18.12.1973
Sameinað þing: 38. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1558 í B-deild Alþingistíðinda. (1430)
156. mál, línusvæði fyrir Vestfjörðum
Fyrirspyrjandi (Steingrímur Hermannsson) :
Herra forseti. Ég skal ekki hafa langt mál fyrir þessari fsp. Ég læt nægja að geta þess, sem hv. þm. er raunar kunnugt, að útgerð frá Vestfjörðum einkennist, fremur en í öðrum landshlutum, af mikilli línuútgerð, og sömuleiðis er hv. þm. að sjálfsögðu kunnugt um það, að nábýli línuútgerðar og togveiða er að ýmsu leyti erfitt. Ég held, að mönnum sé einnig ljóst, að samningarnir, sem gerðir voru við Breta, eru að sumu leyti einna erfiðastir í framkvæmd á Vestfjarðamiðum. Þar halda erlendir togarar sig síður í ófriði en í friði, þegar þeir geta leitað vars. Við þetta hefur að sjálfsögðu aukist verulega álag á Vestfjarðamiðum og því erfiðleikar í sambandi við það nábýli, sem ég nefndi áðan, með línuveiðum og togveiðum.
Ég vil taka það fram, þegar ég segi þetta, að ég áleit hins vegar sjálfsagt að samþykkja þessa samninga. Frá þjóðhagslegu sjónarmiði var það eðlilegt og sjálfsagt.
En nú hafa komið, eins og vænta mátti, kvartanir frá sjómönnum á Vestfjörðum um ágang breskra togara við þeirra línusvæði. Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að auka þarna eftirlit varðskipa til þess að fyrirbyggja slíkt. En jafnframt er kunnugt, að alþjóðasamþykktir gera ráð fyrir því, að afmarka megi sérstök línusvæði eða skipta veiðisvæðum á milli veiðarfæra. Þetta hefur verið gert, t. d. í sambandi við grálúðuveiðar í Norðurhöfum, og að því er ég best veit verið virt. Mér sýnist eðlilegt, að þetta sé einnig reynt á Vestfjörðum, og hef því leyft mér að leggja fram fsp. á þskj. 215 til hæstv. sjútvrh., sem ég spyr: „Telur sjútvrh. koma til greina að afmarka sérstakt línusvæði fyrir Vestfjörðum, og ef svo er, hefur ráðh. í huga að gera það?“