29.10.1973
Neðri deild: 7. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í B-deild Alþingistíðinda. (148)

32. mál, búfjárræktarlög

Flm. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. 2, þm. Sunnl. að flytja hér litið frv. á þskj. 33. Grg., sem fylgir frv., segir í höfuðatriðum allt, sem segja þarf um þetta mál.

Þegar búfjárræktarl. var breytt á síðasta þingi, slapp í gegn ákvæði, sem ég efast um, að hv. alþm. hefðu viljað láta fara í gegn, þ. e. að lögfesta 10% útflutningsgjald á þau hross, sem seld eru úr landi. Undan þessu hefur verið kvartað mjög mikið á s. l. sumri, og þetta þykir algerlega óréttlátt. Útflutningsbætur eru greiddar með dilkakjöti og öðru kjöti, ef það er flutt út, og mjólkurafurðum, en hrossaútflutningur er skattlagður. Við leggjum til, að skattur verði áfram á þeim hrossum, sem teljast til kynbótahrossa, stóðhesta og hryssna, ef þær hafa verið ættbókarfærðar og teljast kynbótahryssur. Við teljum, að það eigi að stemma stigu, eftir því sem unnt er, við útflutningi á kynbótahrossum og þess vegna megi skatturinn vera áfram á þeim. En við teljum ranglátt að leggja skatt á önnur hross. Og á það ber að henda, að í Efnahagsbandalagslöndunum er innflutningsskattur 18% á hrossum, en við seljum mest af okkar hrossum til Efnahagsbandalagslandanna. Þetta gerir vitanlega þessa verslun dálítið erfiða. Þó að nokkuð hafi ræst úr um verð og verslun á hrossum til útflutnings að undanförnu, þá verður að segja eins og er, að þetta er talsvert erfitt verkefni, sem þarna er unnið að. Og það ber frekar að ýta undir, að hændur geti framvegis fengið gott verð fyrir hrossin til útflutnings, heldur en að leggja stein í götu þess.

Í Svíþjóð er innflutningstollur á hrossum, en þar gæti verið talsverður markaður, ef verðið yrði ekki of lágt vegna þessa tolls. Það hefur verið reynt að vinna að því að undanförnu að fá tollinn afnuminn, en ekki tekist enn þá.

Ég geri ráð fyrir því og ég vona það, að hv. alþm. fylgi þessu frv. og þetta ákvæði hinna nýju búfjárræktarlaga, sem slapp í gegn í fyrra, verði leiðrétt með því að samþykkja þetta frv.

Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.