyrir okkur til að óttast, að við fáum ekki umsamið magn. Það er þá frekar það, að við þurfum að taka til athugunar, hvernig við förum með það olíumagn, sem við fáum keypt eftir þessum samningi.

Á hinn bóginn verð ég að harma það, sem kom fram í svari hæstv. ráðh. við 2. lið fsp. minnar, þar sem hann sagði skýrt og skorinort, að ekki hefði verið tekin nein ákvörðun um það í ríkisstj. að létta byrðar þeirra, sem þurfa að kynda hús sín með olíu. Það er alveg ljóst, og ég held, að hæstv. ráðh. og hæstv. ríkisstj. hljóti að vera það alveg ljóst, að þarna er um að ræða stórkostlegt vandamál. Ég gat þess, að það er ekki einungis, að það fólk, sem fyrir þessu verður og er einungis hluti þjóðarinnar, flestir bændur og flestir stórir þéttbýlisstaðir utan höfuðborgarsvæðisins, það er ekki einungis, að þetta fólk þurfi að leggja á sig þennan mikla kostnað, og margfallt sinnum meiri kostnað en aðrir þurfa að leggja á sig við rekstur sinna heimila, heldur er það þannig, að vísitölukerfi okkar er með þeim ólíkindum, að þessi gífurlega mikla hækkun, sem nemur tugum þúsunda kr. fyrir hvert heimili á næsta ári, reiknast ekki sem aukin framfærslubyrði hjá þessum aðilum, heldur er einungis farið eftir því, hvernig verðlag er á hitaveitu hér á Reykjavikursvæðinu. Ég hygg, að það væri hagsmunamál bæði Reykvíkinga og annarra landsmanna, að þessum málum yrði betur skipað, og vænti ég þess, að hæstv. ríkisstj. ræði þetta mál áfram og komist að einhverri niðurstöðu, sem hægt er við að una.